Íslensk stjórnvöld leiðréttu frétt Washington Post

Banda­rísk almanna­tengsla­stofa vann að leið­rétt­ingu á rang­færslum í málum tengdum falli rík­is­stjórn­ar­innar, fyrir íslensku rík­is­stjórn­ina.

Washington Post er eitt virtasta dagblað í heimi.
Washington Post er eitt virtasta dag­blað í heimi. Mynd: EPA

Íslensk stjórn­völd reyndu að hafa áhrif á frétta­flutn­ing banda­ríska dag­blaðs­ins Washington Post, þegar það fjall­aði um fall rík­is­stjórnar Bjarna Bene­dikts­sonar og tengsl föður hans í því máli.

Stundin greinir frá þessu á vef sínum í dag. Þar er sagt að málið snú­ist um pistil eftir Janet Elise Johnson, pró­fessor í stjórn­mála­fræði og kvenna­fræðum við Brooklyn College í Banda­ríkj­unum. Pistill­inn fjallar um stjórn­ar­slitin á Íslandi og „barn­a­níð­ings­hneykslið“.

Almanna­tengsla­stofan Burson Mar­steller rit­aði tölvu­póst fyrir hönd rík­is­stjórnar Íslands til rit­stjórnar Washington Post 27. sept­em­ber síð­ast­lið­inn. Í Stund­inni segir að póst­ur­inn hefj­ist á orð­unum:

„Ég skrifa ykkur fyrir hönd rík­is­stjórnar Íslands. Við förum fram á að greinin ‘Rík­is­stjórn Íslands féll vegna þess að faðir for­sæt­is­ráð­herra vildi að barn­a­níð­ingur yrði náð­aður. Hvað er í gangi?’ verði fjar­lægð vegna fjölda stað­reynda­villna og afbak­ana.“

Eftir að blaða­maður Stund­ar­innar fór að grennsl­ast fyrir um málið hjá Burson Mar­steller barst svar frá upp­lýs­inga­full­trúa utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins þar sem segir að Burson Mar­steller hafi verið falið að leið­rétta rang­færslur í erlendum fjöl­miðlum. Utan­rík­is­ráð­herra hafi greint frá því í íslenskum fjöl­miðlum að unnið væri að því að leið­rétta rang­færslur tengdar mál­inu. Almanna­tengsla­stofan hafi áður unnið fyrir íslensk stjórn­völd í tengslum við hin ýmsu mál.

Rang­færsl­urnar sem leið­rétta þurfti voru að í umfjöllun Washington Post var upp­haf­lega talað um að faðir for­sæt­is­ráð­herra hefði mælt með að dæmdur barn­a­níð­ingur yrði náð­aður, en ekki að honum yrði veitt upp­reist æru eins og rétt er. Skömmu eftir að greinin í Washington Post birt­ist var þetta lag­fært á vefnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

stjórnarkreppa

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár