Staðfest: Komufarþegum mun standa sýnataka til boða

Bráða­birgða­mat bendir til þess að kostn­aður við sýna­töku á Kefla­vík­ur­flug­velli fyrstu tvær vik­urnar frá rýmkun reglna um komu ferða­manna til lands­ins yrði um 160 millj­ónir króna ef 500 manns koma til lands­ins.

Komufarþegum býðst að fara í sýnatöku frá og með 15. júní.
Komu­far­þegum býðst að fara í sýna­töku frá og með 15. júní. Mynd: EPA

Heil­brigð­is­ráð­herra hefur fall­ist á til­lögu sótt­varna­læknis um breyt­ingu á reglum um komur ferða­manna til Íslands. Komu­far­þegum mun standa til boða að fara í sýna­töku á Kefla­vík­ur­flug­velli frá og með 15. júní og í fram­hald­inu á öðrum helstu landamæra­stöðvum eða fram­vísa jafn­gildu vott­orði að utan. Að öðrum kosti þurfa þeir að fara í tveggja vikna sótt­kví eins og verið hefur.

Samkvæmt hag­rænu mati sem unnið var að beiðni for­sæt­is­ráð­herra og kynnt var í rík­is­stjórn í morgun yrðu efna­hags­legar afleið­ingar þess að við­halda óbreyttu ástandi ferða­tak­mark­ana gríð­ar­legar og rétt að draga úr þeim sam­hliða sótt­varna­að­gerðum, segir í til­kynn­ingu um málið á vef stjórn­ar­ráðs­ins. Tak­mark­aður ferða­vilji í heim­inum skapi aðstæður til að stíga var­færin skref í átt til opn­unar.

Sótt­varna­læknir mun bera meg­in­á­byrgð á fram­kvæmd sýna­töku og grein­ingu sýna í sam­starfi við Heilsu­gæslu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, sýkla- og veiru­fræði­deild Land­spít­ala og Íslenska erfða­grein­ingu en for­sæt­is­ráð­herra hefur skipað sam­hæf­ing­arteymi sem aðstoðar sótt­varna­lækni við und­ir­bún­ing og fram­kvæmd verk­efn­is­ins.

Bráða­birgða­mat bendir til þess að kostn­aður við sýna­töku á Kefla­vík­ur­flug­velli fyrstu tvær vik­urnar frá rýmkun reglna um komu ferða­manna til lands­ins yrði um 160 millj­ónir króna ef 500 manns koma til lands­ins á dag en stefnt er að því að til­kynna á næstu dögum hvað sýna­takan muni kosta far­þega.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár