Fallið frá málaferlum vegna aflandskrónueigna

Fjármálaráðuneytið sendi frá sér tilkynningu um að búið væri að falla frá kröfunum.
Fjár­mála­ráðu­neytið sendi frá sér til­kynn­ingu um að búið væri að falla frá kröf­unum. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Fjórir fjár­fest­inga­sjóðir sem ætl­uðu sér að fara í mál við íslenska ríkið vegna lög­gjafar um með­ferð aflandskrónu­eigna hafa fallið frá því. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu.

Sjóð­irnir höfðu fengið heim­ild frá Hæsta­rétti til að leggja spurn­ingar fyrir dóm­kvadda mats­menn vegna máls­ins en hafa nú fallið frá þeirri beiðni. Hæsti­réttur hafði heim­ilað sjóð­unum að bera upp fimm af þeim ell­efu mats­spurn­ingum sem þeir fóru upp­haf­lega fram á að fá rök­stutt álit sér­fróðra aðila á. Það var sjóð­ur­inn Autonomy Capital sem upp­haf­lega fór með málið fyrir dóm­stóla.

Í bréfi frá full­trúum þess­ara sjóða til rík­is­lög­manns segir að í ljósi sam­komu­lags Seðla­banka Íslands og sjóð­anna um kaup bank­ans á aflandskrónum þeirra hafi verið ákveðið að falla frá beiðn­inni. Því er nú eng­inn útistand­andi mála­rekstur á hendur rík­inu vegna fram­kvæmdar áætl­unar stjórn­valda um afnám fjár­magns­hafta, að því er fram kemur í til­kynn­ingu frá ráðu­neyt­inu.

Sjóð­irnir hót­uðu mála­ferlum eftir að Alþingi sam­þykkti aflandskrónu­frum­varp Bjarna Bene­dikts­sonar fyrir tæpu ári síðan, og aflandskrónu­eig­endum voru settir afar­kostir. Þá var þeim boðið að kom­ast frá Íslandi með því að borga 190 krónur fyrir hverja evru, ef þeir gengu ekki að því færu þeir aft­ast í röð­ina við losun fjár­magns­hafta og eignir þeirra settar inn á nær vaxta­lausa reikn­inga.

Flestir aflandskrónu­eig­endur neit­uðu að taka þátt í þessu, en þess í stað fólu sjóð­irnir lög­mönnum að kanna grund­völl fyrir máls­höfðun á hendur íslenska rík­inu, auk þess sem kvartað var til Eft­ir­lits­stofn­unar EFTA vegna lag­anna.

Nú í vor hafa full­trúar íslenskra stjórn­valda svo fundað með full­trúum sjóð­anna í aðdrag­anda afnáms haft­anna. Þeim hefur boð­ist að greiða 137,5 krónur fyrir hverja evru, hag­stæð­ara en þeim bauðst fyrir tæpu ári. Sam­komu­lag hefur náðst við þessa sjóði sem þýðir að ekk­ert verður af þessum mála­ferlum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjármagnshöft

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár