Telja Icelandair hafa notfært sér óvissu vegna faraldursins til að klekkja á flugfreyjum

Icelandair hefur að mati stjórnar Eflingar not­fært sér óvissu og efna­hags­sam­drátt vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins til að klekkja á flug­freyjum á einkar tæki­fær­is­sinn­aðan og ósann­gjarnan hátt.

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.
Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar. Mynd: Bára Huld Beck

Stjórn Eflingar lýsir reiði og undrun vegna fram­göngu Icelandair í garð flug­freyja og stétt­ar­fé­lags þeirra, Flug­freyju­fé­lags Íslands, í tengslum við yfir­stand­andi kjara­við­ræður.

Þetta kemur fram í ályktun stjórnar Eflingar vegna kjara­deilu Icelandair og Flug­freyju­fé­lags Íslands sem sam­þykkt var í dag.

Fram kom í fréttum Frétta­blaðs­ins og Morg­un­blaðs­ins í morgun að Icelandair íhug­aði að ráða flug­freyjur sem standa fyrir utan Flug­freyju­fé­lag Íslands ef ekki náð­ust samn­ingar við stétt­ar­fé­lagið. Enn fremur að sett yrði á lagg­irnar nýtt stétt­ar­fé­lag fyrir þær flug­freyjur sem fylgja Flug­freyju­fé­lag­inu ekki að málum og látið reyna á ákvæði þess efnis fyrir félags­dómi.

Icelandair hefur að mati stjórnar Eflingar not­fært sér óvissu og efna­hags­sam­drátt vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins til að klekkja á flug­freyjum á einkar tæki­fær­is­sinn­aðan og ósann­gjarnan hátt. Stjórn Eflingar telur að flug­freyjur eins og annað verka­fólk innan vébanda ASÍ eigi rétt á sam­bæri­legum kjara­samn­ingi og þeim sem nú er í gildi hjá yfir­gnæf­andi meiri­hluta félags­manna aðild­ar­fé­laga ASÍ.

Telja slíka starfshætti grófa ögrun við lög og venjur

„Fréttir í helstu fjöl­miðlum herma að Icelandair hygg­ist leita leiða til að ráða flug­freyjur utan stétt­ar­fé­laga eða jafn­vel beita sér fyrir stofnun sér­staks stétt­ar­fé­lags í þeim til­gangi að geta samið um verri kjör fyrir flug­freyjur.

Þessir starfs­hættir eru gróf ögrun við lög, venjur og sam­eig­in­legan skil­ing aðila sem íslenskur vinnu­mark­aður byggir á,“ segir í álykt­un­inni.

Enn fremur kemur fram að verka­fólk eigi ský­lausan rétt til að bind­ast sam­tökum í stétt­ar­fé­lagi til að semja um sín kaup og kjör. Sá réttur sé mann­rétt­indi og var­inn af bæði lögum og stjórn­ar­skrá. Allt verka­fólk eigi ríka hags­muni af því að standa sam­eig­in­legan vörð um þennan rétt.

Ætli íslensk stór­fyr­ir­tæki nú með aðstoð hins opin­bera að hefja árásir á þessi grunn­rétt­indi verka­fólks mun Efling ekki horfa upp á það þegj­andi og hljóða­laust, að því er fram kemur í álykt­un­inni.

Lífeyrissjóðir hljóta að hafna því að fjárfesta í slíkum fyrirtækjum

[links]Stjórn Eflingar bendir á að Icelandair sé að stórum hluta í eigu líf­eyr­is­sjóða, sem eru sam­eig­in­legir sjóðir launa­fólks og undir stjórn þeirra. Líf­eyr­is­sjóðir hljóti að hafna því að fjár­festa í fyr­ir­tækjum sem stunda beinar árásir á grunn­rétt­indi launa­fólks.

Að sama skapi bendir stjórn Eflingar á að íslenska ríkið haldi nú uppi rekstri Icelandair með beinum stuðn­ingi. Stjórn Eflingar krefst þess að íslenska ríkið, rétt eins og líf­eyr­is­sjóðir, hafni því að styðja við fyr­ir­tæki sem stunda árásir á lögvarin rétt­indi verka­fólks.

Forstjórinn neitar þessu

Fram kom í frétt RÚV í morgun að Icelandair hefði ekki verið í við­ræðum við önnur stétt­ar­fé­lög um gerð kjara­samn­ings um störf flug­freyja og flug­þjóna hjá félag­inu. Þetta kom fram í bréfi Boga Nils Boga­sonar, for­stjóra Icelandair, til Flug­freyju­fé­lags Íslands í dag. „Það stað­fest­ist hér með að Icelandair hefur ekki verið í við­ræðum við önnur stétt­ar­fé­lög um gerð kjara­samn­ings um störf flug­freyja og flug­þjóna hjá félag­inu. Það hefur verið mark­mið félags­ins frá upp­hafi við­ræðna að tryggja nýjan kjara­samn­ing á milli Icelandair og FFÍ sem tryggir hags­muni beggja aðila og von­ast Icelandair enn til þess að slík nið­ur­staða náist fram í tæka tíð,“ segir Bogi Nils, að því er fram kemur í frétt RÚV. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár