Landsfundi Sjálfstæðisflokksins frestað fram á næsta ár

Mikill sam­hljómur var í mið­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks­ins um að fresta lands­fundi flokks­ins.

Ákveðið var á mið­stjórn­ar­fundi Sjálf­stæð­is­flokks­ins í gær­kvöldi að fresta lands­fundi flokks­ins fram á næsta ár, en til stóð að hann færi fram dag­ana 4. til 5. nóv­em­ber. Í ljósi breyttrar stöðu í stjórn­mál­unum, eftir að slitn­aði upp úr rík­is­stjórn­ar­sam­starfi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Bjartrar fram­tíðar og Við­reisnar, þá ákv­aðu flokks­menn að skyn­sam­legt væri að seinka fund­inum.

Eins og kunn­ugt er verða þing­kosn­ingar 28. októ­ber næst­kom­andi og vinna stjórn­mála­flokk­arnir nú að því að und­ir­búa þær. Útlit er fyrir afar spenn­andi kosn­ingar.

Sam­kvæmt nið­ur­stöð­um könn­unar Zenter rann­sókna mælist Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn með 26,4% fylgi sam­an­borið við 29,0% í Alþing­is­kosn­ing­unum 2016.

Fylgi Vinstri grænna hækkar frá kosn­ing­unum 2016 og mælist nú með 22,8% borið saman við 15,9% árið 2016. „Miðað við 95% örygg­is­bil er hins vegar ekki mark­tækur munur á milli flokk­anna tveggja,“ segir í til­kynn­ing­u sem Zenter sendi frá sér þegar könn­unin var gerð.

Píratar mæl­ast með 12,5% fylgi borið saman við 14,5% atkvæða í síð­ustu kosn­ing­um. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mælist með 10,5% fylgi borið saman við 11,5% í kosn­ing­unum 2016.

Flokkur fólks­ins bætir við sig síðan 2016 og mælist nú með 9,6% borið saman við 3,5% í síð­ustu kosn­ing­um. Sam­fylk­ingin mælist með 9,0% sam­an­borið við 3,5% árið 2016 og Björt fram­tíð mælist með 5,6% fylgi en fékk 7,2% atkvæða í kosn­ing­unum 2016. Loks mælist Við­reisn með 2,7% fylgi en flokk­ur­inn fékk 10,5% atkvæða í síð­ustu kosn­ing­um.

Íslend­ingar 18 ára og eldri af land­inu öllu voru spurðir í könn­un­inni og tóku 956 ein­stak­lingar þátt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

stjórnarkreppa

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár