Fjármálaráðherra: 2017 er ekki nýtt 2007

Benedikt Jóhann­es­son fjár­mála­ráð­herra flutti þing­inu munn­lega skýrslu um afnám fjár­magns­hafta. Hann sagði að árið 2017 væri ekki nýtt 2007, staðan væri allt önnur nú.

„2017 er ekki nýtt 2007,“ sagði Benedikt Jóhann­es­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, í munn­legri skýrslu sinni um afnám fjár­magns­hafta á Alþingi í dag. Hann fagn­aði afnámi fjár­magns­hafta og þakk­aði öllum þeim sem hefðu lagt hönd á plóg við afnámið.

Benedikt sagði umsvif banka­kerf­is­ins mun minni nú en fyrir ára­tug, ein­stak­lingar og fyr­ir­tæki hafi greitt niður skuldir, en á þeim tíma hafi þeir safnað skuldum. Hag­fræð­ingar væru sam­mála um að efna­hagur þjóð­ar­innar standi nú mun betur en þá. „Ferða­þjón­usta, útvegur og fjöl­breytt nýsköpun hafa aukið útflutn­ing nú í stað hins hola banka­kerfis sem gein yfir öllu árið 2007. Fjár­mála­kerfið býr nú við ann­ars konar reglu­verk, þar sem áhætta er minni og gegn­sæi meira og við höldum áfram á þeirri braut.“

Í máli Bene­dikts kom einnig fram að hann og fleiri hefðu haldið fund með leið­togum stjórn­ar­and­stöð­unnar þremur dögum áður en fundur var hald­inn með full­trúum vog­un­ar­sjóða í New York á dög­unum. Áður hefur komið fram í máli hans að það hafi verið full­trúar vog­un­ar­sjóð­anna sem ósk­uðu eftir fundi með íslenskum stjórn­völdum. Hann sagði að hug­myndir vog­un­ar­sjóð­anna hefðu reynst óraun­hæfar og engir samn­ingar hefðu verið gerðir við þá.

Fjár­mála­ráð­herra sagði einnig að mögu­legt hefði verið að þurrka upp aflandskrónu­vand­ann í kringum útboðið sem Seðla­bank­inn hélt um mitt síð­asta ár, með því að lækka gengið aðeins. Það hafi ekki verið gert og nú sé hægt að sjá það glöggt að skyn­sam­legt hefði verið að gera það. „Í ráðu­neyt­inu heyri ég að lík­legt sé að á þeim tíma hefði verið hægt að þurrka snjó­hengj­una svo­nefndu upp að metu leyti ef gengið hefði verið á milli 165 og 170 krónur á evru. Nú sjáum við glöggt að skyn­sam­legt hefði verið að ljúka við­skipt­unum á því gengi. Þáver­andi stjórn­völd ákváðu að gera það ekki. Kannski vegna þess sjón­ar­miðs að með því hefði verið gert allt of vel við aflandskrónu­eig­endur. Eftir á sjá allir að Íslend­ingar hefðu grætt mjög mikið á því að ljúka dæm­inu þá, en menn misstu af því tæki­færi,“ sagði hann.

Umræðan um afnám fjár­magns­hafta fer nú fram á Alþingi, og hægt er að fylgj­ast með henni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjármagnshöft

Fréttirfjármagnshöft

Fallið frá mála­ferlum vegna aflandskrónu­eigna

Fjórir fjár­fest­inga­sjóðir sem ætl­uðu sér að fara í mál við íslenska ríkið vegna lög­gjafar um með­ferð aflandskrónu­eigna hafa fallið frá því. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu. Sjóð­irnir höfðu fengið heim­ild frá Hæsta­rétti til að leggja spurn­ingar fyrir dóm­kvadda mats­menn vegna máls­ins en hafa nú fallið frá þeirri beiðni. Hæsti­réttur hafði heim­ilað sjóð­unum að bera upp fimm...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár