Samherji gerir hundruð milljóna kröfu í þrotabú í Færeyjum

Á slita­fundi fær­eyska félags­ins Tind­hólms á föstu­dag var ekki tekin afstaða til rúm­lega 340 millj­óna kröfu frá Samherja í búið. Þetta er féð sem Samherji hefur lagt fram sem trygg­ingafé í Færeyjum vegna „mis­taka“ sem fyr­ir­tækið segir að hafi verið gerð.

Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Samherja.
Þor­steinn Már Bald­vins­son for­stjóri Samherja. Mynd: Skjáskot/Samherji

Sjáv­ar­út­vegs­fé­lagið Samherji setti fyrr á árinu fram kröfu um að fá tæpar 17 millj­ónir danskra króna, jafn­virði rúm­lega 340 millj­óna íslenskra króna, úr þrota­búi fær­eyska félags­ins Tind­hólms. Það er félag sem dótt­ur­fé­lag Samherja á Kýpur stofn­aði í Færeyjum fyrir um ára­tug síðan.

Þetta eru pen­ing­arnir sem Samherji lét fær­eyskum yfir­völdum í té eftir að sagt var frá því að Tind­hólmur hefði verið með sjó­menn sem voru að fiska við strendur Namibíu á launa­skrá og skráða sem far­menn á flutn­inga­skipum undir fær­eyskum fána.

Færeyska Kringvarpið sagði frá því um helg­ina að á skipta­fundi í þrota­búi Tind­hólms á föstu­dag hefði ekki verið tekin afstaða til þess­arar kröfu frá Samherja. Ástæðan væri sú að lög­reglan hefði ekki enn rann­sakað málið, en greint var frá því í vor að TAKS, fær­eyski skatt­ur­inn, hefði til­kynnt málið til lög­reglu.

[adspot]

Málið kom upp í mars­mán­uði þegar fyrri hluti heim­ild­ar­myndar um umsvif Samherja í Færeyjum var sýnd er í fær­eyska sjón­varp­inu. Hún var unnin í sam­starfi við Kveik og Wikileaks.

Í heim­ild­ar­mynd­inni kom fram að Íslend­ingur úr áhöfn tog­ara í eigu Samherja, sem gerður var út í Namibíu, fékk laun sín greidd frá fær­eyska félag­inu og hefði auk þess verið rang­lega skráður í áhöfn fær­eysks flutn­inga­skips í eigu Samherja, en útgerðum býðst 100 pró­sent end­ur­greiðsla á skatt­greiðslum áhafna slíkra skipa.

Þannig er talið að málum hafi verið háttað með fleiri sjó­menn sem unnu fyrir Samherja í Namibíu. Fyrir vikið greiddu sjó­menn­irnir ekki skatta í Namibíu og Samherji þurfti því ekki að bæta þeim upp tekju­tap vegna slíkra skatt­greiðslna.[links]

Sagt var frá því í byrjun maí að Samherji hefði greitt jafn­virði 340 millj­óna íslenskra króna til fær­eyskra yfir­valda vegna máls­ins.

Í frétt Kringvarps­ins kemur fram að það liggi ekki fyrir hvort Samherji fái kröf­una sam­þykkta og millj­ón­irnar til baka úr þrota­búi Tind­hólms, sem reyndar hefur verið sagt eigna­lítið. Fram kemur í frétt Kringvarps­ins að á skipta­fund­inum hafi aðrar kröfur félaga Sam­herj­a­sam­stæð­unnar í þrotabú Tind­hólms verið sam­þykktar, að and­virði um 12 millj­óna danskra króna alls. Til stendur að ljúka slita­með­ferð­inni þann 8. októ­ber.

Samherji sagði „mistök“ hafa verið gerð

Í yfir­lýs­ingu og afsök­un­ar­beiðni sem birt­ist á vef Samherja 22. júní sagði að í ljós hefði komið að „mis­tök“ hefðu verið gerð í rekstri Samherja, sem tengst hefðu alþjóð­legri skipa­skrá sem haldin væri í Færeyjum.

„Ekki liggur enn fyrir af neinni nákvæmni hver þau mis­tök eru en Samherji hefur greitt trygg­ing­ar­fjár­hæð sem verður til staðar þegar nið­ur­staða er fengin. Við viljum leið­rétta þau mis­tök sem þarna voru gerð og biðj­ast vel­virð­ingar á þeim. Vonandi fæst nán­ari nið­ur­staða í þessi mál fljótt og greið­lega,“ sagði í yfir­lýs­ingu fyr­ir­tæk­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár