Vísbendingar um að botninum sé náð

Heimili á Íslandi hafa sótt um að taka 13 millj­arða króna út úr sér­eign­ar­sparn­aði og um 6.000 heim­ili hafa fengið greiðslu­frest af lánum. Þá hafa vaxta­lækk­anir skilað sér í lægri afborg­unum af lánum, ekki síst til heim­ila.

Með öllu óvíst er hversu hratt ferðaþjónustan mun geta tekið við sér eftir þetta áfall og stutt við efnahagsbatann.
Með öllu óvíst er hversu hratt ferða­þjón­ustan mun geta tekið við sér eftir þetta áfall og stutt við efna­hags­batann. Mynd: Bára Huld Beck

Íslenska hag­kerfið hefur und­an­farna mán­uði staðið frammi fyrir tví­þættu áfalli sem birt­ist ann­ars vegar í skörpum sam­drætti inn­lendra umsvifa vegna far­ald­urs­ins og nauð­syn­legra sótt­varn­ar­að­gerða og hins vegar í gríð­ar­legu tekju­falli í ferða­þjón­ustu sem ekki sér fyrir end­ann á.

Í grein­ar­gerð efna­hags- og fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins um efna­hags­leg sjón­ar­mið við losun ferða­tak­mark­ana kemur fram að vís­bend­ingar séu um að botni inn­lendra efna­hags­um­svifa vegna far­ald­urs­ins og sótt­varn­að­gerða hafi verið náð, að minnsta kosti að sinni. Einka­neysla hefur þegar tekið við sér að nýju,“ enda hefur dregið úr óvissu auk þess sem stjórn­völd hafa veitt heim­ilum og laun­þegum tug­millj­arða stuðn­ing í formi hluta­bóta og greiðslu launa í sótt­kví.“

[adspot]

Þá er bent á að atvinnu­leys­is­bætur séu tekju­tengdar í þrjá mán­uði. Þessu til við­bótar hafa heim­ilin sótt um að taka 13 millj­arða króna út úr sér­eign­ar­sparn­aði, um 6.000 heim­ili hafa fengið greiðslu­frest af lánum auk þess sem vaxta­lækk­anir hafa skilað sér í lægri afborg­unum af lánum, ekki síst til heim­ila. Sam­neyslan vex einnig auk þess sem rík­is­sjóður og rík­is­fyr­ir­tækin munu auka fjár­fest­ingar í ljósi hratt minnk­andi fjár­fest­ingar atvinnu­vega og minni umsvifa í íbúða­bygg­ingum.

[links]„Efna­hags­stefna stjórn­valda hefur miðað að því styðja við inn­lenda eft­ir­spurn þannig að hún hafi tekið mark­vert við sér þegar óum­flýj­an­leg aðlögun á sér stað í greinum ferða­þjón­ustu,“ segir í grein­ar­gerð­inni. Að sama skapi hafi verið gripið til aðgerða til að auð­velda þá aðlögun. Til skemmri tíma muni skipta miklu að nýta megi þá fram­leiðslu­þætti sem byggðir hafa verið upp á und­an­förnum árum.

„Það er þó með öllu óvíst hversu hratt ferða­þjón­ustan mun geta tekið við sér eftir þetta áfall og stutt við efna­hags­batann. Til lengri tíma munu lífs­kjör því ekki síður ráð­ast af því hvernig til tekst að skjóta fleiri stoðum undir hag­kerfið og stuðla að auk­inni fram­leiðni, sem almennt er lág í ferða­þjón­ustu. Í ljósi þess­ara þátta hefur Alþingi sam­þykkt veru­lega aukna fjár­muni í fjár­fest­ingar í innviðum, rann­sóknum og þróun auk tækni­væð­ingar opin­berrar starf­semi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár