Danmörk opnuð fyrir Íslendingum 15. júní og von á góðum fréttum frá Noregi

Danmörk opnar landa­mæri sín fyrir Íslend­ingum, Norð­mönnum og Þjóð­verjum 15. júní. Fyrst um sinn verður ferða­mönnum þó bannað að gista í Kaup­manna­höfn og þeir beðnir um að sýna fram á að þeir hafi sex nátta dvöl bók­aða í land­inu.

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra segir að von sé á góðum tíðindum frá Noregi líka.
Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra segir að von sé á góðum tíð­indum frá Noregi líka. Mynd: Bára Huld Beck

Danmörk hefur ákveðið að opna landa­mæri sín fyrir Íslend­ingum, Þjóð­verjum og Norð­mönnum frá og með 15. júní. Frá þessu greindi Mette Frederik­sen for­sæt­is­ráð­herra lands­ins á blaða­manna­fundi í dag. Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra segir við Kjarnann að von sé á góðum tíð­indum frá Noregi líka.

Allir sem ferð­ast til Dan­merkur eftir 15. júní verða að sýna fram á að þeir hafi bókað sér að minnsta kosti sex nátta dvöl í land­inu, en þó ekki í Kaup­manna­höfn. Danska stjórnin ekki, þar sem í höf­uð­borg­inni eru flest virk smit kór­ónu­veirunnar.

Samkvæmt frétt DR sagði heil­brigð­is­mála­ráð­herr­ann Magnus Heunicke á blaða­manna­fundi að ferða­menn mættu þó fara til Kaup­manna­hafnar í dags­ferðir og skoða sig um og fara á veit­inga­staði. En þeir verða að gista ann­ars staðar.

Von á góðum tíðindum frá Noregi líka

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra segir í sam­tali við Kjarnann að hann hafi fengið að heyra af því í gær að von væri á góðum fréttum frá Danmörku í dag og nú hafa þær verið kynntar, en Guð­laugur Þór ræddi opnun landamæra á Norð­ur­lönd­unum á rík­is­stjórn­ar­fundi í morgun. Hann segir að við megum eiga von á jákvæðum fréttum frá Noregi líka.

Guð­laugur Þór seg­ist einnig hafa fengið það stað­fest í morgun að Færeyjar opni fyrir Íslend­ingum þann 15. júní líka. Þá verður Íslend­ingum heim­ilt að fara til Eist­lands frá og með 1. júní.

Einnig verður Ísland í hópi þeirra ríkja sem Þjóð­verjar munu opna fyrir, sam­kvæmt frum­varpi sem þar liggur fyrir þing­inu.

Utan­rík­is­ráð­herra segir að það megi meðal ann­ars þakka öfl­ugri hags­muna­gæslu sem haldið hafi verið upp fyrir Íslands hönd varð­andi opnun landamæra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár