Stjórn Bjartrar framtíðar hefur ákveðið að slíta samstarfi við ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar, vegna alvarlegs trúnaðarbrests, að því er fram kemur í tilkynningu. Ráðherrar Bjartrar framtíðar, Óttarr Proppé og Björt Ólafsdóttir, greindu forystumönnum samstarfsflokkanna, Sjálfstæðisflokki og Viðreisn, frá þessu seint í kvöld.
Stjórn Bjartrar framtíðar kom saman í kvöld til að ræða stöðuna sem komin er upp eftir að í ljós kom að faðir forsætisráðherra, Benedikt Sveinsson, skrifaði undir meðmælabréf með beiðni Hjalta Sigurjóns Haukssonar um að hann fengi uppreist æru. Frá því var fyrst greint á vef Vísis.
Samtals voru 87 prósent stjórnarmanna hjá Bjartri framtíð hlynntir því að slíta samstarfinu.
Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra sagði í kvöld, í viðtali við Stöð 2, að hún hefði upplýst Bjarna Benediktsson forsætisráðherra um þetta í júlí.
Samkvæmt heimildum Kjarnans var strax ljóst, í upphafi fundar, að kraumandi óánægja var með stöðu mála innan ríkisstjórnarinnar, og að Björt framtíð gæti ekki haldið áfram ríkisstjórnarsamstarfinu undir forystu Sjálfstæðisflokksins.
Í viðtalinu við Stöð 2 í kvöld sagði Sigríður að embættismenn hefðu greint henni frá því í lok júlí að faðir Bjarna væri á meðal umsagnaraðila Hjalta. Hún hefði talið rétt að láta forsætisráðherra vita af því.
„Hann kom algjörlega af fjöllum,“ sagði Sigríður í viðtali við Stöð 2 og Vísi.
Dómsmálaráðuneytið hefur enn ekki birt gögnin um votta þeirra sem hafa fengið uppreist æru, líkt og úrskurður úrskurðarnefndar um upplýsingamál segir til um. Einungis hafa verið birt gögnin í máli Roberts Downey, sem var til umfjöllunar í fyrrnefndu máli. En upplýsingafulltrúi ráðuneytisins, Jóhannes Tómasson, hefur upplýst um að unnið sé að því.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Athugasemdir