Fjárfestingarsjóðirnir fengu evruna á 137,5 krónur

Fjórir fjár­fest­ing­ar­sjóðir sem hafa fallið frá máls­höfðun á hendur rík­inu fengu sama verð fyrir aflandskrónu­eignir sínar og aðrir und­an­farið. Þeir fengu evru á 137,5 krónur og gerðu sam­komu­lag við Seðla­bank­ann í mars síð­ast­liðnum.

Banda­rísku fjár­fest­ing­ar­sjóð­irnir sem hafa fallið frá máls­höfðun á hendur íslenska rík­inu vegna lög­gjafar um með­ferð aflandskrónu­eigna, fengu 137,5 krónur á evru í við­skiptum sínum við Seðla­bank­ann. Það er sama gengi og aðrir aflandskrónu­eig­endur hafa fengið nýlega. Þeir gerðu sam­komu­lag við Seðla­banka Íslands í mars síð­ast­liðnum, og voru hluti af 90 millj­arða kaupum sem þá voru til­kynnt.

Þetta kemur fram í svari Seðla­banka Íslands við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið. Seðla­bank­inn svar­aði því ekki nánar hversu há upp­hæð um er að ræða í sam­komu­lagi þess­ara fjög­urra sjóða, aðeins að það hafi verið hluti af 90 millj­örð­unum.

Tilkynnt var um það í gær að sjóð­irnir hefðu fallið frá máls­höfðun á hendur rík­inu í ljósi þess að þeir hefðu náð sam­komu­lagi við Seðla­bank­ann. Sjóð­irnir, undir for­ystu Autonomy Capital, höfðu fengið heim­ild frá Hæsta­rétti til að leggja spurn­ingar fyrir dóm­kvadda mats­menn vegna máls­ins. Hæsti­réttur hafði heim­ilað þeim að bera upp fimm af ell­efu mats­spurn­ingum sem þeir fóru fram á að fá rök­stutt álit sér­frórða aðila á.

Í bréfi frá full­trúum þess­ara sjóða til rík­is­lög­manns segir að í ljósi sam­komu­lags Seðla­banka Íslands og sjóð­anna um kaup bank­ans á aflandskrónum þeirra hafi verið ákveðið að falla frá beiðn­inni. Því er nú eng­inn úti­stand­andi mála­rekstur á hendur rík­inu vegna fram­kvæmdar áætl­unar stjórn­valda um afnám fjár­magns­hafta, að því er fram kemur í til­kynn­ingu frá ráðu­neyt­in­u.

Sjóð­irnir höfðu hót­að mála­ferlunum eftir að Alþingi sam­þykkti aflandskrónu­frum­varp Bjarna Bene­dikts­sonar fyrir tæpu ári síð­an, og aflandskrónu­eig­endum voru settir afar­kost­ir. Þá var þeim boðið að kom­ast frá Íslandi með því að borga 190 krónur fyrir hverja evru, ef þeir gengu ekki að því færu þeir aft­ast í röð­ina við losun fjár­magns­hafta og eignir þeirra settar inn á nær vaxta­lausa reikn­inga.

Flestir aflandskrónu­eig­endur neit­uðu að taka þátt í þessu, en þess í stað fólu þessir sjóð­ir lög­mönnum að kanna grund­völl fyrir máls­höfðun á hendur íslenska rík­inu, auk þess sem kvartað var til Eft­ir­lits­stofn­unar EFTA vegna lag­anna.

Nú í vor hafa full­trúar íslenskra stjórn­valda svo fundað með full­trúum sjóð­anna í aðdrag­anda afnáms haft­anna. Þeim hefur boð­ist að greiða 137,5 krónur fyrir hverja evru, hag­stæð­ara en þeim bauðst fyrir tæpu ári. Það er á því verði sem þessir sjóðir gerðu sam­komu­lag sitt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjármagnshöft

Fréttirfjármagnshöft

Fallið frá mála­ferlum vegna aflandskrónu­eigna

Fjórir fjár­fest­inga­sjóðir sem ætl­uðu sér að fara í mál við íslenska ríkið vegna lög­gjafar um með­ferð aflandskrónu­eigna hafa fallið frá því. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu. Sjóð­irnir höfðu fengið heim­ild frá Hæsta­rétti til að leggja spurn­ingar fyrir dóm­kvadda mats­menn vegna máls­ins en hafa nú fallið frá þeirri beiðni. Hæsti­réttur hafði heim­ilað sjóð­unum að bera upp fimm...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár