Segir afnám hafta ekkert hafa með sölu Arion banka að gera

Bjarni Bene­dikts­son segir að engir fyr­ir­varar hafi verið í við­skiptum við þá sem seldu aflandskrónur í fyrra­sumar sem þeir geti nýtt til að sækja bætur til íslenskra stjórn­valda.

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra segir að þær ákvarð­anir um afnám hafta og það sam­komu­lag sem gert hefur verið við aflandskrónu­eig­endur um kaup á krónum þeirra hafi ekk­ert með fyr­ir­hug­aða sölu á Arion banka að gera. Hann viti til þess að til standi að skrá Arion banka á markað og að hluti þeirra sjóða sem eigi bank­ann í dag hafi hug á að taka þátt í kaupum á hluta af þeim bréfum. Bjarni seg­ist geta tekið undir það sjón­ar­mið að það sé ekki skyn­sam­legt að leita að skamm­tíma­eig­endum að bönk­unum en vænt­an­legir eig­endur verði ein­fald­lega að upp­fylla skil­yrði laga og kom­ast í gegnum „nál­ar­auga“ Fjár­mála­eft­ir­lits­ins sem meti hæfi eig­enda. Þetta kom fram í við­tali við Bjarna í Kast­ljósi í kvöld.

Helgi Seljan spurði Bjarna ítrekað hvort að hann ótt­að­ist að þeir aflandskrónu­eig­endur sem tóku þátt í aflandskrón­u­út­boði Seðla­banka Íslands sum­arið 2016, og seldu krón­urnar sínar á geng­inu 190 gagn­vart evru, myndu reyna að sækja bætur vegna þess hagn­aðar sem þeir urðu af. Þeim aflandskrónu­eig­endum sem neit­uðu að taka þátt í útboð­inu býðst ný að selja krón­urnar sínar á geng­inu 137,5 krónur fyrir hverja evru, eða á 38 pró­sent betri kjörum en voru í boði í útboð­inu í júní 2016. Nú þegar hafa eig­endur 90 millj­arða króna tekið þessu til­boði en enn standa eftir 105 millj­arðar króna í eigu þessa hóps, sem að mestu eru banda­rískir vog­un­ar­sjóðir. Í mái 2016 voru sam­þykkt lög þess efnis að eignir þeirra yrðu settar inn á vaxta­lita reikn­inga ef þeir myndu ekki ganga að skil­málum stjórn­valda, og selja á geng­inu 190 í útboð­unum í júní 2016. Til við­bótar áttu þeir að „fara aft­ast í röð­ina“ þegar kæmi að hafta­losun.

Bjarni sagð­ist ekki ótt­ast slíkar kröfur. Engir fyr­ir­varar hafi verið í útboð­unum í fyrra og um hafi verið að ræða frjáls við­skipti. Hann hafn­aði einnig ásök­unum um að verið væri að færa vog­un­ar­sjóðum mik­inn ávinn­ing með því að hleypa þeim út í stað þess að standa í lapp­irnar gagn­vart þeim. Engin hafi séð styrk­ingu krón­unnar fyrir og í henni liggi mesta virð­is­aukn­ingin sem vog­un­ar­sjóð­irnir séu að fá. Álagið sem lagt er ofan á skráð gengi er þó umtals­vert lægra nú en það var sum­arið 2016. Þá var gengið sem var í boði 37 pró­sent hærra en skráð gengi en nú er það um 20 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjármagnshöft

Fréttirfjármagnshöft

Fallið frá mála­ferlum vegna aflandskrónu­eigna

Fjórir fjár­fest­inga­sjóðir sem ætl­uðu sér að fara í mál við íslenska ríkið vegna lög­gjafar um með­ferð aflandskrónu­eigna hafa fallið frá því. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu. Sjóð­irnir höfðu fengið heim­ild frá Hæsta­rétti til að leggja spurn­ingar fyrir dóm­kvadda mats­menn vegna máls­ins en hafa nú fallið frá þeirri beiðni. Hæsti­réttur hafði heim­ilað sjóð­unum að bera upp fimm...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár