Spurningaþraut 7: Brjálæðislegur bíll og fleira

Spurningaþraut 7: Brjálæðislegur bíll og fleira

Sjöunda spurn­inga­þrautin er með sama sniði og hingað til, tíu spurn­ingar og svörin eru hér fyrir neðan mynd­ina af konu einni.

Auka­spurn­ingar eru svo tvær: Hver er ungi karl­inn að ofan og hver er konan á neðri mynd­inni?

1.   Hvaða bíó­mynd hefur Baltasar Kormákur gert eftir glæpa­sögu eftir Arnald Ind­riða­son?

2.   Hvað hét litla geim­farið sem leið­ang­ur­inn Appollo 11. flutti til tungls­ins, þar sem það lenti svo með tvo menn inn­an­borðs 20. júlí 1969?

3.  Hvað hét lagið sem keppti fyrir Íslands hönd í Eurovision árið 2019?   

4.   Hversu há er Hekla? Skekkju­mörk eru 100 metrar í hvora átt.

5.  Koenigs­egg er nafn á rán­dýrum sport­bílum, sem eru afar sjald­séðir, enda aðeins örfáir tugir fram­leiddir af hverri týpu. Nú í byrjun mars var til dæmis kynnt týpa sem reiknað er með að kosti tæpar 450 millj­ónir þegar hún kemur á markað. Og sá bíll er svo hrað­skreiður að hann gæti spít­tað leið­ina milli Reykja­víkur og Akur­eyrar á 45 mín­útum ef veg­irnir væru nógu góðir. Þessi bíll er fram­leiddur í landi þar sem bíla­fram­leiðsla stendur á gömlum merg, en þar í landi eru bíla­smiðir þó kunn­ari fyrir að fram­leiða örugga fjöl­skyldu­bíla en svona brjál­æð­is­leg trylli­tæki. Í hvaða landi eru Kon­ungs­eggin fram­leidd?

6.  Hermann Göring var einn nán­asti sam­verka­maður Adolfs Hitlers í síð­ari heims­styrj­öld. Hann gegndi ýmsum emb­ættum en hvað er það helsta og mest áber­andi?

7.  Hver er sér­fræði­grein Ölmu Möller land­læknis í lækn­is­fræð­inni?

8.  Hvar eru heim­kynni lemúra - nokkuð nákvæm­lega?

9.  Í hvaða hljóm­sveit er Nanna Bryndís Hilm­ars­dóttir?

10. Árið 2015 var frum­sýnd banda­rísk glæpa­mynd sem Jóhann G. Jóhanns­son gerði tón­list­ina í. Þrem árum seinna var gert fram­hald mynd­ar­innar og þá brá svo við að Hildur Guðna­dóttir sá um mús­ík­ina. Hvert er hið sam­eig­in­lega heiti þess­ara mynda?

Hér eru svörin:

1.   Mýrina

2.  Eagle eða Örninn

3.  Hatrið mun sigra

4.  1.491 metra (svo rétt telst vera allt frá 1.390 til 1.591)

5.  Svíþjóð

6.  Yfir­maður flug­hers­ins Luftwaffe, flug­mála­ráð­herra

7.  Hún er doktor í svæf­inga- og gjör­gæslu­lækn­ingum - hvort tveggja telst því vera rétt

8.  Á eyj­unni Madaga­skar - svarið „í Afríku“ dugar ekki

9.  Of Monsters and Men

10.  Sicario - sú seinni ber reyndar und­ir­tit­il­inn Day of the Soldado en alveg ónauð­syn­legt er að vita það.

Þá er rétt að fram komi að karl­inn á efstu mynd­inni er vit­an­lega franski fót­bolta­mað­ur­inn Eric Cantona, sem gerði garð­inn frægan með Leeds og fleiri liðum, en konan er Nastassja Kinski sem fyrrum var nokkuð áber­andi leik­kona.

Næstu spurn­inga­þraut á undan má finna hérna. Sú næsta á eftir er hins vegar hérna.

Og til fróð­leiks og skemmt­unar, þá er hér fyrir neðan mynd af einu nýjasta Kon­ungs­egg­inu sænska, Koenigs­egg Jesko.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár