Átta flokkar næðu manni á þing samkvæmt nýrri könnun

Ný könnun Frétta­blaðs­ins bendir til þess að hið póli­tíska lands­lag hafi sjaldan verið fjöl­breytt­ara.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Vinstri græn eru stærstu flokk­arnir á land­inu sam­kvæmt nýrri könnun Frétta­blaðs­ins, Stöðvar 2 og Vísis. Flokk­arnir eru næstum jafn stórir, Sjálf­stæð­is­flokkur með 23 pró­sent og Vinstri græn 22,8 pró­sent.

Píratar eru þriðji stærsti flokk­ur­inn sam­kvæmt könn­un­inni en 13,7 pró­sent svar­enda segj­ast myndu kjósa flokk­inn.

Flokkur fólks­ins fengi tæp 11 pró­sent og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn fengi rúm 10 pró­sent. Þá fengi Björt fram­tíð rúm 7 pró­sent og Viðreisn og Sam­fylk­ingin yrðu jafn stór með rúm 5 pró­sent.

Samkvæmt könn­un­inni næðu því átta flokkar mönnum á þing.

„Yrðu þetta nið­ur­stöð­urnar fengju átta flokkar menn kjörna á þing. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Vinstri græn fengju 15 þing­menn hvor, Píratar fengju 9 þing­menn, Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn og Flokkur fólks­ins fengju 7 menn hvor, Björt fram­tíð héldi í horf­inu með fjóra þing­menn. Þá fengju Viðreisn og Sam­fylk­ingin þrjá menn hvort. Þetta myndi þýða tölu­verðar breyt­ingar á þing­styrk flokk­anna. Í kosn­ing­unum í fyrra fékk Sjálf­stæðis­flokk­ur­inn 21 þing­mann, Vinstri græn og Píratar 10 þing­menn hvor, Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn 8 þing­menn, Viðreisn 7, Björt fram­tíð 4 þing­menn og Sam­fylk­ingin 3,“ segir í umfjöllun Frétta­blaðs­ins.

Hringt var í 1.311 manns þar til náð­ist í 800 manns sam­kvæmt lag­skiptu úrtaki. Svar­hlut­fallið var því 61 pró­sent og tóku 64,4 pró­sent þeirra sem náð­ist í afstöðu til spurn­ing­ar­innar.

Eins og kunn­ugt er verður kosið 28. októ­ber næst­kom­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

stjórnarkreppa

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár