Útlit var fyrir fjórðungs fjölgun hótelherbergja

Nýting hót­el­her­bergja hér á landi hafði versnað fyrir útbreiðslu far­ald­urs­ins en þrátt fyrir það var útlit fyrir allt að fjórð­ungs fjölgun hót­el­her­bergja 2020-2022. Hætt var því við að nýt­ing hót­ela hefði enn versnað þótt COVID-19 hefði ekki komið til.

Ferðaþjónustufyrirtæki réðust í verulegar fjárfestingar á síðustu árum.
Ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki réð­ust í veru­legar fjár­fest­ingar á síð­ustu árum. Mynd: Bára Huld Beck

Aðlögun ferða­þjón­ust­unnar að nýjum veru­leika eftir COVID-19 gæti reynst erfið, ekki síst vegna veru­legrar fjár­fest­ingar und­an­farin ár sem enn sér varla fyrir end­ann á og byggð­ist á vænt­ingum sem eru fjarri fram­tíð­ar­horfum grein­ar­innar næstu miss­eri. Áfallið bæt­ist við rekstr­ar­vanda ferða­þjón­ust­unnar fyrir útbreiðslu heims­far­ald­urs­ins.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í grein­ar­gerð efna­hags- og fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins um losun ferða­tak­mark­ana hingað til lands sem stefnt er að um miðjan mán­uð­inn. Þá mun komu­far­þegum bjóð­ast að fara í sýna­töku í stað tveggja vikna sótt­kvíar.

[adspot]

Árið 2019 komu tvær millj­ónir ferða­manna hingað til lands eftir nokkra fækkun frá því að fjöldi þeirra náði hámarki árið 2018. Útflutn­ings­verð­mæti ferða­þjón­ust­unnar var nærri 470 millj­örðum króna í fyrra eða 35 pró­sent heild­ar­út­flutn­ings. Þjóð­hags­legur ávinn­ingur af hverjum ferða­manni var nærri 100.000 krónur að með­al­tali.

Í árs­byrjun og áður en far­ald­ur­inn reið yfir gerðu flestir grein­ing­ar­að­ilar ráð fyrir að fjöldi ferða­manna myndi nærri standa í stað milli ára. Bók­un­ar­staða hót­ela fyrir sum­arið var betri en á sama tíma í fyrra en á móti vó að bók­un­ar­staða fyrir haustið var síðri.

Erfiðar rekstraraðstæður fyrir COVID

Í grein­ar­gerð ráðu­neyt­is­ins segir að þrátt fyrir mik­inn fjölda ferða­manna hafi rekstr­ar­að­stæður í grein­inni verið erf­iðar og nokkur hag­ræð­ing átt sér stað. Sem dæmi fækk­aði þeim sem störf­uðu við ferða­þjón­ustu á tíma­bil­inu mars til októ­ber á síð­asta ári um 2.000 frá sama tíma ári áður. Fækkun starfa var mest hjá flug­fé­lögum eða um og yfir 20 pró­sent en störfum fækk­aði einnig í rekstri gisti­staða, í veit­inga­þjón­ustu, hjá ferða­skrif­stofum og í öðrum atvinnu­greinum tengdum ferða­þjón­ustu.

[links]Þá hafði nýt­ing hót­el­her­bergja versnað fyrir útbreiðslu far­ald­urs­ins en þrátt fyrir það var útlit fyrir allt að fjórð­ungs fjölgun hót­el­her­bergja árin 2020-2022. Hætt var því við að nýt­ing hót­ela hefði enn versnað tals­vert næstu ár þótt ekki hefði komið til far­ald­urs­ins, segir í grein­ar­gerð­inni.

Und­an­farin ár má áætla að eitt starf í ferða­þjón­ustu hafi orðið til fyrir hverja 70-80 ferða­menn sem heim­sækja landið. „Ef við­halda á fjölda starfa í ferða­þjón­ustu þrátt fyrir að ferða­mönnum fjölgi hægt eftir að ferða­tak­mörk­unum er aflétt er ljóst að stærð­ar­hag­kvæmni í grein­inni mun minnka, störfin verða ekki eins verð­mæt og þau sem voru fyrir og laun þurfa að vera lægri að öðru óbreyttu,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Spá 60-70 prósent samdrætti

Ferða­sam­tök Sam­ein­uðu þjóð­anna spá 60-80 pró­sent sam­drætti í ferða­þjón­ustu á heims­vísu á þessu ári sam­an­borið við árið 2019. Spáin versnar því lengur sem ferða­tak­mark­anir vara. Mörg þeirra ríkja sem verst hafa orðið úti í heims­far­aldri COVID-19 gegna lyk­il­hlut­verki á ferða­þjón­ustu­mark­aði, ýmist sem áfanga­staðir eða upp­spretta ferða­manna. Þeirra á meðal eru Banda­ríkin, Bretland og Kína sem öll eru meðal mik­il­væg­ustu mark­aða íslenskrar ferða­þjón­ustu, bæði vegna fjölda ferða­manna og dreif­ingar þeirra innan árs­ins.

[adspot]

Efna­hags­leg áhrif COVID-19 far­ald­urs­ins í þessum ríkjum munu ótví­rætt hafa áhrif á eft­ir­spurn eftir alþjóð­legum ferða­lögum. Samkvæmt hag­vaxt­ar­spá Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins (AGS) frá því í apríl er útlit fyrir að sam­dráttur efna­hags­um­svifa í ár verði meiri en í kjöl­far fjár­mála­hruns­ins á öllum helstu mark­aðs­svæðum ferða­þjón­ust­unnar.

„Ef ferða­þjón­ustan tekur ekki við sér, hvorki á þessu ári né því næsta, er ljóst að gríð­ar­leg til­færsla þarf að verða á fram­leiðslu­þáttum til að hag­vöxtur geti tekið við sér að nýju,“ segir í grein­ar­gerð ráðu­neyt­is­ins. „Hætt er við langvar­andi atvinnu­leysi stórs hluta þeirra ríf­lega 23.000 ein­stak­linga sem störf­uðu í ferða­þjón­ustu fyrir far­ald­ur­inn kom­ist hótel og önnur fram­leiðslu­tæki ferða­þjón­ust­unnar ekki í arð­bæra nýt­ingu.“

Ef landið yrði áfram lokað ferða­mönnum yrði ferða­þjón­ustan „aðeins svipur hjá sjón“ segir í grein­ar­gerð­inni. Upp­sögnum í grein­inni myndi lík­lega fjölga enn frekar og líkur á að fólk verði ráðið að nýju minnkað veru­lega. Um 12 þús­und starfs­menn í ferða­þjón­ustu voru í skertu starfs­hlut­falli í lok apríl sem gæti verið nærri helm­ingur þeirra sem störf­uðu í grein­inni fyrir far­ald­ur­inn. Hefur þeim fækkað um 4.500 fram undir lok maí, m.a. vegna fjölda­upp­sagna stórra ferða­þjón­ustu­að­ila.

Um 8 þúsund útlendingar störfuðu í ferðaþjónustu

Mikill fjöldi erlendra rík­is­borg­ara hefur flutt til lands­ins sam­hliða vexti ferða­þjón­ust­unnar. Á land­inu búa nú ríf­lega 50 þús­und erlendir rík­is­borg­arar. Um 8 þús­und þeirra störf­uðu í ferða­þjón­ustu­tengdri starf­semi á síð­asta ári.

Í grein­ar­gerð­inni kemur fram að ætla megi að stórum hluta þeirra hafi þegar verið sagt upp störfum og enn fleiri, m.a. úr öðrum atvinnu­greinum, muni vafa­laust bæt­ast við á næst­unni. Staða erlendra rík­is­borg­ara á vinnu­mark­aði er að með­al­tali við­kvæm­ari en staða íslenskra rík­is­borg­ara. Án veru­legs bata í ferða­þjón­ustu má reikna með miklu atvinnu­leysi þessa hóps á næstu mán­uðum og jafn­vel árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár