Rektor Háskólans: Getur ekki tjáð sig um málefni einstakra starfsmanna

Jón Atli Bene­dikts­son, rektor Háskóla Íslands, segir að í kjöl­far hverrar nið­ur­stöðu siða­nefndar háskól­ans meti rektor hvort til­efni sé til frek­ari aðgerða af hálfu Háskól­ans.

Jón Atli Bene­dikts­son, rektor Háskóla Íslands, seg­ist ekki geta tjáð sig efn­is­lega um ásak­anir Sigrúnar Helgu Lund, pró­fess­ors í líf­töl­fræði við Mið­stöð í lýð­heilsu­vís­indum við Háskóla Íslands, sem sagði upp starfi sínu vegna dræmra við­bragða stjórn­enda skól­ans við kvört­unum hennar vegna erf­iðra sam­skipta og kyn­ferð­is­legs hátta­lags af völdum yfir­manns hennar í starfs­manna­við­tali.

[links]Sigrún greindi frá mál­inu í stöðu­upp­færslu á Facebook í morgun. Yfir­mað­ur­inn, Sigurður Yngi Krist­ins­son, pró­fessor við Lækna­deild Háskóla Íslands, hafn­aði ásök­unum hennar í yfir­lýs­ingu fyrr í dag.

Jón Atli segir í yfir­lýs­inu sinni að Háskóli Íslands leggi ríka áherslu á að til staðar séu úrræði fyrir starfs­menn og nem­endur sem telja á sér brotið.

„Háskól­inn starf­rækir m.a. sér­staka siða­nefnd, fagráð um við­brögð við kyn­bund­inni og kyn­ferð­is­legri áreitni og kyn­bundnu og kyn­ferð­is­legu ofbeldi, og við­bragð­steymi vegna ein­eltis og ann­ars ofbeldis.

[adspot]Fram hefur komið í fjöl­miðlum að til­tek­inn starfs­maður hafi lagt fram kæru vegna fram­komu ann­ars starfs­manns til siða­nefndar Háskóla Íslands en nið­ur­staða nefnd­ar­innar lá fyrir í júlí 2018. Samkvæmt starfs­reglum siða­nefndar Háskóla Íslands eru skrif­legar nið­ur­stöður siða­nefndar afhentar máls­að­ilum og sendar rektor til vit­undar og varð­veislu. Í kjöl­far hverrar nið­ur­stöðu siða­nefndar metur rektor hvort til­efni sé til frek­ari aðgerða af hálfu Háskól­ans.

Rektor getur ekki tjáð sig efn­is­lega um mál­efni ein­stakra starfs­manna eða ákvarð­anir siða­nefndar, sem eru trún­að­ar­mál. Rétt er að taka fram að Háskóli Íslands hefur, á und­an­förnum miss­erum, lagt áherslu á að bæta enn frekar ferla og úrræði til að bregð­ast við kvört­unum og til­kynn­ingum um ofbeldi og áreitni af hvaða tagi sem er, enda verður slíkt aldrei liðið innan Háskóla Íslands.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár