Íslenskir rannsakendur hafa aflað upplýsinga um þrjú félög tengd Samherja í Færeyjum

Færeyski skatt­ur­inn stað­festir við Kringvarpið að íslenskir rann­sókn­ar­að­ilar hafi óskað eftir lið­sinni vegna rann­sóknar á Sam­herj­a­skjöl­unum. Félögin sem íslensk yfir­völd spurð­ust fyrir um eru öll í slita­með­ferð.

Færeyska Kringvarpið birtir annað kvöld heimildaþátt sem ber nafnið Teir ómettiligu og fjallar m.a. um hvernig rannsókn á meintum brotum Samherjasamstæðunnar í Namibíu teygir sig til Færeyja.
Færeyska Kringvarpið birtir annað kvöld heim­ilda­þátt sem ber nafnið Teir ómettiligu og fjallar m.a. um hvernig rann­sókn á meintum brotum Sam­herj­a­sam­stæð­unnar í Namibíu teygir sig til Færeyja. Mynd: Úr stiklu Kringvarpsins.

Íslenskir rann­sókn­ar­að­ilar hafa verið í sam­bandi við Taks, fær­eyska skatt­inn, og óskað eftir upp­lýs­ingum um þrjú félög tengd Samherja sem eru skráð hafa verið í Færeyjum. Þetta kemur fram í frétt fær­eyska Kringvarps­ins í dag.

Félögin þrjú heita Tind­hólmur, Harengus og Scombrus og munu hafa verið í hluta­eigu dótt­ur­fé­laga Sam­herj­a­sam­stæð­unnar sem skráð eru á Kýpur. Annað kvöld mun fær­eyska sjón­varpið taka til sýn­inga heim­ilda­þátt sem ber heitir „Teir ómettiligu“ sem útlagst gæti sem „Hinir óseðj­andi“ á íslenskri tungu.

Félögin þrjú í slitameðferð

Samherji hefur tengst fær­eyskum sjáv­ar­út­vegi allt frá árinu 1994, en þá stofn­aði fyr­ir­tækið útgerð­ar­fé­lagið Fram­herja í félagi við Fær­ey­inga. Þor­steinn Már Bald­vins­son var stjórn­ar­for­maður félags­ins þar til í nóv­em­ber 2019, en hann sagði sig frá því hlut­verki eftir umfjöllun um meintar mútu­greiðslur og fleira í starf­semi Samherja í Namibíu.

[adspot]

Samkvæmt eft­ir­grennslan Kjarnans í fær­eysku fyr­ir­tækja­skránni, Skrá­set­ingu Færeyja, hefur félög­unum þremur sem íslenskir rann­sókn­ar­að­ilar leit­uðu upp­lýs­inga um hjá fær­eyska skatt­inum öllum verið stefnt í slita­með­ferð, en það var gert í nóv­em­ber og des­em­ber árið 2020.[links]

Egill Helgi Árnason, einn þriggja Íslend­inga sem nú sæta ákæru vegna Sam­herj­a­máls­ins á namibískri grundu, sat í stjórnum fær­eysku félag­anna þriggja frá 2015 og þar til snemma árs 2019, sam­kvæmt til­kynn­ingum til fær­eysku fyr­ir­tækja­skrár­innar.

Þorsteini Má bregður fyrir í auglýsingu

Í stiklu sem Kringvarpið hefur birt á sam­fé­lags­miðlum í dag kemur lítið fram um vænt­an­legt efni þátt­ar­ins, en sam­kvæmt því sem segir í frétt Kringvarps­ins í dag fjallar þátt­ur­inn meðal ann­ars um hvernig rann­sókn á starf­semi Samherja í Namibíu teng­ist til Færeyja. Í stiklunni má sjá for­stjóra Samherja bregða fyrir.

Hér­aðs­sak­sókn­ari og skatt­rann­sókn­ar­stjóri vinna að rann­sókn Sam­herj­a­máls­ins hér á landi, en ekki kemur fram í frétt Kringvarps­ins hvort emb­ætt­anna óskaði lið­sinnis fær­eyska skatts­ins. Í frétt Kringvarps­ins er ein­ungis talað um að íslenska lög­reglan hafi sett sig í sam­band.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.

16 mín. lestur

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár