Samtök atvinnulífsins segja ekki upp kjarasamningum

Eftir að stjórn­völd kynntu 25 millj­arða króna aðgerð­ar­pakka í morgun ákvað fram­kvæmda­stjórn Samtaka atvinnu­lífs­ins að atkvæða­greiðsla um Lífs­kjara­samn­ing­inn myndi ekki fara fram. Kjara­samn­ingar gilda því áfram.

Halldór Benjamín Þorbergsson er framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.
Halldór Benjamín Þor­bergs­son er fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Fram­kvæmda­stjórn Samtaka atvinnu­lífs­ins ákvað á fundi sínum í dag að hætta við atkvæða­greiðslu um hvort að segja ætti upp kjara­samn­ingum, en slík atkvæða­greiðsla átti að hefj­ast á hádegi. Því mun Lífs­kjara­samn­ing­ur­inn, sem gerður var til þriggja ára í apríl í fyrra, gilda áfram en segja þurfti honum upp fyrir lok dags á morgun. Það höfðu Samtök atvinn­lífs­ins lýst yfir vilja til að gera í ljósi þess að þau töldu for­sendur hans ekki lengur halda.

[links]Rík­is­stjórn Íslands kynnti í morgun átta aðgerð­ir, sem hún telur að muni kosta skatt­greið­endur 25 millj­arða króna, til að höggva á þann hnút sem er á vinnu­mark­aði og koma í veg fyrir að Samtök atvinnu­lífs­ins myndu segja upp kjara­samn­ingum. 

Helstu aðgerðir eru þær að trygg­inga­gjald verður lækkað tíma­bundið í eitt ár, til loka árs 2021, um 0,25 pró­sent og er kostn­aður rík­is­sjóðs við þetta metin á fjóra millj­arða króna. 

Í til­kynn­ingu frá Samtökum atvinnu­lífs­ins segir að fram­kvæmda­stjórn þeirra hafi lagt mat á aðgerð­ar­pakka stjórn­valda og það mat hafi skilað ofan­greindri nið­ur­stöðu: kjara­samn­ingum verði ekki sagt upp. Aðgerðir stjórn­valda komi til með að milda kostnað fyr­ir­tækja á almennum vinnu­mark­aði vegna launa­hækk­anna sem taka gildi 1. jan­úar næst­kom­andi, og Samtök atvinnu­lífs­ins telja að muni kosta fyr­ir­tækin í land­inu 40 til 45 millj­arða króna á árs­grund­velli.

Þar segir þó að eftir sem áður muni launa­hækk­an­irnar veikja stöðu atvinnu­lífs­ins og mörg fyr­ir­tæki þurfi að bregð­ast við þeim kostn­aði. „Fram­kvæmda­stjórn SA telur sættir á vinnu­mark­aði mik­il­vægar og vill stuðla að þeim. Þær verða þó ekki keyptar á hvaða verði sem er. Verka­lýðs­for­ystan hefur því miður ekki verið til­búin til við­ræðna um aðgerðir til að bregð­ast við for­sendu­bresti í atvinnu­líf­inu.“

[adspot]Sú staða hafi þvingað Samtök atvinnu­lífs­ins til að leita sam­starfs við stjórn­völd um mótun sam­eig­in­legra við­bragða við breyttri stöðu atvinnu­lífs­ins frá því þegar Lífs­kjara­samn­ing­ur­inn var und­ir­rit­aður. „Yfir­lýs­ingin ber vitni um sam­eig­in­lega ábyrgð SA og stjórn­valda og vilja til þess að leiða sam­fé­lagið í gegnum krepp­una.“

Verkalýðshreyfingin gagnrýndi aðgerðapakka harðlega

Verka­lýðs­hreyf­ingin hefur ekki tekið aðgerða­pakka stjórn­valda jafn fagn­andi og Samtök atvinnu­lífs­ins. Alþýðu­sam­band Íslands fór um hádeg­is­bil í dag fram á að stjórn­völd gefi vil­yrði um að hækka grunnatvinnu­leys­is­bæt­ur, sem nú eru 289.510 krón­ur, og þak tekju­tengdra atvinnu­leys­is­bóta sam­hliða þeim aðgerð­ar­pakka sem þau kynntu í morgun fyrir atvinnu­líf­ið. Sam­bandið mót­mælti einnig lækkun trygg­inga­gjalds þar sem það standi undir mik­il­vægum innviðum á borð við fæð­ing­ar­or­lof og atvinnu­leys­is­trygg­ing­um, auk þess sem það hafi þegar lækkað um 0,5 pró­sent á síð­ustu tveimur árum og sé „nán­ast eini skatt­ur­inn sem fyr­ir­tæki greiða“.

Efl­ing sendi einnig frá sér til­kynn­ingu í hádeg­inu vegna aðgerð­ar­pakka stjórn­valda. Þar sagði að þær aðgerðir sem hönd sé á festand­i í yfir­lýs­ingu stjórn­valda styðji ein­göngu „at­vinnu­rek­endur og efna­fólk, láta undan óeðli­legum þrýst­ingi þeirra og hlunn­fara vinn­andi fólk.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár