Hafnar því að hafa beitt Sigrúnu andlegu ofbeldi eða áreitni

Pró­fessor við Lækna­deild Háskóla Íslands hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu þar sem hann hafnar því ein­dregið að hafa beitt Sigrúnu Helgu Lund and­legu ofbeldi eða áreitni af neinu tagi. Sigrún sagði upp störfum við HÍ vegna máls­ins.

Sigurður Yngvi Kristinsson
Sigurður Yngvi Krist­ins­son Mynd: Háskóli Íslands

Sigurður Yngvi Krist­ins­son, pró­fessor við Lækna­deild Háskóla Íslands, hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu þar sem hann hafnar því ein­dregið að hafa beitt Sigrúnu Helgu Lund and­legu ofbeldi eða áreitni af neinu tagi.

[links]„Eftir far­sælt sam­starf komu upp erf­ið­leikar á milli okkar, og ég neydd­ist á end­anum til að víkja henni úr rann­sókna­hóp mínum. Í kjöl­farið gerði hún sig seka um til­efn­is­lausa lík­ams­árás á skrif­stofu minni í vitna við­ur­vist og hafði í hót­unum við mig. Sá atburður var mér og öðru sam­starfs­fólki okkar mikið áfall,“ segir Sigurður Yngvi. 

Hann segir að fram til þessa hafi hann ekki viljað tjá sig opin­ber­lega um sam­starf sitt við Sigrúnu og ástæður þess að því sam­starfi lauk. Í ljósi ásak­ana í sinn garð, sem hún hefur sett fram á sam­fé­lags­miðlum og fjöl­miðlar hafa sagt frá, vildi hann koma ákveðnum hlutum á fram­færi. 

Siða­nefnd Háskóla Íslands tók málið til umfjöll­unar að kröfu Sigrúnar. Siða­nefndin gaf út ákvörðun sína í mál­inu 9. júlí síð­ast­lið­inn og eru ákvörð­un­ar­orð hennar eft­ir­far­andi, sam­kvæmt Sigurði:

Siða­nefnd Háskóla Íslands vísar frá þeim kæru­at­riðum sem fjallað er um undir liðum 1 og 2 þar sem kæran telst í þessum til­vikum hafa verið til­efn­is­laus, sbr. 4. gr. starfs­reglna siða­nefndar. Í lið 3 er fjallað um greinar 1.3.1 og 1.3.4., í siða­reglum Háskóla Íslands. Nið­ur­staða nefnd­ar­innar er að ekki sé um brot að ræða að hluta, en brot að hluta auk brots á jafn­ræð­is­reglu 1.3.2. Brotið telst ekki alvar­legt. Þá er hluta þessa liðar vísað frá vegna skorts á upp­lýs­ingum, sbr. 9. gr. starfs­reglna nefnd­ar­innar. Liðum 4 og 5 er vísað frá þar sem máls­grund­völlur er ekki til staðar, sbr. 9. gr. starfs­reglna nefnd­ar­innar.

„Eins og sést af ákvörð­un­ar­orðum nefnd­ar­innar er öllum kæru­at­riðum hafnað eða vísað frá nema einu kæru­at­riði sem varð­aði breyt­ingu á skipan stýri­hóps, sem fól í sér að Sigrún fór úr honum, sem siða­nefndin taldi þó ekki alvar­legt, og var Sigrún tekin aftur inn í stýri­hóp­inn síðar. Öllum ásök­unum um áreitni var því hafnað enda eng­inn fótur fyrir slíkum ásök­unum,“ segir Sigurður í yfir­lýs­ing­unni.

Í frétt Kjarnans frá því í morgun kemur fram að í stöðu­upp­færslu Sigrúnar hafi hún greint frá því að Sigurður Yngvi hefði brotið þrjár greinar siða­reglna, þar með talda jafn­ræð­is­reglu 1.3.2:

Starfs­fólk og nem­endur Háskól­ans gæta þess að mis­muna ekki hver öðrum, til dæmis vegna kyns, kyn­þáttar, kyn­hneigðar, ald­urs, fötl­unar, þjóð­ernis, trú­ar­bragða eða skoð­ana. Þeir leggja ekki hver annan í ein­elti og eru á varð­bergi gagn­vart ein­kennum þess.

Sigurður Yngvi segir í yfir­lýs­ing­unni að honum þyki leitt að Sigrún kjósi að fara fram með rangar ásak­anir í sinn garð en óski henni alls hins besta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár