Einar Hannesson aðstoðar Sigríði Andersen

Einar Hann­es­son lög­maður hefur verið ráð­inn aðstoð­ar­maður Sigríðar Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra. Aðstoð­ar­menn ráð­herra eru með Einari 21 tals­ins, að með töldum upp­lýs­inga­full­trúa rík­is­stjórn­ar­inn­ar.

Einar Hann­es­son lög­maður hefur verið ráð­inn aðstoð­ar­maður Sigríðar Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra. Samkvæmt til­kynn­ingu frá ráðu­neyt­inu mun Einar hefja störf á næstu vikum og starfa með Laufeyju Rún Ket­ils­dóttur sem hefur verið aðstoð­ar­maður ráð­herra und­an­farið eitt ár.

Alls eru ell­efu ráð­herrar í rík­­­is­­­stjórn Katrínar Jak­obs­dótt­ur, for­sæt­is­ráð­herra. Hver og einn þeirra má vera með tvo aðstoð­­­ar­­­menn auk þess sem heim­ild er til staðar sam­­­kvæmt ákvörðun rík­­­is­­­stjórnar að ráða þrjá til við­­­bótar ef þörf kref­­­ur.

Einn þeirra er sér­stakur upp­lýs­inga­full­trúi rík­is­stjórn­ar­innar sem starfar innan for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins. Þá gegnir Unnur Brá Kon­ráðs­dóttir stöðu aðstoð­ar­manns rík­is­stjórn­ar­innar í starfi sínu sem verka­stjóri stjórn­ar­skrárend­ur­skoð­unar. Ekki þarf að aug­lýsa aðstoð­ar­manna stöður heldur eru þeir sem sinna þeim störfum valdir af hverjum ráð­herra fyrir sig, enda oft­ast um að ræða nán­ustu sam­starfs­menn ráð­herra á meðan að hann gegnir emb­ætti.

Aðstoð­ar­menn ráð­herra fengu umtals­verða launa­hækkun sum­arið 2016, þegar laun skrif­stofu­stjóra í ráðu­neytum voru hækkuð um allt að 35 pró­sent.

Laun aðstoð­ar­manna mið­ast við laun skrif­stofu­stjór­anna. Eftir þá hækkun eru laun aðstoð­ar­manna um 1,2 millj­ónir króna á mán­uði. Aðstoð­ar­menn ráð­herra eru með Einari 22 tals­ins, að með töldum upp­lýs­inga­full­trúa rík­is­stjórn­ar­inn­ar. Enn er svig­rúm til að ráða allt að þrjá aðstoð­ar­menn til við­bót­ar.

Samkvæmt til­kynn­ingu dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins lauk Einar emb­ætt­is­prófi í lög­fræði árið 1998 og öðl­að­ist hér­aðs­dóms­lög­manns­rétt­indi árið 2000 en hann er einnig lög­giltur fast­eigna­sali. Þá afl­aði hann sér fram­halds­mennt­unar í hag­fræði og reglum Alþjóða­við­skipta­stofn­un­ar­innar við Harvard háskóla árið 2003 og í enskum sjó- og við­skipta­rétti við Lloyd´s Maritime Academy 2008 og við London Metropolitan Uni­versity 2011-2013 með sér­stakri áherslu á enskan sjó­trygg­inga­rétt og sigl­ingar á heim­skauta­slóðum. Á meðan Einar stund­aði laga­nám var hann við náms­vist í dóms- og kirkju­mála­ráðu­neyt­inu og sat í stjórn Heimdallar árin 1998-1999.

Einar starf­aði sem lög­fræð­ingur í sam­göngu­ráðu­neyt­inu árin 1998-2002 og hafði umsjón með fjar­skipta­málum og stefnu­mótun. Árið 2002 hóf hann störf sem erind­reki Íslands gagn­vart Evr­ópu­sam­band­inu á sviði fjar­skipta-, sam­göngu- og ferða­mála. Á árunum 2003-2010 var Einar lög­fræð­ingur hjá Eft­ir­lits­stofnun EFTA þar sem hann hafði umsjón með inn­leið­ing­ar­eft­ir­liti EES lög­gjafar á sviði fjar­skipta-, póst-, sjón­varps- og upp­lýs­inga­sam­fé­lags­þjón­ustu, sam­gangna og almanna­varna auk til­skip­unar um raf­ræn við­skipti í Noregi, Íslandi og Liechtenstein. Ábyrgð hans færð­ist yfir á svið sam­göngu­lög­gjafar að und­an­skildum flug­málum í þessum löndum árið 2005 auk almanna­varna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár