Ríkisstjórnin ætlar að setja fjármagn í Borgarlínu

Samstaða er innan rík­is­stjórn­ar­innar um að setja fjár­magn í upp­bygg­ingu Borg­ar­línu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Hversu mikið ríkið ætlar að setja í verk­efnið mun koma í ljós í fjár­mála­á­ætlun. Reykja­vík ætlar að setja a.m.k. 4,7 millj­arða í Borg­ar­línu á 5 árum.

Þess mun sjást staður í fjár­mála­á­ætlun nýrrar rík­is­stjórnar, sem lögð verður fram í vor, að ríkið ætlar sér að leggja fé til þess að Borg­ar­línan verði að veru­leika. Samstaða er um málið í rík­is­stjórn. Þetta sagði Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra í sjón­varps­þætti Kjarnans í gær­kvöldi.

[links]Katrín sagði þar að það væri mjög mik­il­vægt að end­ur­skoða sam­göngu­kerfið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og að huga þyrfti að því að breyta sam­göngu­mynstr­inu á svæð­inu. Það væri skipu­lags­mál en ekki síður umhverfis- og loft­lags­mál. Minnst er á borg­ar­línu stutt­lega í stjórn­ar­sátt­mála nýrrar rík­is­stjórnar. Þar segir: „Áfram þarf að byggja upp almenn­ings­sam­göngur um land allt og stutt verður við borg­ar­línu í sam­starfi við Samtök sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.“

Hægt er að horfa á við­talið við Katrínu í heild sinni í spil­ar­anum hér að ofan.

Kjarninn greindi frá því í lok nóv­em­ber að í frum­varpi að fimm ára fjár­mála­á­ætlun Reykja­vík­ur­borgar sem lagt var fyrir borg­ar­stjórn í byrjun mán­aðar sé gert ráð fyrir að 4,7 millj­örðum króna verði veitt til upp­bygg­ingar Borg­ar­línu.

[adspot]Hins vegar aðeins gert ráð fyrir að 100 millj­ónir króna renni í verk­efni tengd Borg­ar­lín­unni á næsta ári. Þess vegna má gera ráð fyrir að þungi fram­kvæmda við fyrsta áfanga Borg­ar­lín­unnar verði í lok fimm ára áætl­un­ar­inn­ar.

Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri Reykja­vík­ur, sagði þó í sjón­varps­þætti Kjarnans 22. nóv­em­ber að þetta gæti breyst og að hann vissi ekki hvort þetta yrði end­an­leg tala sem veitt yrði í verk­efnið á næstu fimm árum. „Kannski er ríkið til­búið að fara ennþá hraðar í þetta og þá þurfum við að bæta við. En alla­vega þá er það algjör­lega skýrt í mínum huga að Borg­ar­l­inan, það er að segja afkasta­meiri almenn­ings­sam­göngur þarf til þannig að sam­göngu­kerfið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu virki.“ Hann benti á að spár sýni að um 70 þús­und manns muni bæt­ast inn á höf­uð­borg­ar­svæðið til 2040 og á því þurfi að taka. Ef borgin bæti bara við nýjum hverfum í útjaðri sínum muni tafa­tími í umferð­inni verða mun meiri en hann er nú þeg­ar.

Dagur sagði að ef það séu ein­hverjir sem hafi ríka hags­muni af því að almenn­ings­sam­göngur verði efld­ar, til dæmis með lagn­ingu Borg­ar­línu, þá séu það þeir sem ætla sér áfram að nota bíl. Reykja­vík­ur­borg, nágranna­sveit­ar­fé­lög höf­uð­borg­ar­innar og Vega­gerðin séu sam­stíga í þessum málum vegna þess að allar grein­ingar sýni að hags­munir allra fari saman í grænum áherslum í umferð­ar­mál­um.

Samkvæmt orðum Katrínar í sjón­varps­þætti Kjarnans í gær þá hefur rík­is­stjórnin nú bæst í þann hóp.

Hag­kvæm­asta lausnin

Auk­inn sam­göngu­vandi á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur verið til umræðu á und­an­förnum árum og um leið lausnir við þeim vanda. Verk­fræði­stofan Mann­vit vann kostn­að­ar­mat á sam­göngu­sviðs­myndum fyrir sveit­ar­fé­lögin á höf­uð­borg­ar­svæð­inu árið 2014. Þar kemur í ljós að fjár­fest­ing í bættum almenn­ings­sam­göngum og fjár­fest­ing í vega­kerf­is­ins er hag­kvæm­asta lausn­in. Það er jafn­framt sú lausn sem skilar bestum árangri.

Ef ráð­­ast á í upp­­­bygg­ingu stofn­­vega innan höf­uð­­borg­­ar­­svæð­is­ins ein­­göngu til þess að takast á við auka bíla­um­­ferð innan og á milli sveit­­ar­­fé­lag­anna á suð­vest­­ur­horni lands­ins, mun það verða mun óhag­­kvæmara en að blanda saman upp­­­bygg­ingu almenn­ings­­sam­­gangna-, bíla­um­­ferð­­ar- og hjól­reiða­inn­viða.

Kostn­aður við Borg­ar­lín­una mun á end­anum verða á bil­inu 63 til 70 millj­arðar króna. Sá kostn­aður mun dreifast yfir nokkur ár.

Á aðal­fundi SSH 3. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn kom fram að ef ráð­ist verði í fram­kvæmdir við helm­ing Borg­ar­lín­unnar í fyrsta áfanga yrði það fjár­fest­ing upp á 30 til 35 millj­arða króna.

Hraðvagnar ekki lestir

Ekki er gert ráð fyrir að lestar­teinar verði lagðir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fyrir Borg­ar­lín­una fyrst um sinn. Þétt­leiki byggð­ar­innar og fjöldi far­þega upp­fyllir ein­fald­lega ekki þau þarfa­við­mið sem þurfa að vera til staðar fyrir járn­brauta­lest­ir. Þess vegna verða vagn­arnir sem þjóna á Borg­ar­lín­unni hefð­bundnir stræt­is­vagn­ar.

Helsti mun­ur­inn verður hins vegar að vagn­arnir stoppa tíðar á hverri stoppi­stöð fyrir sig og hafa greiða leið um borg­ar­land­ið, enda verður Borg­ar­línan aðskil­inn frá annarri bíla­um­ferð. Hönnun kerf­is­ins á hins vegar ekki að úti­loka að hægt verði að breyta því í létt­lest­ar­kerfi síðar meir ef þess ger­ist þörf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Borgarlína

ViðtalBorgarlína

Fyrst til að bjóða Betri sam­göngum í kaffi

Bergþóra Þor­kels­dóttir for­stjóri Vega­gerð­ar­innar segir það vera gamla klisju að tala um að Vega­gerðin sé gam­al­dags stofnun. Öllum lyk­il­stjórn­endum hafi verið skipt út frá árinu 2018 og mikil end­ur­nýjun hafi orðið í starfs­manna­hópnum. Hún og Bryndís Frið­riks­dóttir sam­göngu­verk­fræð­ingur sett­ust niður með blaða­manni og ræddu um verk­efni sam­göngusátt­mál­ans. Bergþóra hafnar því að yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar hafi verið ósátt með stofnun félags­ins Betri sam­gangna.

8 mín. lestur

ÚttektBorgarlína

Gam­al­dags Vegagerð sem vill vera aðal

Heim­ildin leit­aði til nokk­urra ein­stak­linga sem hafa með einum eða öðrum hætti komið að verk­efnum sem tengj­ast sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og ræddi við þau um Borg­ar­línu, vinnslu verk­efna sátt­mál­ans, fjár­mögnun þeirra og fram­hald. Í sam­töl­unum kom nokkur gagn­rýni kom fram á Vega­gerð­ina fyrir gam­al­dags stofn­anakúltúr og langar boð­leiðir, for­stjór­inn er sagður vilja hafa „putt­ana í öllu“. Yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar er sögð hafa átt erfitt með að sætta sig við að félagið Betri sam­göngur hafi verið stofnað til að halda utan um verk­efni sátt­mál­ans.

8 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár