Nýr aðstoðarmaður dómsmálaráðherra glímir við ólæknandi krabbamein

Einar Hann­es­son nýr aðstoða­maður Sigríðar Andersen dóms­mála­ráð­herra glímir við fjórða stigs krabba­meina í lungum og lifur. Hefur haldið óskertri starfs­orku og seg­ist ekki hafa getað skor­ast undan þegar kallið kom.

Einar Hann­es­son nýráð­inn aðstoð­ar­maður Sigríðar Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra mun ekki aðeins þurfa að takast á við nýtt krefj­andi starf heldur berst hann einnig við ólækn­andi krabba­mein.

Árið 2013 var hann greindur með ristil­krabba­mein, fór í upp­skurð snemma árs 2014 en þá um sum­arið kom í ljós að krabba­meinið hafði dreift sér bæði lungu og lifur.

Í sam­tali við Kjarnann segir Einar að um sé að ræða fjórða stigs krabba­mein sem hann sé ennþá með.

„Það var búið að dreifa sér í lungu og lifur og 95 pró­sent þeirra sem grein­ast með þetta krabba­mein deyja innan fimm ára. Svo virð­ist vera sem það sé eitt­hvað seig­ara í mér en á horfð­ist. En svona mein eru svo ein­stak­lings­bundin að ég treysti mér ekk­ert til að segja mikið meira.“

Einar seg­ist bless­un­ar­lega hafa haldið óskertri starfs­orku frá því hann greind­ist, fylgst sé náið með fram­gangi sjúk­dóms­ins á Land­spít­al­anum og vel hafi gengið að halda honum niðri fram að þessu.

„Ég er svo hepp­inn að ég hef verið ein­kenna­laus og náð að sinna hinum ýmsu störfum,“ segir Einar sem hefur meðal ann­ars verið ráð­gjafi hjá WOW air, sinnt fast­eigna­sölu og lög­manns­störfum.

Í við­tali við Stundina árið 2015 sagð­ist Einar vinna allt of mikið miðað við að líkur séu á að hann eigi ekk­ert voða­lega langt eftir ólifað. Aðspurður um hvort álag við störf aðstoð­ar­manns­ins komi ekki til með að hafa áhrif á heils­una svarar hann léttur í bragði: „ef blaða­menn verða góðir við mig þá lifi ég sjálf­sagt lengur.“

Hann segir verk­efni dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins bæði áhuga­verð og mik­il­væg. „Þegar ráð­herra hringir í mann og óskar eftir að maður lið­sinni rík­is­stjórn­inni þá verður maður eig­in­lega að leggja sitt af mörkum.

Einar er bjart­sýnn og segir fram­tíð­ina bara koma í ljós. „Það hefur ekk­ert dregið af mér og ég hef svo sem heldur ekk­ert verið neitt veikur. En ég fer heldur ekk­ert auð­veld­lega á taugum og það sjálf­sagt hjálpar eitt­hvað til.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár