Fjögur ráð til að hætta að snerta á sér andlitið

Áttu það til að nudda augun í tíma og ótíma? Klæjar þig stöðugt í nefið og lætur það eftir þér að klóra þér með hönd­unum? Þú ert ekki einn, svo mikið er víst. En þetta er kannski ekki svo snið­ugt nú þegar skæð veiru­sýk­ing geisar.

Rannsóknir sýna að fólk snertir andlit sitt að meðaltali 23 sinnum á klukkutíma.
Rann­sóknir sýna að fólk snertir and­lit sitt að með­al­tali 23 sinnum á klukku­tíma. Mynd: EPA

Það virð­ist sammann­legt að snerta stöðugt á sér and­litið með fingr­unum. Við nuddum augun, klórum okkur í nef­inu, styðjum hönd undir kinn og stöngum jafn­vel úr tönn­unum með nögl­unum. En þegar við snertum á okkur and­litið berum við líka alls konar sýkla að því og þaðan eiga þeir greiða leið inn í lík­amann.

Nú þegar COVID-19 geisar og tugir ein­stak­linga hafa greinst með veiruna sem veldur sýk­ing­unni á Íslandi hafa heil­brigð­is­yf­ir­völd ítrekað bent á að besta og ein­faldasta for­vörnin gegn smiti sé að þvo oft og vel á sér hend­urnar með sápu. Bent hefur verið á að til að sótt­varn­ar­ár­angur náist þurfi að þvo hend­urnar í 20-30 sek­úndur í hvert sinn eða álíka lengi og það tekur að raula afmæl­is­söng­inn fyrir munni sér.

Einnig hefur verið bent á að hnerra og hósta í pappír eða oln­boga­bót því bakt­er­íur og veirur smit­ast með úða. Þá er okkur ráð­lagt að sleppa kossaflensi, knúsi og því að heilsa fólki með handa­bandi.

Og svo er okkur bent á að hætta að snerta á okkur and­litið í tíma og ótíma. Jafnvel þó að við höldum að við séum með hreinar hendur. Við gerum þetta öll, það er ljóst, og rann­sóknir sýna að fólk snertir and­lit sitt að með­al­tali 23 sinnum á klukku­tíma. Að sama skapi þá snertum við oft og ítrekað hluti sem sýklar geta verið á, s.s. hurð­ar­húna, lyftu­hnappa, hand­rið og fleira.

[links]Enn er óljóst hversu lengi kór­ónu­veiran sem veldur COVID-19 getur lifað á yfir­borði hluta. Ef hún hagar sér eins og aðrar þekktar kór­ónu­veirur þá gæti hún lifað þar allt upp í níu daga við kjörað­stæður.

En hvernig í ósköp­unum eigum við að hætta að snerta and­litið sem hjá okkur flestum er sterkur og algjör­lega ómeð­vit­aður ávani?

Hér að neðan eru fjögur ágæt ráð frá læknum sem New York Times tók saman.

Vertu meðvitaður

Hversu oft snertir þú á þér and­litið, af hvaða til­efni og af hverju? Hverjar eru kveikj­urnar sem verða til þess að berð fing­urna að and­lit­inu? Það hjálpar að vera með­vit­aður um ávan­ann. Ef þú nuddar augun þegar þau eru þurr, finndu leið til að slá á þurrkinn.

Ef þú notar augn­linsur þarf sér­stak­lega að gæta vel að hrein­læti. Sumir læknar ráð­leggja fólki að nota frekar gler­augun nú þegar hætta á smiti er mikil.

Hafðu pakka af pappírsþurrkum við hendina

Þegar þú finnur þörf á að klóra þér, nudda augun eða laga gler­augun á nef­inu, not­aðu pappír svo fing­urnir snerti and­litið ekki beint. Ef þú þarft að hnerra, gríptu papp­írs­þurrku en ef hún er ekki nálæg skaltu hnerra í oln­boga­bót­ina.

Haltu höndunum uppteknum

Með því að hafa lít­inn plast- eða gúmmí­bolta við hönd­ina og hand­leika hann getur dregið úr þeim skiptum sem þú freist­ast til að bera hend­urnar að and­lit­inu. Aðra hluti er auð­vitað hægt að nota í sama til­gangi. Einnig getur þú reynt að venja þig á að flétta fingrum beggja handa saman í kjöltu þinni.

Slakaðu á

„Mitt helsta ráð til fólks er að reyna að minnka streitu almennt í stað þess að hafa stöðugar áhyggjur af því sem það er að snerta,“ hefur New York Times eftir Stew Shankman, pró­fessor í atferl­is­fræði við Northwestern-háskóla. „Streita hefur áhrif á ónæm­is­kerfið og því streitt­ari sem þú ert því meira dregur þú úr hæfni lík­am­ans til að berj­ast gegn sýk­ingum.“

Hann segir það áhrifa­ríkt að vera í núinu, hug­leiða og ein­beita sér að önd­un­inni. Svo lengi sem fólk er með hreinar hendur sé það ekki stór­kost­lega hættu­legt að snerta á sér and­litið. „Þetta er nátt­úru­leg hegðun. Ekki heimsendir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár