Segir bættar almenningssamgöngur stytta tafatíma í umferðinni

Borg­ar­stjór­inn í Reykja­vík segir þétt­ing byggðar, bættar almenn­ings­sam­göngur og fjöl­breytt­ari ferða­máti borg­ar­búa muni koma í veg fyrir auk­inn tafa­tíma í umferð­inni. Þeir sem hafi mestan hag af slíkri þróun séu not­endur bíla.

Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri Reykja­víkur, segir að ef borgin bæti bara við nýjum hverfum í útjaðri sínum muni tafa­tími í umferð­inni verða mun meiri en hann er nú þegar. Hann segir að ef það séu ein­hverjir sem hafi ríka hags­muni af því að almenn­ings­sam­göngur verði efldar, til dæmis með lagn­ingu Borg­ar­línu, þá séu það þeir sem ætla sér áfram að nota bíl. Reykja­vík­ur­borg, nágranna­sveit­ar­fé­lög höf­uð­borg­ar­innar og Vega­gerðin séu sam­stíga í þessum málum vegna þess að allar grein­ingar sýni að hags­munir allra fari saman í grænum áherslum í umferð­ar­málum.

Þetta er á meðal þess sem kemur fram í ítar­legu við­tali við Dag í sjón­varps­þætti Kjarnans á Hring­braut klukkan 21 í kvöld.

Aðspurður um umferð­ar­mál segir Dagur að það þurfi bæði að þétta byggð þannig að ferðir fólks og ann­arra milli heim­ilis og vinnu stytt­ist og til þess að fólk taki almennt minna pláss í umferð­ar­kerf­inu. „Við þurfum að stór­efla almenn­ings­sam­göngur til þess að fólk eigi þann val­kost að kom­ast hratt og vel með almenn­ings­sam­göngum, en líka til þess að plássið á göt­unum, fyrir þá sem áfram vilja keyra, verði til staðar. Ef það eru ein­hverjir sem hafa ríka hags­muni af því að við eflum almenn­ings­samöngur – að þeir sem vilji geti hjólað eða gengið – þá eru það þeir sem ætla áfram að nota bíl. Þetta sam­hengi er svo mik­il­vægt að allir skilji.

Hann von­ast til þess að það sam­starf sem mynd­ast hafi milli sveit­ar­fé­lag­anna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og Vega­gerð­ar­innar í þessum málum hald­ist í gegnum sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar á næsta ári. Það sé þó freist­ing fyrir ein­hverja stjórn­mála­flokka að taka slag um þetta. „Gögnin og töl­urnar tala svo skýrt þessu máli að ég bind góðar vonir við að þetta ein­fald­lega bara verði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

umferð

Mest lesið undanfarið ár