Sjálfstæðisflokkur og Vinstri græn með langmest fylgi

Píratar mæl­ast með tæp­lega 13 pró­sent fylgi en Viðreisn er í lægstu lægðum, með 2,7 pró­sent.

Í nýrri könnun á vegum Zenter rann­sókna sem fram­kvæmd var dag­ana 15. til 18. sept­em­ber kemur í ljós að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Vinstri græn mæl­ast með mest fylgi.

Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá Zenter.

Samkvæmt nið­ur­stöð­unum mælist Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn með 26,4% fylgi sam­an­borið við 29,0% í Alþing­is­kosn­ing­unum 2016. Fylgi Vinstri grænna hækkar frá kosn­ing­unum 2016 og mælist nú með 22,8% borið saman við 15,9% árið 2016. „Miðað við 95% örygg­is­bil er hins vegar ekki mark­tækur munur á milli flokk­anna tveggja,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Píratar mæl­ast með 12,5% fylgi borið saman við 14,5% atkvæða í síð­ustu kosn­ingum. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mælist með 10,5% fylgi borið saman við 11,5% í kosn­ing­unum 2016.

Flokkur fólks­ins bætir við sig síðan 2016 og mælist nú með 9,6% borið saman við 3,5% í síð­ustu kosn­ingum. Sam­fylk­ingin mælist með 9,0% sam­an­borið við 3,5% árið 2016 og Björt fram­tíð mælist með 5,6% fylgi en fékk 7,2% atkvæða í kosn­ing­unum 2016. Loks mælist Viðreisn með 2,7% fylgi en flokk­ur­inn fékk 10,5% atkvæða í síð­ustu kosn­ingum.

Kosið verður 28. októ­ber næst­kom­andi næstum sléttu ári frá síð­ustu kosn­ingum. Þær fóru fram 29. októ­ber í fyrra.

Íslend­ingar 18 ára og eldri af land­inu öllu voru spurðir í könn­un­inni og tóku 956 ein­stak­lingar þátt. Könnunin var fram­kvæmd á net­inu meðal könn­un­ar­hóps Zenter rann­sókna, að því er fram kemur í til­kynn­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

stjórnarkreppa

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár