Lokkandi ferðatilboð í skugga hættu á annarri bylgju

Lægri skattar, nið­ur­greiðslur á ferðum og gist­ingu, ókeypis gist­ing og lækn­is­að­stoð ef til veik­inda kemur eru meðal þeirra aðferða sem lönd ætla að beita til að lokka ferða­menn til sín. Á sama tíma vara heil­brigð­is­yf­ir­völd við hætt­unni á annarri bylgju.

Landamæri margra landa opna á nýjan leik á næstunni. En ferðamennska sumarsins 2020 verður með öðru sniði en venjulega.
Landa­mæri margra landa opna á nýjan leik á næst­unni. En ferða­mennska sum­ars­ins 2020 verður með öðru sniði en venju­lega. Mynd: EPA

Ný hópsmit í Evrópu hafa vakið upp spurn­ingar um hvort of hratt sé verið að fara í aflétt­ingu tak­mark­ana á sam­komum og ferða­lögum fólks. Stjórn­mála­menn hvetja fólk til þess að gefa per­sónu­legum sótt­vörnum áfram mik­inn gaum svo hægt verði að afþíða atvinnu­líf og þar með efna­hag land­anna. Ástæðan er sú að þau hópsmit sem upp hafa komið má mörg rekja til óvar­kárni.

Lönd utan Evrópu hafa verið að glíma við það sama og það hefur komið á dag­inn að það er mikil jafn­væg­is­list að gera til­slak­anir á sam­komum fólks án þess að veiran fari aftur á kreik.

Á sama tíma og þjóðir heims eru margar hverjar að taka skref út úr hörðum aðgerðum sínum og að opna landa­mæri sín og jafn­vel hvetja ferða­menn til að koma varar Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­unin (WHO) við því að COVID-19 gæti fylgt mann­kyn­inu í langan tíma.

[adspot]

„Þessi veira fer kannski aldrei,“ sagði Michael Ryan, læknir og starfs­maður WHO á blaða­manna­fundi í síð­ustu viku. Án bólu­efnis gæti það tekið mörg ár að byggja upp nægj­an­legt hjarð­ó­næmi meðal jarð­ar­búa. „Mér finnst mik­il­vægt að gera sér grein fyrir því að þessi veira gæti orðið land­læg í sam­fé­lögum okkar.“ Benti hann á að það hafi gerst með HIV-veiruna. Hún hafi aldrei dáið út en að með­ferðir við sjúk­dómnum hafi verið þró­aðar svo hægt sé að lifa með henni. Það tók hins vegar mörg ár.

Ryan sagði enn­fremur að þó að bólu­efni finn­ist muni það taka langan tíma að fram­leiða nóg af því og dreifa því svo um heims­byggð­ina. „Hvert ein­asta skref sem er tekið er hlaðið áskor­unum,“ sagði hann.

Hópsmit og skref til baka

Bakslag hefur komið í bar­áttu margra ríkja heims við kór­ónu­veiruna und­an­farnar vikur. Oftast er þar um að ræða ein­angruð hópsmit en engu að síður hefur þurft að afkvía svæði, herða á aðgerðum og brýna fyrir fólki að fara gæti­lega.

Í Wuhan-borg í Kína, þar sem veiran lét fyrst á sér kræla, er hafin alls­herjar skimun með allra íbúa, sem eru ell­efu millj­ónir, eftir að ný smit hófu að grein­ast fyrir nokkrum dögum.

[links]Í Líbanon var sömu­leiðis tíma­bundið aftur gripið til harðra aðgerða eftir að fjöldi smita jókst hratt og ljóst þótti að almenn­ingur væri ekki að fara eftir reglum um fjar­lægð­ar­mörk og fleira sem þeim bar að fylgja í kjöl­far til­slak­ana.

Í Seúl, höf­uð­borg Suður-Kóreu, hefur orðið að gera slíkt hið sama eftir að hópsmit kom til dæmis upp í vöru­húsi risa­stórrar vef­versl­unar í borg­inni og á skemmti­stöðum.

Sömu sögu er að segja frá Ítalíu þar sem smitum fjölg­aði tíma­bundið hratt í kjöl­far til­slak­ana. Í Pakistan varð einnig að herða á aðgerðum á nýjan leik. Fólk streymdi til úti­mark­aða sem leiddi til nokkur hund­ruð nýrra smita.

Opnun landamæra með ýmsu sniði

Landa­mæri margra Evr­ópu­ríkja verða opnuð um miðjan júní. Í þeirra hópi er til dæmis Þýska­land en þar er stefnt að opnun fyrir ríki Evr­ópu­sam­bands­ins sem og EES-land­anna og þar á meðal Íslands. Önnur hafa náð sam­komu­lagi við sína næstu nágranna um opnun þeirra á milli.

Stjórn­völd flestra Evr­ópu­landa vara þó áfram við því að hættan á annarri bylgju far­ald­urs­ins sé til staðar. Með opnun landamær­anna auk­ist hún enn frekar. Til að draga úr þess­ari hættu er, eins og svo ótal sinnum hefur komið fram, nauð­syn­legt að fólk haldi fjar­lægð sín á milli og haldi áfram að við­hafa ítrasta hrein­læti, hand­þvott og sprittun.

Eftir inni­lokun síð­ustu mán­aða eru margir farnir að láta sig dreyma um að pakka ofan í tösku og yfir­gefa heim­ili sín í leit að til­breyt­ingu. Inn­an­lands­ferða­lög eru skilj­an­lega mörgum ofar­lega í huga og skyn­sam­legur kostur en mögu­leikar á utan­lands­ferðum munu aukast hratt næstu vikur og mán­uði.

Ferða­mennska hefur nán­ast þurrkast út vegna far­ald­urs COVID-19 sem hefur komið hart niður á efna­hag margra landa – sumra meiri en ann­arra. Þau lönd sem reiða sig mjög á ferða­þjón­ustu hafa því sum hver sett fram áætl­anir sem miða að því að lokka ferða­menn til sín þegar í sumar.

Fáir á ferli

Evrópa er áfanga­staður um helm­ings allra þeirra sem leggja land undir fót á hverju ári. Þar var gripið til mjög harðra aðgerða vegna COVID-19, harð­ari en víð­ast hvar ann­ars staðar í heim­inum. Á þessum tíma árs fylla ferða­menn yfir­leitt stræti og torg borga á borð við Feneyja, Rómar, Parísar og Barcelona. En nú eru þar fáir á ferli.

Fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins hefur gefið út veg­vísi til aðild­ar­ríkj­anna um hvernig haga megi umgengn­is­reglum á ströndum, hót­elum, tjald­stæðum, veit­inga­húsum og víðar til að tryggja sem best öryggi gesta og starfs­manna. Þá hafa ríki ESB sam­mælst um að sam­keyra rakn­ingar-öpp sín svo vara megi fólk við sýk­ing­ar­hættu á ákveðnum svæðum. „Þetta verður ekki venju­legt sumar, ekki fyrir nokk­urt okkar,“ sagði Margrethe Vestager, vara­fram­kvæmda­stjóri fram­kvæmda­stjórnar ESB. „En þegar við vinnum öll saman og upp­fyllum öll okkar hlut­verk þá þurfum við ekki að þola það að vera föst heima í sumar eða að ferða­þjón­ustan í Evrópu tap­ist algjör­lega í sumar.“

[adspot]

En mikil óvissa ríkir. Löndin eru mis­jafn­lega stödd með til­liti til far­ald­urs­ins. Sumum hefur tek­ist að ná góðum tökum á útbreiðsl­unni – öðrum alls ekki. Sum eru farin að sjá mjög mikla fækkun til­fella dag frá degi – önnur ótt­ast mjög aðra bylgju.

Reglu­legt far­þega­flug er ennþá mjög tak­markað í Evrópu en það kann að breyt­ast upp úr miðjum næsta mán­uði þegar landa­mæri margra ríkja verða opnuð á nýjan leik. Stóra spurn­ingin í því sam­bandi er hvort spurn verður eftir flug­sætum. Hvort ein­hverjir hætti sér í ferða­lög milli landa í því óvissu­á­standi sem enn mun ríkja.

Til að róa taugar áhuga­samra ferða­manna hafa stjórn­völd á Kýpur ákveðið að greiða fyrir upp­hald fólks ef það grein­ist með veiruna eftir að koma til eyj­unnar. Þá segj­ast þau einnig ætla að greiða lyfja­kostnað. Veikist fólk af COVID-19 á meðan dvöl­inni stendur þarf það sem sagt aðeins að greiða fyrir ferða­lagið til og frá eyj­unni. Á Kýpur hafa 939 greinst með kór­ónu­veirusmit og sautján hafa lát­ist.

Grikkir eru að und­ir­búa ferða­sum­arið 2020. Hótel verða opnuð um miðjan júní og landa­mærin 1. júlí. Til að lokka þangað ferða­menn verða skattar á fólks­flutn­inga lækk­aðir um helm­ing í fimm mán­uði. Ferða­menn þurfa ekki að fara í sótt­kví við kom­una til lands­ins en verður skylt að fara í sýna­töku ef fram á það verður farið. Fram hefur komið að yfir­völd ætli að gera stikkprufur meðal ferða­manna.

Niðurlag ástandsins

Grísk yfir­völd gripu snemma í far­aldr­inum til harðra aðgerða og sam­komu­tak­markanna. Um 170 hafa lát­ist vegna COVID-19 í land­inu. „Ferða­manna­tíma­bilið hefst 15. júní þegar hótel geta opnað aftur,“ sagði for­sæt­is­ráð­herr­ann Kyriakos Mitsotakis nýverið. „Látum þetta sumar verða nið­ur­lag ástands­ins [vegna COVID-19].“

Mitsotakis varar þó við því að ferða­lög um Grikk­land í sumar verði „aðeins öðru­vísi“ en fólk eigi að venj­ast. „Kannski verða bar­irnir ekki opnir og ekki eins troðið en þú getur samt fengið frá­bæra upp­lifun á Grikk­landi.“

En Grikkir eru ekki spenntir fyrir að taka á móti hverjum sem er og þess vegna hafa þeir, eins og nokkrar aðrar þjóðir, flokkað lönd heims eftir áhættu. Bretar eru meðal þeirra sem verða að bíða með ferða­lög til Grikk­lands enda far­ald­ur­inn þar enn umfangs­mik­ill.

Í Svart­fjalla­landi hreykja yfir­völd sér af því að vera fyrsta „veiru­fría“ Evr­ópu­landið en þar er nú ekk­ert virkt smit af veirunni. Í dag, 1. júní, verða landa­mærin opnuð fyrir íbúum þeirra landa þar sem færri en 25 virk smit er að finna á hverja 100.000 íbúa. Ísland er á þeim lista. Ferða­menn frá þessum löndum þurfa ekki að fara í tveggja vikna sótt­kví.

„Ég ætla að taka af mér grímuna,“ sagði for­sæt­is­ráð­herr­ann Dusko Markovic er hann fagn­aði því á dög­unum að ekk­ert virkt smit væri í land­inu. Síðast greind­ist þar smit 5. maí. Ferða­þjón­usta er stór atvinnu­grein í Svart­fjalla­landi en stærstur hluti ferða­mann­anna kemur frá Rúss­landi og Bret­landi og þau lönd stand­ast ekki við­miðin sem sett hafa verið um fjölda virkra smita. Staðir sem efn­aðir ferða­menn hafa flykkst til síð­ustu ár verða því lík­lega ekki eins umsetnir. Ferða­skrif­stofur og aðrir sem starfa í grein­inni eygja þó örlitla von um að ein­hverjir ferða­menn komi í sumar en um 19 pró­sent þjóð­ar­innar starfa við atvinnu­grein­ina.

[adspot]

Erlendir ferða­menn hafa þegar verið boðnir vel­komnir til Portú­gals á ný og varð landið þannig eitt fyrsta Evr­ópu­landið til að gera það. „Ferða­menn eru boðnir vel­komnir til Portú­gals,“ sagði utan­rík­is­ráð­herr­ann Santos Silva í síð­ustu viku. Ferða­langar verða ekki allir skikk­aðir í sótt­kví við kom­una en ein­hver heilsu­fars­skoðun mun fara fram á flug­völlum. Portú­galar sluppu betur frá COVID-19 en nágrannar þeirra á Ítalíu og Spáni og hafa því tekið stór skref í aflétt­ingu tak­mark­ana síð­ustu vikur.

Ekki aflýsa

Margar versl­anir og veit­inga­staðir hafa þegar verið opn­aðir en þó með ákveðnum tak­mörk­unum. Einnig hefur verið gripið til ýmissa var­úð­ar­ráð­staf­ana á hót­elum og á strönd­unum en á þeim geta sól­dýrk­endur farið að láta sjá sig á ný í lok vik­unnar. Þeir verða þó að halda 1,5 metra fjar­lægð sín á milli og allir sem koma til lands­ins þurfa að hlaða smitrakn­ing­arappi niður í sím­ann sinn.

Yfirvöld eru þó ekki að búast við því að margir erlendir ferða­menn komi til Portúgal í ár og hafa því hafið mark­aðs­her­ferð undir slag­orð­inu „ekki aflýsa – frest­aðu“ og vona að sum­arið 2021 verði fólk til­búið að leggj­ast í ferða­lög á ný í stórum stíl.

Íbúar á ítölsku eyj­unni Sikiley reiða sig vel­flestir á ferða­mennsku. Yfirvöld á eyj­unni hyggj­ast nið­ur­greiða ferða­lög þangað til að reyna að ýta sum­ar­ver­tíð­inni úr vör af krafti. Áætlunin gerir ráð fyrir að ferða­menn fái þrjár nætur á gisti­stöðum á verði tveggja eða sex nætur á verði fjög­urra. Þá á einnig að gefa ferða­á­vís­anir sem nýta má í ýmis­konar afþr­ey­ingu. Að auki hafa yfir­völd á Sikiley viðrað áform sín um að nið­ur­greiða flug­far­gjöld en það hefur þó ekki enn verið stað­fest. Þar sem nokkur óvissa ríkir enn um þróun far­ald­urs­ins á Ítalíu hefur ekki verið gefið út hvenær þetta til­boð taki gildi.

Rík­is­stjórn Ítalíu til­kynnti nýlega að frá og með 3. júní þurfi ferða­menn frá löndum ESB ekki að fara í sótt­kví. Þau segj­ast gera sér grein fyrir að þessu muni fylgja ein­hver áhætta. Til­slak­an­irnar eru gerðar til að reyna að koma ferða­þjón­ust­unni í gang að nýju. For­sæt­is­ráð­herr­ann Giuseppe Conte sagði í síð­ustu viku að þessi aflétt­ing gæti þýtt að „kúrfan“ myndi sveigj­ast upp á við á ný. „Við verðum að taka því. Annars getum við aldrei komið [efna­hagnum] af stað aftur.“

Eftir að aflétt­ing tak­mark­ana hófst í byrjun maí varð skyndi­leg aukn­ing í fjölgun smita í þeim hér­uðum sem höfðu orðið verst úti í far­aldr­inum í upp­hafi.

Í Frakk­landi hafa nokkur skref verið tekin í því að aflétta aðgerðum vegna far­ald­urs­ins. Síðan þá hafa komið upp nokkur hópsmit, m.a. á gisti­stöðum. Veit­inga­staðir og barir hafa verið opn­aðir en við­skipta­vinum má aðeins bjóða borð utandyra. Franska rík­is­stjórnin hefur enn ekki gefið út hvenær erlendum ferða­mönnum verður hleypt inn í landið en nýjum smitum hefur farið hratt fækk­andi síð­ustu daga.

Hópsmit hafa komið upp á veit­inga­stað í Þýska­landi sem og í nokkrum kjöt­vinnslum í land­inu. Í einni þeirra reynd­ust 270 af 1.200 starfs­mönnum með COVID-19. Í Berlín hafa barir verið opn­aður að nýju og þó að smitum fari fækk­andi dag frá degi þá hefur R-töl­unni, sem gefur til kynna hversu marga hver og einn sýktur er tal­inn hafa smitað, hefur hækkað upp í 1,37.

[adspot]

Sömu sögu er að segja frá Spáni. Þegar verst lét voru yfir 7.500 ný til­felli að grein­ast dag­lega en nú eru þau um 400-500 á dag. En hópsmit hafa verið að skjóta upp koll­inum. Stjórn­völd vilja fara var­lega en hafa sagt að ef þró­unin haldi áfram í þessa átt von­ist þau til að geta opnað landa­mæri sín fyrir erlendum ferða­mönnum um miðjan júní. Þau ætla hins vegar ekki að hleypa hverjum sem er yfir þau heldur flokka lönd eftir áhættu. Eru Norð­ur­löndin í hópi þeirra landa þar sem áhættan er talin lítil eins og staðan er í dag.

Raunveruleg hætta

Yfirvöld í löndum Asíu hafa verið var­kár­ari í yfir­lýs­ingum sínum. Til Taílands verður lík­lega ekki hægt að ferð­ast á næst­unni. Þar á að bíða og sjá hvernig far­ald­ur­inn heldur áfram að þró­ast. Og þegar ferða­þjón­ustan fer aftur af stað verður það með ýmsum tak­mörk­unum, bæði á hverjir geta ferð­ast til lands­ins og hvert þeir geta farið innan þess.

Í Banda­ríkj­unum hafa mörg ríki tekið til við að aflétta tak­mörk­unum á ferðum og sam­komum fólks. „Það er raun­veru­leg hætta á því að þú setjir af stað far­aldur sem þú getur kannski ekki náð tökum á,“ sagði Anthony Fauci, ráð­gjafi Banda­ríkja­stjórnar í smit­sjúk­dóma­vörnum, í síð­ustu viku. Um 1,5 milljón smit af veirunni hafa verið stað­fest í land­inu og yfir 82 þús­und hafa lát­ist.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár