Möguleikar á ferðalögum milli landa aukast hratt

Í var­færnum skrefum er hvert landið á fætur öðru að aflétta tak­mörk­unum á ferða­lögum í þeirri von að lokka til sín erlenda gesti. Enginn býst þó við því að fjöld­inn verði sá sami og fyrir ári.

Fámennt er á grískum ströndum um þessar mundir.
Fámennt er á grískum ströndum um þessar mundir. Mynd: EPA

Ferða­þjón­usta er mik­il­væg atvinnu­grein margra landa um allan heim. Á hverju ári ferð­ast hund­ruð millj­óna manna heims­horna á milli til að kynn­ast nýjum stöðum, fram­andi menn­ingu, njóta sólar eða fjöl­breytts dýra­lífs. En far­aldur kór­ónu­veirunnar hefur sett ferða­þjón­ustu um víða ver­öld í upp­nám. Útgöngu­bönn, sam­komu­bönn, strangar tak­mark­anir á flugi milli landa og þar fram eftir göt­unum hafa gert það að verkum að þó að fólk vilji gjarnan ferð­ast hefur það síð­ustu mán­uði verið næstum ómögu­legt.

En á næstu dögum og vikum ætla mörg ríki, meðal ann­ars í Evrópu, að gera ákveðnar til­slak­anir svo að ferð­ast megi á ný. Sum ætla að gera greið­fært til næstu nágranna­landa, mynda nokk­urs konar ferða­banda­lög, önnur fara enn var­færn­ari skref og opna landa­mærin fyrir íbúum eins lands.

Þó að mögu­leik­inn á ferða­lagi sé fyrir hendi er ekki þar með sagt að allir telji óhætt að ferð­ast. Frönsk stjórn­völd vilja til dæmis síður að Frakkar fari til ann­arra landa í sumar. Heldur hvetja þau til ferða­laga inn­an­lands. Banda­ríkja­menn eru ennþá hvattir til að ferð­ast ekki að nauð­synja­lausu, svo dæmi séu tekin. Veiran hefur greinst í 177 löndum heims­ins og í sumum þeirra er far­ald­ur­inn enn mjög útbreiddur og jafn­vel ekki búinn að ná hámarki.

[adspot]

Ytri landa­mæri Evr­ópu­sam­bands­ins eru enn lokuð og verða það til 15. júní eða þar til annað kemur í ljós. Fram­kvæmda­stjórn sam­bands­ins hefur gefið út ráð­legg­ingar um hvernig opna megi landa­mærin og sam­tímis gæta öryggis, m.a. með sýna­tökum. Mælst er til þess að ástandið verði ekki notað til að mis­muna borg­urum ólíkra landa en að ef gögn um útbreiðslu far­ald­urs­ins séu sam­bæri­lega upp­byggð milli landa sé hægt að nota þau til að opna fyrr fyrir borg­urum sumra ríkja en ann­arra. Þá ítrekar fram­kvæmda­stjórnin að öryggi íbúa og ferða­manna séu höfð að leið­ar­ljósi í allri ákvarð­ana­töku.

Faraldurinn getur blossað upp aftur

Hættan á annarri og svo í kjöl­farið þriðju bylgju far­ald­urs­ins er fyrir hendi. Ljóst er að fólk sem sýnir engin ein­kenni sjúk­dóms­ins getur verið með veiruna og smitað aðra. Sýna­tökur við landa­mæri, líkt og íslensk stjórn­völd hafa boðað, eru því hluti af þeim aðgerðum sem ráð­ist verður í þegar lífi verður á ný blásið í ferða­lög fólks.

Einn stærsti óvissu­þátt­ur­inn, fyrir þá sem treysta sér í ferða­lög milli landa yfir höfuð, er auð­vitað hvernig hægt er að kom­ast á áfanga­stað. Flug­ferðir eru í augna­blik­inu mjög tak­mark­aðar en með opnun landamæra er þó von­ast til þess að flug­fé­lög taki við sér og hefji á ný áætl­un­ar­flug í ein­hverjum mæli.

Hér að neðan má finna nokkur dæmi um fyr­ir­ætl­anir ríkja næstu vikur og mán­uði.

Stjórn­völd í Tékk­landi stefna að því að losa um ferða­tak­mark­anir til Mið-Evrópu og ann­arra ríkja þar sem tek­ist hefur að ná tökum á far­aldr­inum frá og með 8. júní. Tékkland var á meðal fyrstu Evr­ópu­ríkj­anna sem lok­uðu landa­mærum sínum vegna far­ald­urs­ins. Meðal landa sem opna á fyrir eru Aust­ur­ríki, Króatía og Slóvakía sem hafa öll tekið skref í sömu átt. Þá verða Pólland og Þýska­land einnig fljót­lega á lista yfir þau lönd sem Tékkar geta ferð­ast til og frá. Í júlí er svo stefnt að því að þeir geti ferð­ast til Grikk­lands.

Grikk­land slapp betur en mörg önnur lönd undan far­aldr­inum. Stjórn­völd von­ast til að fá til sín fyrstu erlendu ferða­menn­ina um miðjan júní en milli­landa­flug hefst lík­lega í lok þess mán­aðar. Líkt og víða ann­ars staðar þurfa ferða­menn að fara í sýna­töku á flug­völlum við kom­una til lands­ins.

Stjórn­völd á eyj­unni Möltu í Mið­jarð­ar­hafi hafa einnig hug á því að opna „öruggar leiðir“ til ann­arra svæða. Ferða­mála­ráð­herr­ann segir að settar verði ýmis konar reglur þessu tengt svo sem um fjar­lægð­ar­mörk í flugi, sam­skiptum á milli fólks og þar fram eftir göt­unum.

Spán­verjar ætla að fara að taka á móti erlendum ferða­mönnum í júlí. Spánn er eitt þeirra landa sem fór einna verst út úr far­aldr­inum. Gripið var til strangra aðgerða og útgöngu­banna þar í landi en nú þegar farið er að losa um þær er opnun lands­ins fyrir ferða­mönnum hluti af jöfn­unni.

„Frá og með júlí­mán­uði á Spánn von á ykkur,“ sagði for­sæt­is­ráð­herr­ann Pedro Sánchez í gær. „Það er komið að þessu... erlendir gestir geta farið að skipu­leggja frí á Spáni.“

Um 80 millj­ónir ferða­manna koma alla jafnan til Spánar ár hvert. Höggið sem ferða­þjón­ustan þar í landi hefur orðið fyrir er gríð­ar­legt og miklir hags­munir því í húfi þegar kemur að því að opna fyrir ferða­mönnum að nýju. Að minnsta kosti milljón manna sem störf­uðu í grein­inni misstu vinn­una á síð­ustu mán­uðum.

Þýska­land hefur þegar opnað landa­mæri sín að ákveðnu leyti og frá og með miðjum júní er stefnt að því að nær allar hömlur heyri sög­unni til. Þýska flug­fé­lagið Luft­hansa ætlar á næstu vikum að hefja áætl­un­ar­flug til tutt­ugu áfanga­staða. Flogið verður til Mallorca, Krítar, Feneyja og Ibiza svo dæmi séu nefnd.

Yfirvöld á Seychelles-eyjum í Ind­lands­hafi ætla að fara rólega í sak­irnar og stefna á að hleypa aðeins ísra­elskum ferða­mönnum til sín í fyrstu.

Í byrjun júní geta ferða­menn svo heim­sótt Cancun og fleiri vin­sæla áfanga­staði í Mexíkó er flug­vellir lands­ins verða opn­aðir fyrir milli­landa­flugi.

Ferða­menn geta farið að heim­sækja Ítalíu á ný í byrjun júní. Landið varð mjög illa úti í far­aldr­inum og millj­ónir fóru ekki út úr húsi nema af brýnni nauð­syn í tvo mán­uði. Í fyrstu er lík­legt að aðeins aðrir Evr­ópu­búar geti farið þangað án mik­illa vand­kvæða en ytri landa­mæri ESB verða lokuð til 15. júní þar til annað kemur í ljós.

Á ítölsku eyj­unni Sikiley hefur verið brugðið á það ráð að nið­ur­greiða flug­far­gjöld áhuga­samra gesta sem og kostnað við gist­ingu.

Nokkrar eyjar í Kar­ab­íska haf­inu hafa einnig hug á því að lokka til sín gesti fljót­lega og fyr­ir­huga opnun flug­valla í byrjun næsta mán­aðar. Það vilja t.d. stjórn­völd Banda­rísku jóm­frúa­eyja og Saint Lucia gera.

Bretar eru í miðjum far­aldri og strangar sam­komu­tak­mark­anir eru enn í gildi. For­sæt­is­ráð­herr­ann Boris Johnson greindi nýverið frá því að í byrjun júlí sé stefnt að opnun hót­ela og ferða­manna­staða.

Ferða­menn geta svo farið að heim­sækja Ísland aftur að nýju án þess að þurfa að fara í tveggja vikna sótt­kví upp úr miðjum júní. Allir sem koma til lands­ins þurfa að fara í sýna­töku á Kefla­vík­ur­flug­velli eða fram­vísa við­ur­kenndu vott­orði um að þeir séu ekki sýktir.

Margir óvissuþættir fyrir hendi

Fleiri lönd eru í svip­uðum pæl­ingum og þau sem hér að ofan eru talin. Ljóst er að ferða­lög milli Evr­ópu­landa gætu orðið ein­hver á næstu vikum en hvað aðra heims­hluta varðar er óvissan mikil, aðal­lega vegna þess að þó að áhug­inn á ferða­lögum sé fyrir hendi er ekki víst að þangað sé hægt að kom­ast.

Fyrsta skrefið er að ákveða að opna landa­mærin. Það næsta er bíða og sjá hvort að flug­fé­lögin taki við sér þó löskuð séu eftir efna­hags­þreng­ingar síð­ustu vikna. Allt mun það fara eftir því hver eft­ir­spurnin verður. Þriðja skrefið er svo að beita aðgerðum til að draga sem mest úr hætt­unni á nýjum smitum. Og krossa fingur og vona að önnur bylgja far­ald­urs­ins fylgi ekki auknum ferða­lögum fólks landa á milli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár