Segir ekki tilefni til rannsóknar á embættisfærslum ráðherra

Umboðs­maður Alþingis ætlar ekki í frum­kvæð­is­rann­sókn á „trún­að­ar­brest­inum“.

Tryggvi Gunnarsson var gestur stjórnskipunar og eftirlitsnefndar í dag.
Tryggvi Gunn­ars­son var gestur stjórn­skip­unar og eft­ir­lits­nefndar í dag. Mynd: Birgir Þór

Tryggvi Gunn­ars­son, umboðs­maður Alþingis, ætlar ekki að taka það til skoð­unar að Sigríður Andersen dóms­mála­ráð­herra ákvað að segja Bjarna Bene­dikts­syni for­sæt­is­ráð­herra frá því að faðir hans hefði skrifað undir með­mæli fyrir upp­reist æru dæmds barn­a­níð­ings.

Morg­un­blaðið greinir meðal ann­ars frá þessu á vef sínum í dag. Tryggvi var gestur stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis í morgun til að ræða um þær reglur sem gilda um upp­reist æru og fram­kvæmd slíkra mála í stjórn­sýsl­unni. Eftir fund­inn svar­aði hann spurn­ingum fjöl­miðla­manna.

„Ég gerði grein fyr­ir því að eft­ir þá at­hug­un sem ég hef gert á því sem fyr­ir ligg­ur þá hef ég ekki talið til­efni til þess,“ er haft eftir Tryggva í mbl.is um að taka upp frum­kvæð­is­rann­sókn á mál­inu.

Í dóms­mála­ráðu­neyt­inu er þegar hafin vinna við end­ur­skoðun laga um upp­reist æru og fram­kvæmd þeirra mála í stjórn­sýslu­stig­inu. Tryggi úti­lok­aði ekki að málið yrði tekið upp að nýju.

„Það hef­ur alltaf verið mín afstaða að á meðan fram­kvæmda­valdið vill end­ur­skoða hlut­ina og færa þá til betri veg­ar, þá verði að bíða og sjá hvað kem­ur út úr þeirri vinnu. Þegar sú nið­ur­staða ligg­ur fyr­ir þá kann að vera til­efni til að taka mál fyr­ir að nýju. Fram­kvæmda­valdið er þannig að þar eru sér­fræð­ing­arn­ir til að vinna úr þessu, taka við ábend­ing­um, bæði þings og þjóðar, og að mín­um dómi er rétt að bíða.“

Trúnaðarbresturinn var að halda upplýsingum leyndum

Ákvörðun Sigríðar um að upp­lýsa Bjarna um aðkomu föður hans að málum upp­reist æru í júlí er í grunnin ástæða þess að Björt fram­tíð ákvað að slíta rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu með Sjálf­stæð­is­flokknum og Viðreisn. Björt fram­tíð taldi það hafa verið trún­að­ar­brest að hálfu Bjarna og Sigríðar að leyna þessum upp­lýs­ingum fyrir sam­ráð­herrum í rík­is­stjórn þar til á mánu­dag­inn í síð­ustu viku.

Bæði Sigríður og Bjarni hafa borið fyrir sig trún­að­ar­skyldu í þessu máli og það hafi verið ástæða þess að þau hafi ekki upp­lýst um málið fyrr. Sigríður hefur hins vegar einnig sagt að allir ráð­herrar hafi haft aðgang að gögnum máls­ins ef þau ósk­uðu þess.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

stjórnarkreppa

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár