Kristján Þór segir Samherja ekki hafa gert hreint fyrir sínum dyrum

Sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra segir að það sé ákaf­lega dap­urt að horfa upp á þá stöðu sem byggst hafi upp í kringum Samherja. Hann seg­ist hafa verið sam­samaður fyr­ir­tæk­inu og að það sé slæmt að Sam­herj­a­málið veiki til­trú fólks til sjáv­ar­út­veg­ar­ins.

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Kristján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

„Það er ákaf­lega dap­urt, svo ekki sé sterkara að orði kveðið, að horfa upp á þessa stöðu sem hefur byggst upp í kringum þetta ágæta fyr­ir­tæki [Samherja]. Ég sagði það strax þegar þetta mál hófst að for­svars­menn þess yrðu að ganga fram fyrir skjöldu og greina þessa stöðu og gera hreint fyrir sínum dyrum. Ég held að flestir sem fylgj­ast með þess­ari umræðu geti verið sam­mála um að það hafi fyr­ir­tæk­inu ekki tek­ist enn þann dag í dag.“

Þetta segir Kristján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, í við­tali við 200 mílur, fylgi­blaði Morg­un­blaðs­ins um sjáv­ar­út­veg, í dag.

Í við­tal­inu segir Kristján Þór að sér þyki vont hvernig umræðan um Samherja smiti út frá sér og hafi áhrif á heila atvinnu­grein, sjáv­ar­út­veg­inn. „Eins frá­bærum árangri og íslenskur sjáv­ar­út­vegur hefur náð á und­an­förnum árum og ára­tugum, þá felur þessi staða í sér að hún veikir til­trú fólks til sjáv­ar­út­vegs­ins sem er mjög slæmt.“

Segist hafa lagt sig fram við að svara

Kristján Þór, sem var stjórn­ar­for­maður Samherja í kringum síð­ustu alda­mót og er per­sónu­legur vinur Þor­steins Más Bald­vins­sonar, for­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins, segir að hann hafi í umræðu um Namib­íu­mál Samherja, sem snú­ast um meintar mútu­greiðslur til að kom­ast yfir kvóta, skatta­snið­göngu og pen­inga­þvætti, verið sam­samaður við­brögðum fyr­ir­tæk­is­ins við mál­inu. „Í póli­tík er ekk­ert spurt um hvort það sé sann­gjarnt eða ekki, en ég hef frá fyrsta degi lagt mig fram um að svara þeim spurn­ingum sem að mér hefur verið beint. Þau svör hafa meira snert fyrri aðkomu mína að fyr­ir­tæk­inu, þá helst þá stað­reynd að ég sat þarna í stjórn fyrir rúm­lega tveimur ára­tugum, en ekki þær ásak­anir sem hafa komið fram á hendur fyr­ir­tæk­inu enda þekki ég þau mál ekki neitt.“

[adspot]Kjarninn greindi frá því í des­em­ber 2020 að Kristján Þór hefði ekki svarað ítrek­uðum fyr­ir­spurnum um „læk“ sem hann setti við færslu á Facebook, sem gagn­rýndi RÚV harð­lega fyrir umfjöllun um Sam­herj­a­málið. Ráð­herr­ann lík­aði við, eða setti „læk“ við, færslu sem birt­ist þann 12. des­em­ber þar sem höf­undur færsl­unnar sagð­ist líta svo á að RÚV færi offari í frétta­flutn­ingi af Samherja og félli „í sömu gryfju og Seðla­bank­inn“. Ekkert svar hefur borist við fyr­ir­spurnum Kjarnans um málið síðan að greint var frá svar­leysi Krist­jáns Þórs.

Löng saga ráðherra og fyrirtækis

Kristján Þór á langa sögu með Samherja og þegar hann tók við sem ráð­herra sjáv­ar­út­vegs­mála árið 2017 kom fram gagn­rýni vegna tengsla hans við fyr­ir­tækið og Þor­stein Má Bald­vins­son, for­stjóra og einn aðal­eig­anda þess. Krist­ján Þór hafði setið í stjórn Sam­herja, þar af í eitt ár sem stjórn­ar­for­mað­ur, á árunum 1996 til 2000.

[links]Hann fór auk þess tví­vegis sem háseti á mak­ríl­veiðar á vegum Sam­herja, ann­ars vegar sum­arið 2010 og hins vegar sum­arið 2012, og þáði laun fyr­ir. Sam­herji styrkti einnig fram­boð Krist­jáns Þórs í próf­kjöri innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins árin 2007 og 2013.

Ráð­herr­ann birti stöðu­upp­færslu á Facebook þann 12. des­em­ber 2017 þar sem hann sagði að sér væri ljúft og skylt að upp­lýsa að hann og Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Sam­herja, hefðu þekkst síðan þeir voru ungir menn. Þar sagði einnig að hann teldi sig „hæfan til þess að taka ákvarð­anir um mál­efni sem snerta sjáv­ar­út­veg­inn á Íslandi í heild sinni. Komi upp mál sem snerta Sam­herja mun ég að sjálf­sögðu meta hæfi mitt í ljósi fram­an­greinds líkt og allir stjórn­mála­menn þurfa að gera þegar fjöl­skyld­u-, vina- og kunn­ingja­tengsl gætu haft áhrif á afstöðu til ein­stakra mála.“

Eftir umfjöllun Kveik­­­s, Stund­arinnar, Wikileaks og Al Jazeera í nóv­em­ber 2019 um starf­semi Samherja í Namibíu var enn á ný fjallað um tengsl ráð­herr­ans við fyr­ir­tækið og var hæfi hans til umræðu. Þegar umfjöll­unin leit dags­ins ljós sagð­ist ráð­herr­ann ekki hafa haft nein afskipti af útgerð­ar­fyr­ir­tæk­inu Samherja síðan hann var í stjórn fyr­ir­tæk­is­ins.

Var sagður „þeirra maður“

Fram kom í fyrr­nefndri umfjöllun að Sam­herj­a­menn hefðu í sam­ræðum við namibíska áhrifa­menn sagt að Kristján væri „þeirra maður“. Kristján Þór sagði við RÚV að Sam­herj­a­menn yrðu sjálfri að svara fyrir hvað þeir hefðu átt við með þeim ummælum.

Jafn­framt kom fram í umfjöllun fjöl­miðla að Kristján Þór hefði hringt í Þorstein Má og í við­tali á RÚV sagð­ist hann bara hafa verið að „spyrja hvernig honum liði ein­fald­lega“.

Frá því var síðan greint í des­em­ber sama ár að Krist­ján Þór hefði ákveðið á grund­velli stjórn­sýslu­laga að víkja sæti við með­­­­­ferð og töku ákvarð­ana í fjórum stjórn­­­­­sýslu­kærum tengdum Sam­herja. Það gerði hann, að eigin sögn, vegna þess að það skipti ekki ein­ungis máli að sá sem tæki ákvörð­un í mál­unum líti á sitt hæfi heldur líka hvernig hún myndi horfa við borg­­ur­un­­um.

Kristján Þór mælist langóvin­sæl­asti ráð­herra rík­is­stjórn­ar­innar. Alls sögð­ust 61 pró­sent lands­manna vera óánægð með hans störf í nýlegri könnun Gallup og 11 pró­sent sögð­ust vera ánægð með hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár