Sóttvarnalæknir: Áhættan virðist ekki vera mikil

PCR-mæl­ing hjá ein­kenna­lausum ein­stak­lingum er ekki óyggj­andi próf til að greina SARS-CoV-2 veiruna, segir sótt­varna­læknir. 0-4 dögum eftir smit geti nið­ur­staða úr sýna­töku verið nei­kvæð hjá þeim sem er smit­aður.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Lögreglan

Erfitt er að spá fyrir um hver áhættan er á aukn­ingu á sam­fé­lags­legu smiti af völdum COVID-19 hér á landi ef fjöldi ferða­manna eykst að ein­hverju marki, skrifar Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir í minn­is­blaði sínu til heil­brigð­is­ráð­herra vegna ráð­staf­ana um komu ferða­manna hingað til lands eftir 15. júní. Í minn­is­blað­inu er lagt til að þennan dag hefj­ist sýna­taka á landa­mærum Íslands og hefur heil­brigð­is­ráð­herra fall­ist á þá til­lögu.

„Smit á Íslandi hjá ferða­mönnum eru mjög sjald­séð og ekki hefur tek­ist að rekja inn­an­lands­smit til ferða­manna,“ skrifar Þórólfur. „Áhættan virð­ist þannig ekki vera mikil en hún fer að sjálf­sögðu eftir þróun far­ald­urs­ins erlendis, hvaðan ferða­menn eru að koma og hvaða ráð­staf­anir eru við­hafðar hér­lendis til að lág­marka smit­hættu.“

Þórólfur telur lík­legt að sýktir ein­stak­lingar muni grein­ast áfram hér á landi á næstu vikum og mán­uðum en telur full­víst að slíkar sýk­ingar yrðu ekki útbreiddar vegna öfl­ugra inn­viða og reynslu við­bragðs­að­ila sem feng­ist hefur á und­an­gengnum mán­uðum. „Íslenskt heil­brigð­is­kerfi ætti því að vera í stakk búið að fást við frek­ari sýk­ingar svo fremi að þær verði ekki útbreiddar.“

[adspot]

Í minn­is­blað­inu fer Þórólfur yfir stöðu COVID-19 far­ald­urs­ins á Íslandi. Nú er að grein­ast eitt eða jafn­vel ekk­ert til­felli á hverjum degi og lítil merki eru um útbreitt sam­fé­lags­legt smit. „Þennan góða árangur má þakka sam­stöðu Íslend­inga við að fylgja opin­berum til­mælum um sótt­varna­ráð­staf­anir, víð­tækri skimun gegn sjúk­dómnum, öfl­ugri smitrakn­ingu, beit­ingu sótt­kvíar á ein­stak­linga sem grun­aðir hafa verið um sýk­ingu og sam­komu­tak­mörk­unum. Vegna þessa árang­urs hefur verið hægt að aflétta ýmsum tak­mörk­unum inn­an­lands á síð­ustu vikum og er stefnt að því aflétta flestum þeirra á næstu vikum.“

Enn töluverð útbreiðsla erlendis

Að und­an­förnu hefur verið rætt um nauð­syn þess að aflétta ferða­tak­mörk­unum ferða­manna til lands­ins með það fyrir augum að efla atvinnu­líf á nýjan leik og koma þannig í veg fyrir frekara efna­hags­hrun og atvinnu­leysi. Þórólfur bendir í minn­is­blaði sínu á að COVID-19 far­ald­ur­inn sé enn í tölu­verðri útbreiðslu í flestum nálægum löndum og jafn­vel í vexti í mörgum þeirra. Upp­lýs­ingar um útbreiðslu veirunnar í ein­staka löndum eru hins vegar af skornum skammti.

Nokkrir mögu­leikar eru hel­stir í stöð­unni: Opna landa­mæri án tak­mark­ana, halda þeim nán­ast alveg lok­uðum, gera tví­hliða­samn­inga við aðrar þjóðir um aflétt­ingu eða opna landa­mæri með skil­yrðum og reyna að tryggja öryggi með því að skima fyrir veirunni.

[links]„Ef Ísland yrði opnað án tak­mark­ana tel ég næsta víst að veiran myndi ber­ast hingað til lands annað hvort með ferðum Íslend­inga erlendis eða erlendum ferða­mönnum,“ skrifar Þórólfur. „Þetta myndi valda veru­legri hættu á útbreiðslu veirunnar inn­an­lands með miklu álagi á íslenskt heil­brigð­is­kerfi.“

Hann bendir svo á að þó landa­mæri Íslands yrðu lokuð nán­ast að fullu þá myndi það í besta falli seinka því að veiran bær­ist hingað til lands um nokkra mán­uði. „Erlendar rann­sóknir hafa sýnt að landa­mæri þurfa að vera meira en 99% lokuð til að seinka komu veirunnar um ein­hverja mán­uði. Einnig er óvíst hversu lengi lok­unin þyrfti að vara en að lík­indum yrði það að vera þar til veiran yrði útdauð í heim­inum, komið yrði á markað virkt bólu­efni eða full­nægj­andi með­ferð. Slíkt gæti tekið nokkur ár.“

Hljómar vel en ...

Þórólfur segir að þó að hug­mynd um tví­hliða samn­inga milli landa um frjálsar ferðir hljómi vel á yfir­borð­inu sé hún ýmsum vand­kvæðum háð. „Í fyrsta lagi er erfitt að treysta upp­lýs­ingum um raun­veru­lega útbreiðslu veirunnar í öðrum löndum vegna mis­mun­andi grein­ing­ar­að­ferða og fjölda rann­sókna og í öðru lagi er erfitt að ákveða hversu mikil/lítil útbreiðsla smits þarf að vera til að full­yrða um áhættu á útbreiðslu hingað til lands.“

Af þessum sökum þykir sótt­varna­lækni þessi kostur almennt ekki væn­legur að svo stöddu en að hann megi íhuga þegar fram líða stundir.

Í dag geta erlendir ein­stak­lingar/hópar komið hingað til lands til vinnu vegna nauð­syn­legrar starf­semi með því að sækja um aðlag­aða sótt­kví (sótt­kví B). Þessi sótt­kví stendur ein­stak­lingum hins vegar ekki almennt til boða enn sem komið og verða almennir ferða­menn því að fara í hefð­bundna 14 daga sótt­kví. Líklega mun ásókn í þessi úrræði fara vax­andi á næstu vikum og mán­uðum að mati sótt­varna­læknis.

„Ég tel að sótt­kví ein­stak­linga sem koma erlendis frá verði áfram ein mik­il­væg­asta aðferðin til hindra komu veirunnar til lands­ins,“ skrifar Þórólfur. Beiðnum um und­an­þágur muni vafa­laust fjölga mikið á næst­unni og því sé brýnt að fjölga í starfs­liði sótt­varna­læknis til að sinna þessum mála­flokki.

Þórólfur bendir á að heilsu­fars­skoðun ferða­manna eins og hita­mæl­ing og almenn lík­ams­skoðun hafi víða verið notuð á landamæra­stöðvum með litlum árangri en miklum til­kostn­aði. Og sjálfur er hann ekki hrif­inn af þeirri leið.

Hvað varðar fram­vísun vott­orða um fyrri veik­indi af völdum COVID-19 seg­ist Þórólfur líta svo á að ein­stak­lingur sem hafi fengið stað­festa sýk­ingu/smit af völdum COVID-19 með PCR-prófi fyrir meira en 14 dögum sé ónæmur fyrir end­ur­sýk­ingu og beri ekki með sér smit. Því er það hans mat að bjóða eigi ferða­mönnum upp á þann mögu­leika að sýna vott­orð um yfir­staðin veik­indi. „Engar ferða­hömlur þarf því að setja á slíka ein­stak­linga.“

Mæling er ekki óyggjandi próf

Hins vegar seg­ist hann á þessum tíma­punkti ekki telja ráð­legt að treysta nið­ur­stöðum mótefna­mæl­inga erlendis frá og því ekki hægt að bjóða upp á vott­orð um mótefna­mæl­ingu til að verða und­an­þeg­inn frá tak­mörk­unum við kom­una hingað til lands. „Þetta kann hins vegar að breyt­ast á næstu vikum og mán­uðum.“

Þórólfur leggur hins vegar til að stefnt verði að því að hefja skimun með PCR-prófum á landa­mærum á Íslandi 15. júní. „Stefnt verði að því að vinnan standi yfir í a.m.k. 6 mán­uði með mögu­leika á end­ur­skoðun á tíma­bil­inu og að skimunin verði skil­greind sem sótt­varn­ar­ráð­stöfun.“

En hann tekur fram: „PCR-mæl­ing hjá ein­kenna­lausum ein­stak­lingum er ekki óyggj­andi próf til að greina SARS-CoV-2 veiruna. Næmi prófs­ins er hins vegar til muna betra hjá ein­stak­lingum sem komnir eru með ein­kenni um COVID-19 og má áætla að á þeim tíma­punkti sé það um 80-90%. Hins vegar er næmi prófs­ins nán­ast 0% strax eftir að smit hefur átt sér stað og má áætla að það nái 80-90% um 4-5 dögum eftir smit. Þannig getur ein­kenna­laus ein­stak­lingur á fyrstu 0-4 dögum eftir smit greinst með nei­kvætt próf jafn­vel þó hann sé smit­aður. Líkurnar eru hins vegar marg­falt meiri á að ein­stak­lingur með nei­kvætt próf sé raun­veru­lega ekki smit­aður.“

Hættan lágmörkuð

PCR-mæl­ing hjá ferða­mönnum sem koma til lands­ins muni því lág­marka áhætt­una á því að smit­aður ferða­maður kom­ist inn í landið en ekki koma alger­lega í veg fyrir slíkt. Almennt séð mun þurfa að setja sýkta ferða­menn í ein­angrun og útsetta í sótt­kví eins og gert hefur verið við Íslend­inga.

Þessi aðferð, sem heil­brigð­is­ráð­herra hefur nú ákveðið að fara, er nokkuð dýr í fram­kvæmd. Hún þarfn­ast að sögn Þórólfs mik­illar skipu­lagn­ingar, kaupa á tækja­bún­aði og auk­ins mann­afla. Afkasta­geta veiru­fræði­deildar Land­spít­al­ans á næstu fjórum mán­uðum væri hægt að auka úr 500 sýnum í um 4.000 á sól­ar­hring. Þá bendir Þórólfur á að Íslensk erfða­grein­ing sé reiðu­búin til að aðstoða við grein­ingu sýna að upp­fylltum ákveðnum skil­yrðum.

„Þar sem að sýkla- og veiru­fræði­deild LSH getur ein­ungis greint tak­mark­aðan fjölda sýna við núver­andi aðstæður þá er mik­il­vægt að leitað verði til Íslenskrar erfða­grein­ingar um aðstoð við grein­ingu sýna og upp­lýs­inga tækni­mála strax frá upp­hafi. Lagt er til að sýkla- og veiru­fræði­deild LSH verði efld með bættri aðstöðu og tækja­bún­aði ásamt auknum mann­afla með það fyrir augum að hún geti tekið við verk­efn­inu á næstu vikum og mán­uðum.“

Þórólfur skrifar í minn­is­blað­inu að hann telji mik­il­vægt að hefja skimun á landa­mærum nú því mik­il­vægt sé að fá reynslu af skimun­inni á meðan alþjóð­legur ferða­manna­straumur er ekki mik­ill.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár