Lífeyrissjóður verzlunarmanna og LSR máttu ekki breyta því hvernig þeir reiknuðu út vexti

Neyt­enda­stofa hefur birt ákvörðun þar sem hún segir að lán sem Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna og LSR veittu frá byrjun árs 2001 og til apríl 2017 hafi ekki að geyma full­nægj­andi ákvæði sem leyfi vaxta­breyt­ingu sem sjóð­irnir til­kynnti um í maí 2019.

Neyt­enda­stofa hefur birt ákvörðun þess efnis að Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna og Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins (LSR), tveir stærstu líf­eyr­is­sjóðir lands­ins, hafi ekki mátt breyta því hvernig verð­tryggðir breyti­legir vextir hluta hús­næð­is­lána sjóðs­fé­laga þeirra voru reikn­aðir út. Það hafi verið í and­stöðu við ákvæði eldri laga um neyt­enda­lán.

Alls hefur ákvörðun Neyt­enda­stofu áhrif á öll lán með verð­tryggða breyti­lega vexti sem gefin voru út frá árs­byrjun 2001 til apríl 2017 og varðar vaxta­greiðslur frá maí 2019. Um er að ræða átta pró­sent af öllum sjóðs­fé­lags­lánum Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna en ekki liggur enn fyrir hversu mikil áhrifin eru á LSR.

Í frétt á vef Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna segir að gert sé ráð fyrir því, með fyr­ir­vara um nán­ari skoðun, kostn­aður sjóðs­ins vegna þessa sé innan við 30 millj­ónir króna, eða að með­al­tali um tíu þús­und krónur á hvert lán.

[adspot]Stjórn líf­eyr­is­sjóðs­ins fer nú yfir nið­ur­stöðu Neyt­enda­stofu og mun innan skamms taka afstöðu til þess með hvaða hætti brugð­ist verði við ákvörð­un­inni. 

Breyttu því hvernig vextir voru ákveðnir

Stjórn Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna tók þá ákvörðun 24. maí síð­ast­lið­inn að hækka vexti á breyti­legum verð­tryggðum hús­næð­is­lánum úr 2,06 pró­sent í 2,26 pró­sent frá og með ágúst­byrjun 2019. Samhliða var ákveðið að hætta að að láta ávöxt­un­­ar­­kröfu ákveð­ins skulda­bréfa­­­­­flokks stýra því hverjir vext­irnir eru og í stað þess myndi stjórn sjóðs­ins ákveða þá.

Í frétt sem birt­ist á vef Líf­eyr­is­sjóðs Verzlunarmanna í dag segir að stjórnin miði við „ávöxt­un­ar­kröfu virks flokks verð­tryggðra rík­is­skulda­bréfa að við­bættu álagi sem sam­anstendur af álagi með til­liti til sér­tryggðra skulda­bréfa, selj­an­leika­á­lags, upp­greiðslu­á­lags og umsýslu­á­lags“ við ákvörðun vaxta nú.

Stjórn LSR til­kynnti um breyt­ingar á vaxta­end­ur­skoðun 31. maí 2019 og að vextir á verð­tryggðum breyti­legum lánum yrðu 2,20 pró­sent frá 1. júní sama ár.

Töldu breytingarnar ekki standast

Ein­hverjir sjóðs­fé­lagar töldu þetta illa stand­ast og sendu ábend­ingar til Neyt­enda­stofu.

Hún komst svo að þeirri nið­ur­stöðu þann 19. des­em­ber 2019 að Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna og LSR hefðu brotið gegn ákvæðum tveggja eldri laga­bálka, frá 1994 og 2013, um neyt­enda­lán með „ófull­nægj­andi upp­lýs­ingum í skil­málum um það við hvaða aðstæður vextir breyt­ist eða skil­yrði við breyt­ingu á vöxtum, eftir því sem við á.“ Ákvarð­anir Neyt­enda­stofu voru hins vegar fyrst birtar í dag, 6. jan­úar.

Í ákvörð­un­unum tveimur segir enn fremur sam­hljóða: „Neyt­enda­stofa telur að breyt­ingar sem gerðar hafa verið á vöxtum lán­anna frá útgáfu skulda­bréf­anna hafi, heilt yfir, verið til hags­bóta fyrir neyt­endur enda hafa vextir lækkað veru­lega á gild­is­tím­anum. Í ljósi þess­ara kring­um­stæðna telur Neyt­enda­stofa að eins og hér stendur sér­stak­lega á verði stofn­unin að ákveða aðgerðir vegna brots­ins ekki ein­göngu með hlið­sjón af með­al­hófs- og jafn­ræð­is­reglu stjórnslislu­laga heldur einnig hags­munum neyt­enda. Með til­liti til þessa og í ljósi skyr­inga og afstöðu líf­eyr­is­sjóðs­ins, telur Neyt­enda­stofa eins og málum er hér háttað ekki til­efni til frek­ari aðgerða t.d. með almennu banni eða fyr­ir­mælum. Eftir stendur að hver neyt­andi getur leitað úrlausnar vegna skil­mála í hans samn­ingi, eins og til­efni er til, hjá líf­eyr­is­sjóðnum og, eftir atvikum, til sjálf­stæðrar úrskurða­nefndar eða dóm­stóla sem tekið getur á einka­rétt­ar­legri kröfu vegna brots.“

[adspot]Ákvörðun Neyt­enda­stofu á hins vegar ekki við þau lán sem voru tekin eftir gild­is­töku laga um fast­eigna­lán til neyt­enda, sem öðl­uð­ust gildi 1. apríl 2017.

Hafði afdrifaríkar afleiðingar

Ákvörðun stjórnar Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna um að hækka vext­ina á verð­tryggðu lán­unum hafði afdrifa­ríkar afleið­ingar innan stjórnar sjóðs­ins. Stjórn VR, sem til­­­nefnir helm­ing stjórn­­­ar­­manna í sjóðn­­um, ákvað að leggja fram til­­lögu í full­­trú­a­ráði VR um að aft­­ur­­kalla umboð allra stjórn­­­ar­­manna í líf­eyr­is­­sjóðn­­­um. Ástæðan var sögð algjör trún­­að­­ar­brestur milli stjórn­­­­­ar­­­manna sem VR skipar og stjórnar félags­­­ins vegna ákvörð­unar sjóðs­ins um að hækka breyt­i­­­lega verð­­­tryggða vexti sem sjóðs­fé­lögum bjóð­­­ast til hús­næð­is­­­kaupa um tæp tíu pró­­­sent.

Eftir umtals­verða reki­stefnu tóku nýir stjórn­ar­menn á vegum VR sæti í stjórn sjóðs­ins í lok ágúst síð­ast­lið­ins. Síðan þá hafa vext­irnir sem ollu stjórn­ar­skipt­un­um, á breyti­legum verð­tryggðum lán­um, hins vegar ekki hagg­ast.

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, segir á Facebook-síðu sinni í dag að Fjár­mála­eft­ir­litið hafi átt að taka á mál­unum með sama hætti og Neyt­enda­stofa gerði í stað þess að hlut­ast til um aðgerðir stjórnar VR um að skipta úr stjórn­ar­mönnum sínum í stjórn líf­eyr­is­sjóðs­ins. „Það hafa löngum verið vinnu­brögð og við­horf líf­eyr­is­sjóð­anna að breiða yfir og gera lítið úr málum ef það kemur stjórn­endum eða ímynd sjóð­anna illa. Ég fer fram á afsök­un­ar­beiðni frá FME og Líf­eyr­is­sjóði Versl­un­ar­manna til for­manns og stjórnar VR vegna máls­ins.“

Kominn út fyrir þolmörk

Í októ­ber greindi Kjarninn frá því að Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna hefði breytt lána­reglum sínum þannig að skil­yrði fyrir lán­töku voru þrengd mjög og hámarks­fjár­hæð láns var lækkuð um tíu millj­ónir króna. Hámarks­lán er nú 40 millj­ónir króna. Þá ákvað sjóð­ur­inn að hætta að lána nýjum lán­tak­endum verð­tryggð lán á breyti­legum vöxt­um.

[adspot]Um var að ræða við­bragð við því að Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna var kom­inn út fyrir þol­mörk þess sem hann réð við að lána til íbúð­ar­kaupa. Sjóð­ur­inn greindi sam­hliða frá því að eft­ir­spurn eftir sjóðs­fé­laga­lánum hefði auk­ist mikið frá því að lána­reglur voru rýmkaðar í októ­ber 2015. Á þeim tíma voru sjóðs­fé­laga­lán um sex pró­sent af heild­ar­eignum sjóðs­ins en í októ­ber í fyrra voru þau um 13 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár