Vísbendingar um að COVID-19 hafi náð hámarki í norðausturhluta Asíu

Vís­inda­menn segja of snemmt að spá fyrir um hvaða áhrif hlý­indi vors­ins munu hafa á nýju kór­ónu­veiruna. Aðrar skyldar veirur þríf­ast betur í kulda. Sextíu hafa greinst með veiruna hér á landi.

Veiran hefur verið einna skæðust í Íran. Þar hafa 237 látist af hennar völdum.
Veiran hefur verið einna skæð­ust í Íran. Þar hafa 237 lát­ist af hennar völdum. Mynd: EPA

Svo virð­ist sem hægt hafi á útbreiðslu nýju kór­ónu­veirunnar sem veldur COVID-19 í bæði Kína og Suður-Kóreu. Þetta vekur vonir um að hámarki far­ald­urs­ins sé náð í þessum heims­hluta. Veiran er upp­runn­inn í mið­hluta Kína og fyrstu til­fellin greindust þar í des­em­ber. Þaðan hefur hún dreifst heims­horna á milli og var ástandið einna verst í Suður-Kóreu við upp­haf far­ald­urs­ins.

Á sama tíma og dregið hefur úr fjölda smit­aðra dag frá degi í þessum löndum eru önnur að sjá mikla fjölgun til­fella, m.a. Íran og Ítalía.

Til ýmissa var­úð­ar­ráð­staf­ana hefur verið gripið vegna þessa. Írönsk stjórn­völd hafa til dæmis sleppt um 70 þús­und föngum úr fang­elsum. 237 dauðs­föll af völdum veiru­sýk­ing­ar­innar eru nú stað­fest í Íran.

Á Ítalíu eru um 16 millj­ónir manna í sótt­kví. Staðfest er að 463 hafi lát­ist vegna veirunnar þar í landi af þeim tæp­lega 9.200 sem hafa smit­ast. Um 7.400 hafa smit­ast í Suður-Kóreu en stað­fest dauðs­föll eru þó mun færri eða 53. Lang­flest dauðs­föll hafa orðið í Kína eða rúm­lega 3.000.

Heil­brigð­is­ráð­herra Suður-Kóreu seg­ist nú vona að hámarki far­ald­urs­ins þar í landi sé náð. Vís­bend­ing þar um sé sú að síð­ustu daga hafi færri til­felli greinst en vik­urnar þar á undan. Hann hvetur lönd þar sem veiran er nú að grein­ast í til að grípa til ráð­staf­ana strax.

Stjórn­völd í Suður-Kóreu lögðu áherslu á það um leið og veiran kom til lands­ins að almenn­ingur ætti greiðan aðgang að grein­ing­ar­prófum og að þau væru ókeypis. Um 15 þús­und sýni voru tekin á hverjum degi og sam­an­lagt hafa tæp­lega 200 þús­und sýni verið tekin.

Tvö smit kór­óna­veirunnar greindust til við­bótar hér á landi í morgun. Báðir þeir ein­stak­lingar komu með flugi til lands­ins frá Verona á laug­ar­dag.

Því hafa fimm manns úr því flugi greinst með veiruna. Alls eru greind smit hér­lendis orðin 60 tals­ins - 50 smit hjá fólki sem kom erlendis frá og 10 sem smit­ast hafa inn­an­lands.

Hvaða áhrif mun vorið hafa?

Eftir að Donald Trump Banda­ríkja­for­seti skrif­aði á Twitter í febr­úar að vel myndi takast að hefta útbreiðsl­una, sér­stak­lega í ljósi þess að veðrið færi hlýn­andi, fóru margir að velta fyrir sér hvort að vorið myndi færa okkur góð tíð­indi í þessum málum.

Vís­inda­menn segj­ast ekki með fullu geta sagt til um hvort að vor­blíða muni hafa áhrif á útbreiðsl­una. Í grein Tel­egraph kemur fram að flestir eigi von á því að far­ald­ur­inn muni ná hámarki í apríl og í kjöl­farið fari til­fellum almennt að fækka.

[links]Enn er margt á huldu um hegðun nýju veirunnar en hagi hún sér eins og skyldar veirur gæti hún látið undan í hlýrra veðri. Þannig hegða árs­tíð­ar­bundnar inflú­ensu­veirur sér gjarnan. Flensu­tíma­bilið byrjar á norð­ur­hveli jarðar í októ­ber og nær hámarki í des­em­ber til febr­úar. Stundum geta þó til­felli verið að grein­ast allt fram í maí. Flensu­veirur kunna vel við sig í köldu veðri því þær eru hjúpaðar fitu sem brotnar niður í hita.

Margir vís­inda­menn segja hins vegar of snemmt að spá fyrir um hvernig nýja veiran mun haga sér þegar tekur að hlýna. Sumir segja ein­hverjar vís­bend­ingar fel­ast í því að hún virð­ist eiga erfitt upp­dráttar í Afríku þar sem fá til­felli hafa greinst enn sem komið er.

Í grein National Geographic er haft eftir vís­inda­mönnum sem eru að rann­saka veiruna að of snemmt sé að spá fyrir um áhrif hækk­andi hita á hana.

„Ég vona að hún muni bregð­ast við árs­tíð­ar­breyt­ingum en það er erfitt að segja til um það,“ segir Stuart Weston sem starfar við Háskól­ann í Maryland.

Um helg­ina hafði veiran verið greind í 88 löndum og talið er að hún muni breið­ast út til fleiri landa á næstu dögum og vikum.

Í dag hefur veiran greinst hjá 111.354. 3.892 hafa dáið af völdum hennar. Rúmlega 62 þús­und hafa náð fullum bata.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár