Bjartsýn þrátt fyrir gjörbreyttan rekstur á Laugavegi

Eigendur fjög­urra versl­ana við Laugaveg sem eiga ekki allt sitt undir verslun við ferða­menn hafa gjör­breytt starfs­háttum sínum til að lifa af COVID-krís­una. Þeir þakka því smæð sinni og sveigj­an­leika að geta haldið áfram rekstri og segj­ast allir bjart­sýnir með að lifa af, þó að enn ríki mikil óvissa.

Bjartsýn þrátt fyrir gjörbreyttan rekstur á Laugavegi
Stendur vakt­ina Margir af nágrönnum Jóhanns Ludvigs á Lauga­vegi hafa lokað í kjöl­far sam­komu­banns­ins vegna covid-19. Hann heldur sinni verslun hins vegar opinni og horfir til við­skipta við íbúa hér á landi í stað ferða­manna. Mynd: Davíð Þór

Þegar gengið er niður Laugaveg þessa dag­ana er engu lík­ara en að manni hafi verið kippt ára­tug aftur í tím­ann í það minnsta. Á und­an­förnum árum hefur þar varla verið þver­fótað fyrir ferða­mönnum en nú eru þeir fáu sem þar eru á ferli flestallir heima­menn. Í gluggum versl­ana sem eiga fyrst og fremst í við­skiptum við ferða­menn eru miðar sem á stendur: „Við snúum aftur þegar þessu ástandi lýkur.“ Enginn veit hins vegar hvenær ástand­inu lýkur, eða hvort lífið verði nokkurn tím­ann eins á Lauga­veg­inum. En þrátt fyrir að tóm­legt sé um að lit­ast standa nokkuð margir versl­un­ar­menn enn vakt­ina á Lauga­vegi, ekki síst þeir sem stóla á við­skipti heima­manna. Flestir þeirra hafa reynt að aðlag­ast ástand­inu og breytt við­skipta­háttum sínum, jafn­vel á rót­tækan hátt en með ágætis árangri. 


600% auking í vefverslun í mars

Í samkomubanni hafa fleiri tíma til að elda góðan mat og baka. Eigendur Kokku á Laugavegi finna vel fyrir því. Þar hefur vefverslun aukist til muna og sjá þeir fyrir sér að bæta við starfsfólki, ef fram heldur sem horfir. 

Um mið­bik Lauga­vegar er hið rót­gróna fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki Kokka, sem selur allar mögu­legar teg­undir af gæða-eld­hús­á­höldum. Stefna fyr­ir­tæk­is­ins er að leið­beina við­skipta­vinum í gegnum „frum­skóg eld­hús­á­hald­anna og aðstoða við val, notkun og við­hald“, líkt og segir á heima­síðu fyr­ir­tæk­is­ins. Stefnan hefur ekki breyst með til­komu COVID-19 en það hefur þurft sveigj­an­leika og útsjón­ar­semi til að fram­fylgja henni í breyttu umhverfi, eins og Guðrún Jóhann­es­dóttir, ein eig­enda Kokku, segir frá. „Þetta er búið að vera skrýtið ástand, við skulum alveg segja það. Þetta er búið að vera erfitt líka, af því að það er erfitt að vera í fram­línu. Það tók okkur öll, bæði okkur og við­skipta­vin­ina, smá tíma að átta okkur á hvað við þyrftum að gera, hvernig við þyrftum að haga okkur, halda fjar­lægð og svo fram­vegis, en það er alveg að síast inn. Fólk er að verða mjög með­vitað um það núna að það þurfi að passa sig. Það spritta sig allir við inn­gang­inn og passa sig að halda fjar­lægð, þannig að það er frá­bært.“

Flókið í framkvæmd en spennandi áskorun

Við­skiptin í versl­un­inni gáfu fljótt eftir með sam­komu­bann­inu en á móti varð spreng­ing í vef­verslun fyr­ir­tæk­is­ins. Nú sinnir einn starfs­mann­anna sem áður var í versl­un­inni alfarið vef­versl­un­inni, heiman frá sér. „Við vorum með 600% aukn­ingu í mars og það er meiri aukn­ing í apríl. Ég er ekki komin með töl­urnar en það er búin að vera ótrú­leg spreng­ing. Það er heil­mikil auka­vinna í kringum það allt saman. Við erum líka að keyra út á höf­uð­borg­ar­svæð­inu allar pant­anir sem koma inn á morgn­ana og reynum að fara líka sam­dæg­urs með allt í póst, þannig að það er aukið álag þar. Svo erum við líka með sótt­varn­ar­línu í fyr­ir­tæk­inu, þannig að við erum bara þrjú á þess­ari vakt og svo eru aðrir á helg­ar­vakt, þannig að þetta er búið að vera flókið í fram­kvæmd en spenn­andi áskorun í raun­inni.“

Guðrún segir að þrátt fyrir að færri séu á Lauga­vegi hafi dregið minna úr verslun í búð­inni en hún bjóst við. Margir viðri sig með því að ganga upp og niður Laugaveg og stingi þá jafn­vel nef­inu inn í versl­anir á leið­inni. „Þeir sem ég hef talað við af nágrönnum mínum, sem eru með opið hafa verið mjög ánægðir með traffík­ina. En það er nátt­úr­lega mis­jafnt hvað kom­ast margir inn í hverja búð og það eru margir með fjölda­tak­mark­anir. Við reynum að passa að það séu alls ekki fleiri en 20 og það sé rétt bil á milli, en það hefur bara gengið vel.“

Hafa enn ekki þörf á ríkisaðstoð

Svo þetta hefur ekki haft svo slæm áhrif á rekst­ur­inn? „Nei, ég þarf ekki að sækja um rík­is­að­stoð, alla vega ekki enn þá. En maður veit auð­vitað ekki hvað ger­ist, þetta eru miklir óvissu­tímar og við vitum ekki alveg í hvaða átt þetta fer, þó við séum alltaf bjart­sýn. Ég reyni alltaf að vera bjart­sýn, mér finnst það skárra en hitt. Við sjáum það líka í rekstr­inum sem við erum í að fólk hefur meiri tíma heima. Það er að baka, það er að elda og það kallar á meiri eft­ir­spurn eftir þeirri vöru sem við erum að bjóða upp á, sem er kostur fyrir okkur. Það eru ekki allir í þeirri aðstöðu, það er auð­vitað mis­mun­andi rekstur sem verður fyrir mis­mun­andi áhrifum af þessu ástandi, en við getum alla vega ekki kvartað.“

Hún segir ómögu­legt að spá fyrir um hvernig næstu mán­uðir eigi eftir að þró­ast. Ef þró­unin haldi áfram á sama veg, áfram verði tak­mark­anir á sam­komum og ferða­lögum og aukn­ing í vef­verslun, geti hins vegar vel verið að hún þurfi að bæta við starfs­fólki. „En veistu það, að ég veit það ekki. Maður veit ekk­ert í hvaða átt þetta fer:“

Hjálpar að vera sveigjanleg

Guðrún segir að í raun hafi ekki komið til greina að loka Kokku á meðan á ástand­inu varir. „Við íhug­uðum þetta allt saman, settum upp alls konar mis­mun­andi myndir þegar við vorum að velta því fyrir okkur hvaða leið við ættum að fara. Margir hafa verið að stytta opn­un­ar­tím­ann en við ákváðum að hafa opið í átta tíma til þess að hafa meiri sveigj­an­leika og geta stýrt flæð­inu betur. Ef maður er bara með opið í fjóra tíma eru fleiri í búð­inni á sama tíma.“ 

Að lokum segir Guðrún það hafa komið sér vel að Kokka er lítið fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki, því það hjálpi þeim að vera sveigj­an­leg. „Við brugð­umst bara hratt við. Við erum bara lítil og höfum alltaf verið fljót að breyt­ast ef þörf er á.“


„Þetta er pínkulítið gott á okkur“

Eigendur verslunarinnar Hjarta Reykjavíkur hafa notað tímann í samkomubanni til að líta inn á við. Þau sjá fyrir sér að einbeita sér að viðskiptum við heimafólk frekar en ferðamenn framvegis. 

Þegar annar eig­enda versl­un­ar­innar Hjarta Reykja­víkur, Jóhann Ludwig Torfason, er spurður að því hvenær hann búist við því að við­skiptin fær­ist í eðli­legt horf á ný vill hann snúa upp á spurn­ing­una. „Mér finnst að fyrsta spurn­ingin sem við ættum að spyrja okkur að ætti að vera: „Viljum við að allt verði eins og það var?“ Ég hef engan hitt sem vill það.“

Hann seg­ist hafa nýtt tím­ann sem mynd­ast hefur í sam­komu­bann­inu til að horfa svo­lítið inn á við. Hann sjái núna að hann, eins og margir aðrir versl­un­ar­eig­endur, hafi fallið í þá gryfju að setja aðeins of mikla áherslu á ferða­mann­inn, þrátt fyrir að það hafi ekki verið hans upp­haf­lega hug­mynd með því að opna verslun. „Nú hefur fólk meiri tíma til að bremsa og skoða hvað er hægt að gera.“ 

Týpískt íslenskt að hafa öll eggin í sömu körfu

Jóhann er höf­undur tveggja mynda­bóka sem sýna húsin í Reykja­vík. Versl­unin, sem jafn­framt er verk­stæði Jóhanns, spratt í raun upp úr þeim bókum. Þar má kaupa ýmsan varn­ing með húsum Jóhanns á, svo sem púða­ver, bolla, vegg­spjöld og ýmis­legt fleira.  „Alveg frá fyrsta degi var aug­ljós áhugi Íslend­inga á því sem ég var að gera, ég hafði ekki undan neinu að kvarta. En svo nátt­úr­lega af því að Lauga­veg­ur­inn er eins og hann er – eða var – þá voru ekki Íslend­ingar að koma. Þá nátt­úr­lega, ef 90% af við­skipta­vinum þínum eru útlend­ingar, ferðu ósjálfrátt að sveigja þig svo­lítið að þeim. Mig langar svo­lítið til að taka skrefið til baka, fók­usa dálítið á inn­an­lands­mark­að­inn. Ég er nátt­úr­lega neyddur til þess líka, að mörgu leyti, þar sem það er ekki öðru til að dreifa, svo­leiðis. Við sjáum til hvað verður með það. En alla vega, ég held þetta hafi verið pínku­lítið gott á okkur öll. Það er ljótt að segja það, en ég held það. Þetta er bara týpískt íslenskt, eins og svo margir hafa talað um. Sömu eggin í sömu körf­una og allur sá pakki. Við erum svo­lítið þannig týpur.“

Forsenda hás leiguverðs brostin

Þrátt fyrir að verslun við ferða­menn hafi auk­ist hjá Jóhanni hafa við­skipti við heima­menn líka verið honum mik­il­væg. Það er vegna þeirra sem hann hefur ekki þurft að loka versl­un­inni, enn sem komið er. „Íslend­ingar tóku strax vel við þessu, voru mikið að kaupa til að senda út og þess háttar. Þannig að ég hef í raun og veru verið minna háður ferða­mönnum en næstu nágrannar mínir, sem eru með þessa hefð­bundnu ferða­manna­vöru sem engir Íslend­ingar vilja. Þeir nátt­úr­lega lok­uðu á fyrsta degi, þegar þetta skall á. En ég hef enn þá opið.“

Íslend­ing­arnir koma hins vegar fáir á Lauga­veg­inn, segir Jóhann, heldur versla frekar í gegnum netið. Hjá honum líkt og mörgum í kringum hann hefur net­verslun auk­ist til muna. „Íslend­ing­arnir koma mjög lítið því það er búið að venja þá illa af Lauga­veg­inum. Á síð­ustu þremur árum er búið að byggj­ast upp eitt­hvað ótrú­lega nei­kvætt í garð Lauga­vegar, sem er ósann­gjarnt en er auð­vitað að ein­hverju leyti af því að það fyllt­ist allt af ferða­mönnum og það var ekk­ert pláss fyrir Íslend­inga. Nú er pláss fyrir þá og þeir þurfa bara að ná því að það sé óhætt að koma. Þetta er gatan okkar, besta gatan okkar, og þeir eiga auð­vitað erindi hingað, nú sem áður.“

Spurður að því hversu lengi hann geti haldið sér í rekstri undir þessum kring­um­stæðum segir hann það velta á ýmsu, ekki síst því hvernig leigu­verð þró­ist. „Það sem hlýtur að ger­ast núna er að for­sendan fyrir svona gríð­ar­lega háu leigu­verði við Lauga­veg­inn og Skóla­vörðu­stíg­inn er algjör­lega brostin. Ég get alveg eins verið með þessa verslun á Sauð­ár­króki í dag. Það hlýtur að spila inn í rekstr­arplön allra rekstr­ar­að­ila.“


Reiknuðu með skelfingu en finna fyrir bjartsýni

Verslunin Vonarstræti var aðeins búin að vera opin í nokkra mánuði þegar allar forsendur fyrir eðlilegum rekstri brustu með þeim hömlum sem samkomubann vegna COVID-19 fela í sér. Eigendur verslunarinnar bjuggust við því versta en segja ástandið betra en þær þorðu að vona. 

Von­ar­stræti er ein af nýlegri versl­unum við Laugaveg. Þar eru seldar heim­il­is­vörur, snyrti­vörur, fatn­aður og áfyll­ing­ar­vörur sem keyptar eru inn með umhverfið og fólk í huga. Ólöf María Jóhanns­dóttir er önnur tveggja eig­enda versl­un­ar­innar. Hún segir að þær hafi fyrst um sinn búist við því að allt færi á versta veg, þegar COVID-krísan skall á, með til­heyr­andi sam­komu­banni og öðrum hömlum. Við­skiptin hafi hins vegar verið vonum framar. „Við reikn­uðum auð­vitað með ein­hverri skelf­ingu hérna, en svo er stöðugt renn­erí af fólki hérna. Auðvitað hefur salan minnkað en hún hefur líka færst mikið yfir á netið.“

Þær hafa tak­markað afgreiðslu­tím­ann í versl­un­inni, voru um tíma með opið frá 13–15 en hafa nú aukið tím­ann í 12–17 og stefna á að opið verði á eðli­legan máta strax í byrjun maí, þegar aflétt­ing hafta hefst. Til að bæta upp fyrir tak­mark­aðan afgreiðslu­tíma hafa þær boðið við­skipta­vinum að hafa sam­band þegar þeir þurfa á áfyll­ingu að halda. „Við erum með fullt af áfyll­ingum og vildum þjón­usta okkar við­skipta­vini með það. Við höfðum meiri áhyggjur af því að fólk myndi ekki þora að hringja, en sem betur fer hringir fólk.“ 

Viðskiptavinum fjölgar 

Hún segir að þær og aðrir versl­un­ar­eig­endur sem hafa haldið versl­unum sínum opnum eigi það sam­eig­in­legt að hafa sveigt starf­sem­ina að breyttum tímum. Óvissan hafi verið algjör og enn sé erfitt að spá fyrir hvernig næsti dagur verður. „Já, veistu ég held að versl­un­ar­eig­endur hafi bara ekki vitað hvað væri að fara að ger­ast, í alvöru talað. Ekki höfðum við hug­mynd um það. Ég hafði ekki hug­mynd um hvort eng­inn myndi mæta hingað, eða hvað. Við finnum auð­vitað fyrir því að túrist­arnir eru farnir og það er auð­vitað færra fólk hérna á Lauga­veg­inum og svo erum við með nýja verslun, þannig að hver dagur er nýr dagur fyrir okkur, því við höfum ekki sam­an­burð á milli mán­aða. En eins og þú sérð þá eru við­skipta­vinir inni hjá mér núna og það voru við­skipta­vinir að fara. Við erum alltaf að fá fleiri og fleiri nýja við­skipta­vini. Það er gaman að finna hvað við erum komnar með marga fasta við­skipta­vini. Mér þykir vænt um það.“

Þýðir ekki annað en að vera bjartsýn

Ólöf vonar að með hækk­andi sól fari fleiri lands­menn að koma niður í miðbæ og við það glæð­ist við­skiptin hjá þeim mörgu smáu versl­unum sem þar berj­ast fyrir lífi sínu. „Það er svo fal­legt hérna niðri í bæ og það er svo mikið af skemmti­legum versl­unum hérna. Ég bý hérna og það er alltaf eitt­hvað sem kemur mér á óvart. Ég fer í göngutúr hérna á hverjum ein­asta morgni. Það er svo mikið af skemmti­legu fólki hérna líka, þannig að ég hvet alla til að koma. Það er líka frá­bært núna, þegar veðrið fer að verða betra. Við erum búin að hanga inni í margar vikur. Bara komið í mið­bæ­inn! Fullt af skemmti­legu fólki, geggj­aðar versl­anir, nú eftir 4. maí þá kannski fáum við að sitja hérna úti og drekka kaffi. Ég bara fæ tár í augun,“ segir hún hlæj­andi og bætir svo við: „Við erum bara bjart­sýnar. Þýðir eitt­hvað annað?“


Mesta furða hvað er mikið að gera

Dúsa Ólafsdóttir fatahönnuður er annar eigenda fataverslunarinnar Stefánsbúð / P3 á Laugavegi 7. Þar hefur verið brugðist við samkomubanni meðal annars með því að keyra fötin heim í hús, svo fólk geti keypt sér eitthvað fallegt þó það hætti sér ekki úr húsi.

„Við erum bara eig­in­lega frekar glöð. Við vissum nátt­úr­lega ekk­ert við hverju ætti að búast og við lok­uðum reyndar í fjóra daga ein­hvers staðar þarna í milli­tíð­inni. En svo var allt í einu svo gott veður og við hugs­uðum: „Æ, prófum bara!“ og höfum verið með opið síðan,“ segir Dúsa Ólafs­dóttir, en hún rekur versl­un­ina Stef­áns­búð / P3 ásamt Stefáni Svan Aðal­heið­ar­syni.  Það er bara mesta furða. Stundum er rólegt, stundum ofsa­lega margir. Það er minna svona drop-in – afsakið orð­bragðið á afmæl­is­degi Vigdísar – en já, það er miklu meira en við bjugg­umst við og það er bara mjög gleði­legt.“

Í venju­legu árferði er Stef­áns­búð / P3 ekki vef­verslun, en til þess að bregð­ast við ástand­inu hafa þau Dúsa og Stefán byrjað að keyra fötin upp að dyrum, óski við­skipta­vinir eftir því. „Maður veit að það eru margir sem fara ekki út úr húsi og svo eru margir sem mega ekki fara úr húsi, svo við ákváðum að reyna svona heim­send­ingar, höfum verið að skutl­ast út um hvipp­inn og hvapp­inn, að leyfa fólki að máta og svona. Það hefur bara verið mikið að gera í því, sem er frá­bært. Það er líka gaman að geta mátað heima, við skóna sína og í sínu umhverfi og svona.“

Stóla ekki á ferðamenn

Stef­áns­búð / P3 er til­tölu­lega nýflutt á Laugaveg. Heima­menn eru stærsti við­skipta­vina­hópur versl­un­ar­innar og því hefur hvarf ferða­manna ekki haft telj­andi áhrif á rekst­ur­inn. „Okkar mark­hópur er 90–95% Íslend­ingar og þeir hafa verið okkar kúnna­hópur. Fyrir jól var reyndar slatti af túristum en okkur fannst það bara vera góð við­bót. Við stílum ekki inn á túrista og höfum ekki gert í þau fjögur ár sem þessi búð hefur verið til. En kannski kemur að því, þegar sprengjan kemur aftur.“

Þrátt fyrir það hefur ástandið verið högg fyrir rekst­ur­inn, segir Dúsa, bara ekki eins alvar­legt eins og þau bjugg­ust við. „Þetta hefur nátt­úr­lega verið högg og maður vissi ekki við hverju ætti að búast. En maður hefur borið sig eftir björg­inni, meðal ann­ars með útkeyrsl­unni.“

En hvernig sér hún fyrir sér þró­un­ina næstu mán­uði? „Ég ímynda mér að nú eigi þetta eftir að fara upp á við, mér finnst það mjög lík­legt. Síðasti laug­ar­dagur var bara eins og venju­legur laug­ar­dagur, það var bara brjálað að gera og Stefán var bara hérna einn. Við hefðum alltaf verið tvö undir venju­legum kring­um­stæðum eins og við erum alltaf á álags­tímum en nú höfum við ekki hist lengi, skiptum alveg heilum dögum. En jú, ég held þetta fari rísandi, ég er bara mjög bjart­sýn fyrir sum­arið. Ég held að þetta verði æðis­legt. Ég held að strax 4. maí eigi fólk eftir að flykkj­ast niður í bæ og út um allt, hvert sem fólk flykk­ist. Mér finnst það mjög lík­legt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár