Gunna: Stór kona í Íslandssögunni

Guðrún Ögmunds­dóttir kom í gegn bylt­ingu á rétt­ar­stöðu minni­hluta­hópa á Íslandi.

Gunna: Stór kona í Íslandssögunni
Guðrún Ögmuns­dóttir Lést á gaml­árs­dag, 69 ára gömul, en áhrif hennar lifa áfram. Mynd: Hinsegindagar.is

Guðrún Ögmunds­dóttir var ekki aðeins hjarta­hlý og rétt­sýn, eins og flestir muna hana. Hún var líka raunsæ, nagli og töffari. Og skap­laus var hún ekki.

Hér verður brugðið upp svip­mynd af Guðrúnu, sem lézt á gaml­árs­dag 2019 eftir snarpa bar­áttu við krabba­mein, aðeins 69 ára gömul. Myndin er einkum af hinni opin­beru per­sónu, sumsé hvernig Guðrún birt­ist í verkum sínum sem kjör­inn full­trúi í borg­ar­stjórn og á Alþingi.

En líka sitt­hvað fleira.

Gunna

Fyrst þó þetta: Sá sem skrifar hér naut þess að eiga Guðrúnu að vini svo ára­tugum skipti. Það litar áreið­an­lega þessa svip­mynd og rétt er að fólk hafi það í huga við lest­ur­inn.

Og það leiðir af sér annað: Héðan í frá verður talað um Gunnu. Í því felst engin óvirð­ing, þvert á móti. Þannig vildi hún birt­ast fólki. Sem Gunna Ögmunds eða bara Gunna Ö.

Þannig var Gunna.

…
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár