Vinstri græn vildu ekki í starfsstjórn með Viðreisn og Bjartri framtíð

Formaður Vinstri grænna segir að þau hafi viljað fara í minni­hluta­sam­starf með Fram­sókn­ar­flokknum og Sam­fylk­ing­unni. Þegar ekki feng­ust svör frá Viðreisn og Bjartri fram­tíð um að verj­ast van­trausti hafi sú hug­mynd verið slegin út af borð­inu.

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna.
Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna. Mynd: RÚV/Skjáskot

Vinstri græn vildu ekki starfa með Viðreisn og Bjartri fram­tíð í starfs­stjórn eftir fall rík­is­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartar fram­tíðar fyrir helgi. Þetta segir Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna. Einnig voru hug­myndir um fimm flokka rík­is­stjórn­ar­sam­starf viðr­aðar of seint svo ekki kom annað til greina en að boða til kosn­inga. 

Leiðrétt: Í fyrri frétt var sagt Katrín Jak­obs­dóttir hefði slegið við­ræður um fimm flokka rík­is­stjórn út af borð­inu. Engar form­legar við­ræður höfðu átt sér stað áður en tekin var ákvörðun um að rjúfa þing.

[links]Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, segir í sam­tali við Kjarnann að ekki hafi komið til greina að mynda fimm flokka rík­is­stjórn vegna þess að flokkur hennar vildi ekki starfa með Viðreisn og Bjartri fram­tíð.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans var vilji hjá hinum flokk­unum fjórum, Viðreisn, Pírötum, Sam­fylk­ing­unni og Bjartri fram­tíð, að skoða þann mögu­leika að fara í stjórn­ar­sam­starf með Vinstri grænum. Þær við­ræður hafi aftur á móti stöðvað hjá flokki Katrínar. Hún segir það ekki vera rétt. 

[adspot]

Katrín segir að þeim hafi ekki hugn­ast að starfa með þessum tveimur flokkum eftir setu þeirra í nýfall­inni stjórn. Störf Við­reisnar og Bjartar fram­tíðar í rík­is­stjórn­inni hafi leitt það í ljós að stefnur flokk­anna og Vinstri grænna fari ekki saman. Ekki sé nóg að vera með fögur orð og lof­orð, það þurfi að fylgja þeim eftir.

Hún seg­ist opin fyrir minni­hluta­stjórn í fram­tíð­inni en í fyrsta lagi vilji hún vera í for­svari fyrir félags­hyggju­stjórn ef til þess kemur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár