Sveitarstjórnasviptingar

Nið­ur­stöður nýaf­stað­inna sveit­ar­stjórna­kosn­inga í Danmörku voru áfall fyrir Jafn­að­ar­menn. Danski þjóð­ar­flokk­ur­inn er í sárum og for­mað­ur­inn hefur boðað afsögn. Formaður Íhalds­flokks­ins hefur ástæðu til bjart­sýni og Venstre flokk­ur­inn hélt sjó.

Kaupmannahöfn
Kaup­manna­höfn Mynd: Wiki Commons/European Commission

Nið­ur­stöður sveit­ar­stjórna­kosn­inga eru iðu­lega taldar vís­bend­ing um hvernig vind­arnir blása í lands­málapóli­tík­inni. Eins­konar póli­tísk loft­vog. Gott gengi í sveit­ar­stjórna­kosn­ingum blæs vindi í segl við­kom­andi flokks en slakt gengi veldur áhyggjum.

Síð­ast­lið­inn þriðju­dag, 16. nóv­em­ber fóru fram sveit­ar­stjórna­kosn­ingar í Danmörku. Í aðdrag­anda kosn­ing­anna var ekki mikið fjallað um áherslur og bar­áttu­mál ein­stakra flokka og fram­bjóð­enda vítt og breitt um landið. Allt slíkt hvarf í skugga umfjöll­unar um minka­málið svo­nefnda og ákvarð­ana stjórn­valda í því máli. Minka­málið verður ekki rakið hér en það snýst um þá ákvörðun stjórn­valda, 3. nóv­em­ber í fyrra, að fyr­ir­skipa aflífun danska minka­stofns­ins, 15 til 17 millj­ónum dýra, á öllum búum lands­ins. Rannsókn vegna þessa máls stendur nú yfir, hún er mjög yfir­grips­mikil og fjöl­margir emb­ættis – og stjórn­mála­menn mega sæta löngum yfir­heyrslum rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar. Til­gang­ur­inn er að kom­ast að því hver bar ábyrgð á, og tók ákvörðun um, að slá minka­stofn­inn af og hvort ráð­herrar, og þá hvaða ráð­herrar, hafi vitað að sú ákvörðun stydd­ist ekki við lög.

Flokkur Jafn­að­ar­manna, Socialdemokratiet, undir for­ystu Mette Frederik­sen tók við völdum eftir þing­kosn­ing­arnar árið 2019. Stjórnin er minni­hluta­stjórn, eins og algengt hefur verið í Danmörku en nýtur stuðn­ings flokka úr rauðu blokk­inni svo­nefndu, þ.e. flokka á miðju og vinstri væng danskra stjórn­mála. Jafn­að­ar­manna­flokk­ur­inn er stærsti flokk­ur­inn á danska þing­inu, Fol­ket­inget, og enn­fremur í sveit­ar­stjórnum í land­inu.

Spá um fylgistap Jafnaðarmanna rættist

Skoð­ana­kann­anir fyrir kosn­ing­arnar 16. nóv­em­ber sýndu tals­vert fylgis­tap Jafn­að­ar­manna. Ekki síst í stærstu borgum lands­ins, Kaup­manna­höfn, Árósum, Óðins­véum og Álaborg. Stjórn­mála­skýrendur nefndu einkum tvær ástæður. Í fyrsta lagi havaríið í kringum minka­málið, ekki hvað síst tengt sms skila­boðum sem eytt hafði verið úr síma for­sæt­is­ráð­herr­ans. Í öðru lagi töldu stjórn­mála­skýrendur að sú ákvörðun að flytja fjölda starfa frá stórum þétt­býl­is­stöðum út í dreif­býlið ylli fylgis­tapi Jafn­að­ar­manna í stærstu borg­unum. Þótt ráð­herrar rík­is­stjórn­ar­innar, með Mette Frederik­sen for­sæt­is­ráð­herra í broddi fylk­ingar, helltu sér í kosn­inga­bar­átt­una síð­ustu dag­ana hrökk það ekki til. Spár og skoð­ana­kann­anir gengu eftir, Jafn­að­ar­menn töp­uðu umtals­verðu fylgi.

Höggið var þyngst í Kaup­manna­höfn þar sem flokk­ur­inn tap­aði rúmum 10 pró­sentu­stigum, fékk 17.3% og er ekki lengur stærsti flokk­ur­inn í höf­uð­borg­inni. Ein­ing­ar­list­inn fékk flest atkvæði kjós­enda í Kaup­manna­höfn (24.6%) en Jafn­að­ar­menn héldu þó yfir­borg­ar­stjóra­emb­ætt­inu, en í borg­inni eru 7 borg­ar­stjórar. Meiri­hluti flokka í borg­ar­stjórn Kaup­manna­hafnar vildi ekki styðja full­trúa Ein­ing­ar­list­ans í emb­ætti yfir­borg­ar­stjóra og ákváðu þess í stað að styðja Sophie Hæstorp Andersen. Jafn­að­ar­manna­flokk­ur­inn fékk 28.4% atkvæða á lands­vísu tap­aði 4 pró­sentu­stigum frá kosn­ing­unum 2017. ,,Von­brigði en varn­ar­sigur“ sagði einn ráð­herra rík­is­stjórn­ar­innar.

Hrunadans Danska þjóðarflokksins

Það hefur ekki blásið byr­lega fyrir Danska þjóð­ar­flokk­inn á síð­ustu árum. Flokk­ur­inn fékk herfi­lega útreið í þing­kosn­ing­unum 2019, tap­aði 21 þing­manni, stóð eftir með 16 full­trúa á þing­inu. Í kjöl­farið fóru að heyr­ast raddir sem lýstu efa­semdum um for­mann­inn Kristian Thulesen Dahl. Hann hafði tekið við for­mennsk­unni af Piu Kjærs­gaard árið 2012, og í kjöl­farið tók fylgi flokks­ins stökk upp á við.

Hruna­dansi flokks­ins lauk ekki með kosn­inga­úr­slit­unum 2019, úrslit sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­anna í síð­ustu viku voru rot­högg, eins og stjórn­mála­skýr­andi dag­blaðs­ins Politi­ken komst að orði. Flokk­ur­inn tap­aði helm­ingi fylg­is­ins í kos­ing­unum í síð­ustu viku og stóð eftir með 4.1% atkvæða á lands­vísu.

Formaðurinn hættir

Þegar úrslit sveit­ar­stjórna­kosn­ing­anna urðu ljós lýsti Kristian Thulesen Dahl yfir að hann óskaði eftir að boðað yrði til fundar í flokks­stjórn­inni og þar yrði kos­inn nýr for­maður. Til­kynnti jafn­framt að þar yrði hann ekki í kjöri. Samkvæmt reglum flokks­ins skal halda slíkan fund innan tveggja mán­aða frá því að ákvörðun þar að lút­andi hefur verið tekin. Yfir­lýs­ing Kristian Thulesen Dahl þótti mikil tíð­indi í dönskum stjórn­málum, þótt hún hafi ekki bein­línis komið á óvart. Á fundi flokk­stjórnar Danska þjóð­ar­flokks­ins í gær, laug­ar­dag, var ákveðið að nýr for­maður skuli kos­inn 23. jan­úar næst­kom­andi.

Ljón í veginum

Hjá dönskum stjórn­mála­flokkum er algeng­ast að ein­hver erfða­prins, eða prinsessa bíði á hlið­ar­lín­unni þegar til for­manns­skipta kemur. Ástandið í Danska þjóð­ar­flokknum er hins­vegar nokkuð sér­kenni­legt hvað þetta varðar. Lengi hefur legið í loft­inu, og rætt um, að Morten Messerschmidt, sem er vara­for­maður flokks­ins, myndi taka við for­mennsk­unni þegar að því kæmi að Kristian Thulesen Dahl stigi til hliðar. En, það er hins­vegar ljón í vegi Morten Messerschmidt. Það ljón er dómur sem hann hlaut í Bæj­ar­rétti (sem er lægsta dóm­stig) fyrr á þessu ári, fyrir að hafa mis­farið með fé úr sjóðum Evr­ópu­sam­bands­ins. Um það mál var fjallað ítar­lega í frétta­skýr­ingu hér í Kjarn­anum 8. ágúst sl.

Morten Messerschmidt áfrýj­aði dómi Bæj­ar­réttar en lík­legt er talið að dómur Lands­réttar verði kveð­inn upp í febr­úar á næsta ári. Eins og fram kom framar í þessum pistli hefur nú verið ákveðið að nýr for­maður Danska þjóða­flokks­ins verði kos­inn 23. jan­úar. Sú ákvörðun kemur lík­ast til í veg fyrir að Morten Messerschmidt geti boðið sig fram til emb­ættis for­manns Danska þjóð­ar­flokks­ins.

Hvaða formannskostir eru í boði?

Þessari spurn­ingu velta margir fyrir sér. Svarið liggur ekki í augum uppi. Nokkrir mögu­leikar hafa heyrst nefndir. Einn er sá að Pia Kjærs­gaard, stofn­andi og fyrr­ver­andi for­maður flokks­ins verði eins­konar „milli­bils­for­maður“. Hún hefur reyndar sagt að for­mennsku­skeiði hennar sé lokið, en danskir stjórn­mála­skýrendur segja ekki alltaf mikið að marka slíkar yfir­lýs­ingar. Annar mögu­leiki sem nefndur var sá að fresta for­manns­kjör­inu, með sér­stakri sam­þykkt, til vors. Þá yrði vænt­an­lega komin nið­ur­staða í mál Morten Messerschmidt. Sú hug­mynd var slegin af á fund­inum í gær. Innan raða Danska þjóð­ar­flokks­ins hefur tals­vert verið rætt um að fá Inger Støjberg fyrr­ver­andi ráð­herra inn­flytj­enda­mála (í stjórn Venstre) til liðs við flokk­inn. Hún er þing­maður utan flokka.

Einn hængur er á þess­ari hug­mynd: emb­ætt­is­færslur Inger Støjberg, vegna mál­efna hæl­is­leit­enda og flótta­fólks í stjórn­ar­tíð Venstre eru nú fyrir Lands­dómi (Rigsret) og verði hún fundin sek er úti­lokað að hún geti orðið for­maður Danska þjóð­ar­flokks­ins. Líklegt er að dómur falli fyrir ára­mót og verði Inger Støjberg sýknuð er aldrei að vita hvað hún gerir.

En eru ekki fleiri mögu­leg for­manns­efni innan Danska þjóð­ar­flokks­ins kann nú ein­hver að spyrja. Svarið við þeirri spurn­ingu er að innan flokks­ins eru ekki aug­ljósir val­kostir. Nafn Peter Kofod er þó iðu­lega nefnt þegar rætt er um „fram­tíð­ar­leið­toga“ flokks­ins. Hann er 31 árs og situr á Evr­ópu­þing­inu.

Hann hafði lýst sig fylgj­andi því að for­manns­kjöri Danska þjóð­ar­flokks­ins verði frestað til vors, með þeim rökum að þá verði nið­ur­staða komin í mál þeirra Morten Messerschmidt og Inger Støjberg. Peter Kofod hefur í við­tölum síð­ustu daga ekki úti­lokað að hann bjóði sig fram til for­manns, en fram­boðs­frestur er til 7. jan­úar.

Ljóst er að nýs for­manns bíða erfið verk­efni við end­ur­reisn flokks­ins.

Íhaldsflokkurinn

Eftir nokkur mögur ár er fylgi Íhalds­flokks­ins (Det konservative Fol­ke­parti) á upp­leið. Flokk­ur­inn fékk 15.2% greiddra atkvæða í sveit­ar­stjórna­kosn­ing­unum sl. þriðju­dag, bætti við sig 6.4 pró­sentu­stigum frá kosn­ing­unum 2017. Í þing­kosn­ing­unum 2019 tvö­fald­aði flokk­ur­inn fylgi sitt og hefur nú 12 þing­menn. For­mað­ur­inn Søren Pape Poulsen, sem tók við for­mennsk­unni árið 2014 nýtur vin­sælda, hann var dóms­mála­ráð­herra á árunum 2016 til 2019.

Það skyggði aðeins á gleð­ina að flokk­ur­inn mátti sjá á eftir borg­ar­stjóra­emb­ætt­inu á Frið­riks­bergi í hendur Jafn­að­ar­manna, í fyrsta skipti í 112 ár.

Venstre hélt sjó

Það hefur gengið á ýmsu hjá Venstre (sem skil­greinir sig sem hægri-miðju­flokk) að und­an­förnu. Jakob Ellemann-Jensen tók við for­manns­emb­ætt­inu eftir að Lars Løkke Rasmus­sen og Kristian Jensen sögðu af sér for­mennsku og vara­for­mennsku í lok ágúst 2019. Lars Løkke sagði sig síðar úr flokknum, það gerði líka Inger Støjberg. For­mað­ur­inn Jakob Ellemann hefur sætt tals­verðri gagn­rýni og flokknum var ekki spáð góðu gengi í nýaf­stöðnum sveit­ar­stjórna­kosn­ingum. Danskir stjórn­mála­skýrendur segja að Venstre megi sæmi­lega una við úrslitin. Flokk­ur­inn er næst stærsti flokkur lands­ins, fékk í heild­ina 21.2% atkvæða, 1.9 pró­sentu­stigum minna en í kosn­ing­unum 2017.

Í lokin má geta þess að af tæp­lega 100 borg­ar­stjórum í Danmörku er rétt um fimmt­ungur konur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár