Mynd: Davíð Þór

Varpar nýju ljósi á kvenímyndir úr goðsögnum

Ástr­alska lista­konan Nara Walker end­ur­túlkar sögur af þremur konum úr vest­rænum goð­sögnum á nýjan og vald­efl­andi hátt í nýrri mynd­list­ar­sýn­ingu sinni. Nara seg­ist vera fórn­ar­lamb feðra­veld­is­ins og nýtir reynslu sína sem inn­blástur til að berj­ast gegn kyn­bundnu ofbeldi.

„Þegar ég var ung­lingur og í háskóla átti ég það gjarnan til að nota hend­urnar mínar við list­sköpun, jafn­vel þegar ég var að mála. Í þessu verki byrj­aði ég á að teikna hönd­ina mína á strig­ann, og allt hitt spratt þaðan.“

Svona lýsir Nara Walker, áströlsk lista­kona, upp­sprettu að fyrsta mál­verk­inu sem hún sýnir blaða­manni Stund­ar­innar í stúd­íó­inu sínu og er hluti af vænt­an­legri sýn­ingu hennar. Blóð­rautt hand­far í horn­inu verður að óreiðu­fullri lita­spreng­ingu þar sem dökk form kepp­ast um athygli áhorf­and­ans. Auk hand­ar­fars­ins má finna eitt­hvað sem lík­ist auga, eggi, and­liti, lin­dýri og fleiri óræð form.

Hún segir að þetta hafi verið fyrsta mál­verkið sem hún skap­aði eftir að hafa losnað úr fang­elsi í vor. Nara var sak­felld í fyrra fyrir stór­fellt ofbeld­is­brot eftir að hafa bitið bút …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Athugasemdir eru ekki leyfðar við þessa grein.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár