Uppgjör við peningastefnuna framundan

Stjórn­völd ætla að end­ur­skoða pen­inga­stefn­una með það að mark­miði að koma á meiri stöð­ug­leika í geng­is­málum þjóð­ar­innar.

Frænd­urnir Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og Benedikt Jóhann­es­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Við­reisnar, standa nú frammi fyrir stóru póli­tísku við­fangs­efni ásamt stjórn­ar­meiri­hlut­anum; upp­gjöri við pen­inga­stefnu lands­ins.

Samhliða til­kynn­ingu þeirra í gær, um afnám fjár­magns­hafta frá og með morg­un­deg­inum, greindu þeir frá því að vinna myndi hefj­ast innan tíðar við end­ur­skoðun á umgjörð pen­inga­mála- og gjald­miðla­stefn­unnar í land­inu.

Verkefnastjórn skipuð

Þriggja manna verk­efn­is­stjórn hefur verið skipuð til þess að leiða þessa vinnu fyrir hönd stjórn­valda. Í henni eru Dr. Ásgeir Jónsson hag­fræð­ingur og kenn­ari við Háskóla Íslands, Ásdís Krist­jáns­dóttir hag­fræð­ingur hjá Samtökum atvinnu­lífs­ins og Illugi Gunn­ars­son hag­fræð­ingur og fyrr­ver­andi ráð­herra.

Tvö af þeim sem eru í hópnu hafa bein tengsl við fjár­mála­fyr­ir­tæki á mark­aði. Ásgeir hefur sinnt störfum fyrir Virðingu og eig­in­maður Ásdísar Krist­jáns­dóttur, Agnar Tómas Möller, er fram­kvæmda­stjóri sjóða hjá GAMMA og einn eig­enda fyr­ir­tæk­is­ins.

Þegar fram­kvæmda­hópur um afnám hafta var að störfum í tíð fyrri rík­is­stjórna, þá var einnig fólk í hópnum sem hafði bein tengsl við fjár­mála­fyr­ir­tæki, þar á meðal Sigurður Hann­es­son, for­maður hóps­ins, en hann er fram­kvæmda­stjóri hjá Kviku. Vöknuðu þá spurn­ingar um van­hæfi og of mikil tengsl við fjár­mála­fyr­ir­tæki á mark­aði.

Fólkið und­ir­rit­aði trún­að­ar­yf­ir­lýs­ingu og sögðu stjórn­völd að fólkið nyti trausts í störfum sínum, óháð þessum tengslum við fjár­mála­fyr­ir­tækin.

Reikna má með að svipað verði upp á teng­ingnum nú, enda lík­legt að fyr­ir­huguð end­ur­skoðun á umgjörð pen­inga­mála hafi mikil áhrif á fjár­mála­mark­aði sem og í sam­fé­lag­inu öllu.

Tinna Finn­boga­dóttir, hag­fræð­ingur í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu, mun starfa með verk­efn­is­stjórn­inni, og með verk­efn­is­stjórn­inni vinna einnig tengiliðir for­sæt­is­ráðu­neytis, fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytis og Seðla­banka Íslands, að því er segir í til­kynn­ingu frá rík­is­stjórn­inni.

Myntráð Viðreisnar

Markmið með þess­ari vinnu stjórn­valda er að finna „þann ramma pen­inga- og gjald­mið­ils­stefnu sem til lengri tíma litið er heppi­leg­astur til að styðja við efna­hags­legan og fjár­mála­legan stöð­ug­leika með til­liti til hag­vaxtar, verð­bólgu, vaxta, gengis og atvinnustigs“ eins og orð­rétt segir í til­kynn­ingu stjórn­valda.

Í end­ur­skoð­un­inni verður rammi núver­andi pen­inga­stefnu met­inn. Í henni er 2,5 pró­sent verð­bólgu­mark­mið Seðla­bank­ans mið­punktur, ef svo má að orði kom­ast, en með vinn­unni er ætl­unin að greina hvaða umbætur sé hægt að gera á pen­inga­stefn­unni „að því gefnu að halda skuli í meg­in­ein­kenni núver­andi pen­inga­stefnu sem byggir á verð­bólgu­mark­miði“ .

Meðal þess sem verk­efna­stjórnin mun gera er að líta á útfærslur á geng­is­mark­miði, til dæmis með hefð­bundnu fast­gengi eða fast­gengi í formi mynt­ráðs, en hið síð­ar­nefnda var eitt af helstu áherslu­málum Við­reisnar fyrir kosn­ingar 29. októ­ber síð­ast­lið­inn. Með mynt­ráði er ætl­unin að minnka geng­is­sveiflur og halda gengi krón­unnar innan ákveð­inna marka gagn­vart alþjóð­legum myntum.

Í mál­efna­skrá Við­reisnar er horft til mynt­ráðs sem alþjóð­legrar fyr­ir­myndar þegar kemur að pen­inga­mála­stjórn smærri ríkja. „Tekið verði upp mynt­ráð í stað núver­andi pen­inga­stefnu, hlið­stætt því sem tíðkast í fjöl­mörgum smærri ríkjum. Upptaka mynt­ráðs mun skapa var­an­legan geng­is­stöð­ug­leika, draga veru­lega úr vaxta­mun við útlönd og skapa for­sendur langvar­andi verð­stöð­ug­leika, til hags­bóta fyrir almenn­ing jafnt sem atvinnu­líf,“ segir á vef Við­reisnar.

Mark­miðið sé í grunn­inn að styrkja hag­stjórn­ina og skapa traustri stoðir undir atvinnu­líf­inu.

Samkvæmt stjórn­ar­sátt­mál­anum er síðan stefnt að því að fá nið­ur­stöðu í þessar vinnu á seinni hluta árs­ins og fram­kvæma þær breyt­ingar sem taldar eru best til þess fallnar að tryggja meiri stöð­ug­leika í efna­hags­líf­inu.

Árétting: Verk­efna­stjórn stjórn­valda, sem Ásgeir Jónsson, Ásdís Krist­jáns­dóttir og Illugi Gunn­ars­son eiga sæti í, hefur ekki sama hlut­verk og fram­kvæmda­hópur um afnám hafta hafði, þegar litið er til hlut­verks innan stjórn­sýsl­unnar. Hann er fyrst og fremst ráð­gef­andi fyrir stjórn­völd og er ekki að vinna með inn­herj­a­upp­lýs­ingar eins og fram­kvæmda­hóp­ur­inn þurfti að gera. Í sam­an­burði milli þess­ara atriða, er eðli­legt að horfa til þessa munar á milli hópanna tveggja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjármagnshöft

Fréttirfjármagnshöft

Fallið frá mála­ferlum vegna aflandskrónu­eigna

Fjórir fjár­fest­inga­sjóðir sem ætl­uðu sér að fara í mál við íslenska ríkið vegna lög­gjafar um með­ferð aflandskrónu­eigna hafa fallið frá því. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu. Sjóð­irnir höfðu fengið heim­ild frá Hæsta­rétti til að leggja spurn­ingar fyrir dóm­kvadda mats­menn vegna máls­ins en hafa nú fallið frá þeirri beiðni. Hæsti­réttur hafði heim­ilað sjóð­unum að bera upp fimm...

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár