Fjórir frambjóðendur Sjálfstæðisflokks á móti Borgarlínu – einn fylgjandi

Þorri þeirra ein­stak­linga sem sækj­ast eftir því að leiða Sjálf­stæð­is­flokk­inn í Reykja­vík í kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum eru á móti áformum um lagn­ingu Borg­ar­línu. Áslaug Frið­riks­dóttir sker sig úr, hún segir að verk­efnið sé „sjálf­sagt.“

Þrír þeirra ein­stak­linga sem sækj­ast eftir því að leiða lista Sjálf­stæð­is­flokks í Reykja­vík eru and­snúnir því að Borg­ar­lína verði að veru­leika. Einn seg­ist hafa veru­legar efa­semdir um verk­efnið enn einn telur verk­efnið sjálf­sagt og að gott hrað­vagna­kerfi geti stór­bætt almenn­ings­sam­göngur. Þetta kemur fram í svörum þeirra við fyr­ir­spurnum Kjarnans um málið eða í yfir­lýs­ingum sem við­kom­andi hafa sent frá sér vegna fram­boðs síns.

[links]Borg­ar­línan er heiti á sam­starfs­verk­efni sveit­ar­fé­lag­anna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu um afkasta­mikið almenn­ings­sam­göngu­kerfi. Búið er að kort­leggja helstu sam­göngu­ása á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem þetta nýja sam­göngu­kerfi mun liggja. Borg­ar­línan mun teygja sig í gegnum öll sveit­ar­fé­lögin á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og vera allt að 57 kíló­metrar að lengd. Ekki verða allir kíló­metr­arnir lagðir í einu heldur verður verk­efnið áfanga­skipt.

Hraðvagnar, ekki lest

Ekki er gert ráð fyrir að lestar­teinar verði lagðir á höf­uð­­borg­­ar­­svæð­inu fyrir Borg­­ar­lín­una fyrst um sinn. Þétt­­leiki byggð­­ar­innar og fjöldi far­þega upp­­­fyllir ein­fald­­lega ekki þau þarfa­við­mið sem þurfa að vera til staðar fyrir járn­brauta­­lest­­ir. Þess vegna verða vagn­­arnir sem þjóna á Borg­­ar­lín­unni hrað­vagnar á hjólum.

[adspot]Jafn­vel þó til­lögur um hvar Borg­ar­línan skuli liggja hafi verið sam­þykktar á enn eftir að ganga frá ýmsum þáttum innan stjórn­sýslu sveit­ar­fé­lag­anna svo hægt sé að byrja að leggja brautir fyrir almenn­ings­vagn­ana. Gera þarf nýtt svæð­is­skipu­lag þar sem gert er ráð fyrir þess­ari nýju sam­göngu­æð. Í því sam­hengi hefur verið talað um að taka þurfi frá svæði í borg­ar­land­inu fyrir Borg­ar­lín­una.

Áætlaður kostn­aður við Borg­­ar­lín­una er á bil­inu 63 til 70 millj­­arðar króna. Sá kostn­aður mun dreifast yfir nokkur ár.

Á aðal­­fundi Samtaka sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu (SSH) 3. nóv­­em­ber síð­­ast­lið­inn kom fram að ef ráð­ist verði í fram­­kvæmdir við helm­ing Borg­­ar­lín­unnar í fyrsta áfanga yrði það fjár­­­fest­ing upp á 30 til 35 millj­­arða króna.

Samstaða í ríkisstjórn

Kjarn­inn greindi frá því í lok nóv­em­ber að í frum­varpi að fimm ára fjár­mála­á­ætlun Reykja­vík­ur­borgar sem lagt var fyrir borg­ar­stjórn í fyrra sé gert ráð fyrir að 4,7 millj­örðum króna verði veitt til upp­bygg­ingar Borg­ar­línu. Hins vegar er aðeins gert ráð fyrir að 100 millj­­ónir króna renni í verk­efni tengd Borg­­ar­lín­unni á þessu ári. Þess vegna má gera ráð fyrir að þungi fram­­kvæmda við fyrsta áfanga Borg­­ar­lín­unnar verði í lok fimm ára áætl­­un­­ar­inn­­ar, verði áformin að veru­leika.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sagði í sjón­varps­þætti Kjarnans í des­em­ber 2017 að þess myndi sjást stað í fjár­mála­á­ætlun nýrrar rík­is­stjórn­ar, sem lögð verður fram í vor, að ríkið ætlar sér að leggja fé til þess að Borg­ar­línan verði að veru­leika. Um það sé sam­staða í rík­is­stjórn, þar sem Vinstri græn, Sjálf­stæð­is­flokkur og Fram­sókn­ar­flokkur sitja.

Minnst er á borg­ar­línu stutt­lega í stjórn­ar­sátt­mála nýrrar rík­is­stjórn­ar. Þar seg­ir: „Áfram þarf að byggja upp almenn­ings­sam­göngur um land allt og stutt verður við borg­ar­línu í sam­starfi við Sam­tök sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­in­u.“

Fjórir á móti, einn fylgjandi

Fimm hafa til­kynnt fram­boð í leið­toga­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins fyrir kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar. Það fer fram 27. jan­úar næst­kom­andi. Vil­hjálmur Bjarna­son, fyrr­ver­andi alþing­is­maður, er einn þeirra. Hann segir í sam­tali við Kjarnann að hann hafi veru­legar efa­semdir um Borg­ar­línu­á­formin.

Kjartan Magn­ús­son borg­ar­full­trúi sæk­ist einnig eftir leið­toga­sæt­inu. Hann seg­ist vera hlynntur því að styrkja almenn­ings­sam­göngur en andsnú­inn hug­myndum um Borg­ar­línu eins og þær hafi verið kynntar. Kjartan vill frekar styrkja núver­andi kerfi. „Ég vil að sjálf­sögðu skoða allar hug­myndir sem miða að því að efla almenn­ings­sam­göngur í Reykja­vík, en mér finnst í þessu máli að borg­ar­stjór­inn sé með villu­ljós því að ástandið er ekki gott í umferð­ar­málum í Reykja­vík né í almenn­ings­sam­göngum. Og þessi vinstri meiri­hluti sem hefur ráðið hérna síð­ustu átta árin hefur ekki styrkt almenn­ings­sam­göngur. Stræt­ó­ferðum hefur til dæmis fækkað í aust­ur­hluta borg­ar­innar.“

[adspot]Viðar Guðjohn­sen, leigu­sali og athafna­maður, segir í yfir­lýs­ingu sem hann sendi frá sér þegar hann til­kynnti um fram­boð í leið­toga­kjör­inu að sam­göngu­mál höf­uð­borg­ar­innar séu í algjörum ólestri. „Rándýr verk­efni á borð við Borg­ar­línu þarf að stöðva og leggja þarf þess í stað áherslu á betri vegi, umferð sem flæðir og skatta­lega hvata fyrir atvinnu­upp­bygg­ingu í efri byggðum. Skaði jafn­að­ar­manna á sam­göngu­kerf­inu er mik­ill og hug­mynda­fræði þeirra sem gengur út á að neyða fólk til þess að taka strætó hefur beðið algjört skip­brot.“

Eyþór Arnalds segir í yfir­lýs­ingu sem hann birti á Facebook-síðu sinni 9. jan­úar, þegar hann til­kynnti um fram­boð í leið­toga­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins, að Reykja­vík væri í miklum vanda í sam­göngu­málum. „Dýrar lausnir eins og Borg­ar­lína munu auka á vand­ann með enn meiri þrengslum í gatna­kerf­inu. Reykja­vík á að vera í far­ar­broddi í nútíma­legum sam­göngum en fest­ast ekki í dýrum og þung­lama­legum lausnum. Þreng­ing­arnar hafa nú þegar búið til kransæða­stíflu í gatna­kerfi borg­ar­innar.“

Því eru fjórir af þeim fimm sem sækj­ast eftir að leiða lista Sjálf­stæð­is­flokks í kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum and­snúnir eða hafa veru­legar efa­semdir um Borg­ar­línu­verk­efnið.

Áslaug Frið­riks­dóttir borg­ar­full­trúi sker sig úr hópnum sem sæk­ist eftir leið­toga­sæt­inu. Hún segir í til­kynn­ingu, þar sem farið er yfir helstu áherslu­mál hennar, að Borg­ar­línu­verk­efnið sé sjálf­sagt. „Auðvitað er rétt að horfa til fram­tíðar og taka ákvarð­anir sem leiða til betra sam­göngu­kerfis fyrir allt höf­uð­borg­ar­svæðið. Gott hrað­vagna­kerfi getur stór­bætt almenn­ings­sam­göngur. Lest­ar­kerfi á ekki að skoða frekar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Borgarlína

ViðtalBorgarlína

Fyrst til að bjóða Betri sam­göngum í kaffi

Bergþóra Þor­kels­dóttir for­stjóri Vega­gerð­ar­innar segir það vera gamla klisju að tala um að Vega­gerðin sé gam­al­dags stofnun. Öllum lyk­il­stjórn­endum hafi verið skipt út frá árinu 2018 og mikil end­ur­nýjun hafi orðið í starfs­manna­hópnum. Hún og Bryndís Frið­riks­dóttir sam­göngu­verk­fræð­ingur sett­ust niður með blaða­manni og ræddu um verk­efni sam­göngusátt­mál­ans. Bergþóra hafnar því að yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar hafi verið ósátt með stofnun félags­ins Betri sam­gangna.

8 mín. lestur

ÚttektBorgarlína

Gam­al­dags Vegagerð sem vill vera aðal

Heim­ildin leit­aði til nokk­urra ein­stak­linga sem hafa með einum eða öðrum hætti komið að verk­efnum sem tengj­ast sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og ræddi við þau um Borg­ar­línu, vinnslu verk­efna sátt­mál­ans, fjár­mögnun þeirra og fram­hald. Í sam­töl­unum kom nokkur gagn­rýni kom fram á Vega­gerð­ina fyrir gam­al­dags stofn­anakúltúr og langar boð­leiðir, for­stjór­inn er sagður vilja hafa „putt­ana í öllu“. Yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar er sögð hafa átt erfitt með að sætta sig við að félagið Betri sam­göngur hafi verið stofnað til að halda utan um verk­efni sátt­mál­ans.

8 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár