Efnahagsleg áhrif af opnun landsins „hjúpuð óvissu“

Efna­hags­legar afleið­ingar af því að halda land­inu áfram lok­uðu yrðu „gríð­ar­legar“. Alls óvíst er hvenær hægt yrði að aflétta ferða­tak­mörk­unum án áhættu á að veiran ber­ist hingað á ný. Boðið verður upp á sýna­töku við landa­mæri Íslands frá miðjum júní.

Frá og með 15. júní býðst komufarþegum að fara í sýnatöku í stað sóttkvíar.
Frá og með 15. júní býðst komu­far­þegum að fara í sýna­töku í stað sótt­kvíar. Mynd: Bára Huld Beck

Samtök ferða­þjón­ust­unnar telja mögu­legt að um 250 þús­und ferða­menn komi til lands­ins það sem eftir lifir árs. Hugs­an­lega gætu þeir orðið 300-350 þús­und ef allt fellur með grein­inni. Hags­munir þjóð­ar­bús­ins af 250 þús­und ferða­mönnum nema á bil­inu 20-30 millj­örðum og lík­lega getur sá fjöldi ferða­fólks haldið uppi um 4.000 störfum í grein­inni.

Ef hins vegar er gert ráð fyrir að ferða­vilji fólks í þeim vest­rænu ríkjum sem hafa orðið illa úti í far­aldr­inum sé lít­ill, líkt og nið­ur­stöður kann­anna benda til, og aðeins einn af hverjum fjórum rík­is­borg­urum ann­arra ríkja skili sér til lands­ins þá gæti ferða­mönnum fækkað úr 1,1 milljón á seinni hluta árs í fyrra í 180 þús­und í ár.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í grein­ar­gerð efna­hags- og fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins um efna­hags­leg sjón­ar­mið við losun ferða­tak­mark­ana. Heil­brigð­is­ráð­herra hefur ákveðið að fara að til­lögu sótt­varna­læknis um opnun landamæra með skimun komu­far­þega frá og með 15. júní. Til grund­vallar þeirri ákvörðun stjórn­valda liggur einnig mat á hag­rænum þáttum.

En efna­hags­leg áhrif los­unar ferða­tak­mark­ana eru hjúpuð mik­illi óvissu. Fjöldi ferða­manna sem kemur hingað til lands ræðst ekki aðeins af ákvörð­unum um sótt­varnir. Flug­fram­boð, efna­hags­að­stæður og ferða­vilji íbúa helstu mark­aðs­svæða eru þar ekki síður ráð­andi þættir.

[adspot]

COVID-19 stefnir í að verða stærsta efna­hags­á­fall á heims­vísu í hart­nær hund­rað ár. Alþjóða­stofn­anir og aðrir grein­ing­ar­að­ilar áætla að efna­hags­bat­inn hefj­ist strax á næsta ári en að ferða­þjón­usta verði meðal síð­ustu atvinnu­greina til að jafna sig á áfall­inu. Flug­sam­göngur munu lík­lega ekki ná fyrri styrk fyrr en að nokkrum árum liðnum. Langur tími gæti því liðið þar til fjöldi ferða­manna á Íslandi kemst nálægt tveimur millj­ónum á ný, segir í grein­ar­gerð­inni.

[links]Að minnsta kosti 93 pró­sent jarð­ar­búa hafa síð­ustu mán­uði búið við ferða­tak­mark­anir, þar af þrír millj­arðar í löndum sem hafa alfarið lokað landa­mærum sínum. Yfirvöld mæl­ast víð­ast hvar til þess að íbúar forð­ist óþörf ferða­lög og á flestum stöðum er enn gerð krafa um tveggja vikna sótt­kví við komu. Nú stefnir í að til­slak­anir verði á þessum reglum innan Evrópu en meiri óvissa ríkir um þróun mála í Banda­ríkj­unum og Kína.

Miðað við þetta virð­ast mestar líkur á að ferða­menn frá Evrópu sæki Ísland heim á þessu ári en tals­verð óvissa er um áhuga fólks á ferða­lögum. Kannanir um ferða­vilja í Evrópu, Banda­ríkj­unum og Asíu benda til þess að víða sé fólk hik­andi við að leggja land undir fót eftir að far­ald­ur­inn hefur gengið yfir. Á það sér bæði fjár­hags­legar og heilsu­fars­legar skýr­ingar.

Þrír valkostir metnir

Í grein­ar­gerð­inni er lagt mat á þrjá val­kosti við til­slak­anir á ferða­tak­mörk­unum. Fyrsti kost­ur­inn eru óbreyttar tak­mark­anir þar sem öllum nema þeim sem koma frá Færeyjum og Græn­landi er gert að sæta tveggja vikna sótt­kví við kom­una til lands­ins. Því fyr­ir­komu­lagi þyrfti lík­lega að við­halda í langan tíma til að sótt­varn­ar­mark­mið næð­ust. Efna­hags­legar afleið­ingar slíkrar ráð­stöf­unar yrðu gríð­ar­legar.

Hinir tveir val­kost­irnir snúa að því að opna landa­mærin með eða án kvaða um skimun á Kefla­vík­ur­flug­velli eða vott­orð. Margt virð­ist benda til þess að eft­ir­spurn eftir ferða­lögum til Íslands verði í lág­marki næstu vikur og jafn­vel mán­uði. Því er ekki aug­ljóst að kvaðir um skimun hafi mik­inn fæl­ing­ar­mátt til skamms tíma. Þær gætu hins vegar dregið veru­lega úr fjölda smita sem ber­ast til lands­ins. Í grein­ar­gerð­inni kemur einnig fram að rétt þyki að ferða­menn greiði sjálfir fyrir prófið.

Flestar hag­spár gera ráð fyrir komu fárra ferða­manna það sem eftir lifir árs en mun fleirum á næsta ári. Spá Seðla­banka Íslands frá því í maí og sviðs­myndir fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins gera t.d. ráð fyrir um milljón ferða­mönnum árið 2021. Er þetta aðeins helm­ingur þeirra ferða­manna sem sóttu landið heim árið 2019 og sami fjöldi og árið 2014.

Opin­berar hag­spár eiga það einnig sam­merkt að vænta veru­legrar fjölg­unar árið 2021, ekki síst frá 2. árs­fjórð­ungi þess árs. „Ef landið verður áfram lokað ferða­mönnum munu þær spár ekki ræt­ast og vöxt­ur­inn verða mun þrótt­minni og atvinnu­leysi hátt og við­var­andi,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Vegna hás atvinnu­leysis nú, sér­stak­lega meðal þeirra sem áður störf­uðu í ferða­þjón­ustu, er mik­il­vægt að mati fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins að ferða­þjón­ustan nái sér á strik sem fyrst, jafn­vel þótt starf­semin verði aðeins brot af því sem áður var. „Til þess að svo megi verða er nauð­syn­legt að nákvæm útfærsla los­unar ferða­tak­mark­ana liggi fyrir sem fyrst, því ella halda afbók­anir áfram.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár