Í þá tíð... Frelsari heimsins seldur á metfé

Upp­boðs­hald­ar­inn Christie‘s í New York setti nýtt met nýlega þegar mál­verk sem talið er eftir Leonardo da Vinci seld­ist á 450 millj­ónir Banda­ríkja­dala. Þetta er aðeins í þriðja skiptið sem sér­fræð­ingar hafa almennt vottað „nýtt“ da Vinci-verk.

Salvator Mundi var talið glatað í margar aldir þangað til að það kom fram á ný árið 2011. Það þykir bra öll helstu einkenni Leonardos og er nú orðið dýrasta listaverk allra tíma.
Salvator Mundi var talið glatað í margar aldir þangað til að það kom fram á ný árið 2011. Það þykir bra öll helstu ein­kenni Leon­ar­dos og er nú orðið dýrasta lista­verk allra tíma. Mynd: Aðsend

Einn merki­leg­asti atburður seinni tíma lista­sögu átti sér stað nýverið þegar verk eftir Leonardo da Vinci, Salvator Mundi (Frelsari heims­ins) var selt á upp­boði fyrir 400 millj­ónir Banda­ríkja­dala, rúma 42 millj­arða króna, sem er meira en nokkuð verk hefur áður selst á. Ekki hefur verið gefið upp hver kaup­and­inn fjár­sterki er.

Einstök einkenni Leonardos

Leonardo da Vinci fædd­ist í Flórens árið 1452, óskil­get­inn sonur manns af góðum ættum skrif­ara og almúga­stúlku. Hann fékk þó að kenna sig við föður sinn og naut þess þó alla ævi að vera af „góðu fólki“ kom­inn. Ungur komst hann í læri hjá lista­mann­inum Andrea del Veroccio og helg­aði ævi sína listum og vís­indum.

Hann er senni­lega nafn­tog­að­asti lista­maður allra tíma og verk hans eru sum þau þekkt­ustu í sög­unni, en þar má helst nefna Síðustu kvöld­mál­tíð­ina og Mónu Lísu.

Leonardo var nafn­tog­aður alla tíð og var margoft ráð­inn til að vinna hin ýmsu lista­verk fyrir fyr­ir­menni í Flórens, Mílanó, París og Róm, en átti lengi vel erfitt með að klára við­fangs­efni sín, enda var hugur hans sífellt á flugi, sem sést meðal ann­ars á skissu­bókum hans þar sem hann kastar fram spurn­ingum um eðli nátt­úr­unnar milli þess sem hann teiknar hin ýmsu tæki og tól og upp­köst að stærri verkum.

Hann lést árið 1519 og skildi eftir sig óvið­jafn­an­legt safn verka og hug­mynda, og er einn af kynd­liberum end­ur­reisn­ar­innar. Engu að síður eru innan við 20 mál­verk sem eignuð eru Leonardo og aðeins eitt er í einka­eign, Sal­vatore Mundi.

Myndin er af Jesú Kristi sem heldur uppi hægri hönd til bless­unar en í þeirri vinstri heldur hann á krist­alkúlu. Þetta var einmitt mjög vin­sælt mótíf á þessum tíma. Hún er máluð á hnotu og er 45 senti­metrar á breidd og 65 senti­metrar á hæð. Verkið var málað fyrir Loðvík XII Frakk­lands­kon­ung fyrir um 500 árum síðan.

Verkið kom ekki fram fyrr en snemma á þess­ari öld og var stað­fest sem verk Leon­ar­dos árið 2011. Það er eitt af ein­ungis þremur verkum sem hefur komið fram og fengið slíka vottun.

Hin eru Benois Madonna sem var kynnt til sög­unnar árið 1909 og hefur verið til sýn­ingar í lista­safn­inu í St. Pét­urs­borg í Rúss­landi frá 1914, og svo teikn­ingin La Bella Principessa, sem var stað­fest sem verk Leon­ar­dos af sér­fræð­ingum um 2010.

Vanda­málið með að stað­festa slíkt felst ekki síst í því að Leonardo merkti sér ekki verk sín, frekar en aðrir lista­menn þessa tíma, og þrátt fyrir að hann skrif­aði allt á milli him­ins og jarðar í minn­is­bækur sínar skrif­aði hann ekki um verkin sín.

Þess í stað verður fólk að reiða sig á að greina tækni og stíl mál­ar­ans og það hefur tek­ist í þessum örfáu til­vikum af þeim fjöl­mörgu sem koma reglu­lega fram þar sem því er haldið fram að um verk Leon­ar­dos sé að ræða.

Þrautaganga Salvator Mundi

Mörg af ein­kennum Leon­ar­dos má einmitt finna á Salvator Mundi, meðal ann­ars dul­ar­fullt beint augna­ráðið og órætt brosið, sítt, hrokkið hár og þessar mjúku, óskýru línur og skuggar, sem fengin eru með tækni sem kall­ast sfumato, en það orð er dregið af ítalska orð­inu fumo sem þýðir reykur. Það felur í sér að lista­mað­ur­inn dregur úr máln­ing­unni t.d. með hand­ar­jaðri, til að fá fram þetta yfir­bragð. Þá er það málað á hnotu, eins og mörg önnur verk hans, en eitt af helstu ein­kenn­unum eru pens­il­strok­urnar sem bera með sér að þær hafi verið gerðar af örv­hentum manni, sem Leonardo var.

Það sem vekur helst athygli er hversu vel lista­mann­inum tekst að hleypa lífi í mynd­ina. Leonardo var sér­fræð­ingur í að nota sfumato í bland við meira afger­andi línur, bæði til að skapa þrí­vídd og einnig til að draga augað að ákveðnum hlutum verks­ins, aðal­lega höndum Krists, krist­alskúl­unni og krull­unum sem falla niður af öxlum hans.

Það sem stingur þó í stúf er kúlan góða. Eins fal­leg og hún er, þá gengur hún gegn ýmsum reglum eðl­is­fræð­innar sem Leonardo voru svo hug­leikin. Það sem sést í gegnum kúl­una, skikkja Krists ætti að snú­ast við. Í nýút­kominni bók sinni um Leonardo telur Walter Isaacson að meist­ar­inn hafi gert þetta vilj­andi, annað hvort til að myndin yrði ekki of skrítin, eða hrein­lega til að ljá Kristi enn frek­ari krafta, sem myndu ganga þvert á nátt­úru­lög­málin.

Áður en stað­fest var með rökum og nútíma­tækni að Salvator Mundi væri sann­ar­lega verk Leon­ar­dos voru til skjal­festar heim­ildir um að da Vinci-verk sem það hafi verið til. Til dæmis í eigna­skýrslu Salai, sem var lær­lingur og aðstoð­ar­maður Leon­ar­dos í um ald­ar­fjórð­ung, og í lista­verka­safni Karls I Eng­lands­kon­ungs, og sonar hans Karls II.

Verkið hvarf eftir að það fór úr höndum Karls II til her­tog­ans af Buckingham og sonur þess síð­ar­nefnda seldi það árið 1763.

Fjöl­margar eft­ir­myndir voru gerðar. Nokkrir aðdá­endur Leon­ar­dos gerðu sínar útgáfur af verk­inu og eig­in­kona Karls I réði lista­mann til að rista eft­ir­mynd.

Árið 1900 birt­ist það svo á ný þegar það komst í eigu bresks safn­ara, Francis Cook, sem vissi ekk­ert hvað hann hafði í hönd­unum, síst af öllu að þarna væri „glatað“ verk eins mesta meist­ara lista­sög­unnar.

Verkið var þá mikið skemmt. Það var meðal ann­ars búið að mála yfir það og lakka svo að það var ger­sam­lega óþekkj­an­legt. Andlitið og hárið, sem bera svo sterk höf­und­ar­ein­kenni Leon­ar­dos voru til dæmis hulin af mál­ingu seinni tíma manna. Það var því eignað nem­anda Leon­ar­dos, Giovnanni Boltraffio.

Síðar var það meira að segja gjald­fellt niður í að vera eft­ir­mynd af eft­ir­mynd og þannig fór að afkom­andi Cooks seldi það á upp­boði á 45 pund árið 1958.

Það hvarf svo sjónum enn og aftur og birt­ist á ný árið 2005 þar sem það var selt á upp­boði úr dán­ar­búi í Banda­ríkj­unum á innan við 100 dali.

Kaup­and­inn var raunar hópur fjár­festa sem grun­aði að þarna væru þeir með eitt­hvað merki­legt í hönd­unum. Þeir fengu til liðs við sig lista­verka­sal­ann Robert Simon og eftir að sér­fræð­ingar í lista­verka­við­gerðum fóru að flysja seinni tíma við­bætur ofan af verk­inu kom krafta­verkið í ljós. Einkenni Leon­ar­dos leyndu sér ekki og brátt höfðu sér­fræð­ingar, bæði í Banda­ríkj­unum og Evrópu stað­fest fyrir sitt leyti að þarna væri sann­ar­lega um verk meist­ar­ans að ræða.

Hópurinn seldi verkið árið 2013 á nær 80 millj­ónir dala. Kaup­and­inn var sviss­neskur lista­verka­sali, sem svo seldi það snar­lega aftur á 127,5 millj­ónir dala. Kaup­and­inn sá var rúss­neskur millj­arða­mær­ingur að nafi Dimitri Rybolov­lev, sem sér varla eftir því núna þegar hann hefur selt það á 450 millj­ónir dala, hærri upp­hæð en nokkru sinni hefur verið greitt fyrir lista­verk. Uppboðið stóð í um tutt­ugu mín­útur þar sem allt að sex kaup­endur voru að að berj­ast um verkið í einu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár