ASÍ mótmælir lækkun á tryggingagjaldi – Efling segir opinberu fé ausið til efnafólks

ASÍ mót­mælir fyr­ir­hug­aðri lækkun á trygg­inga­gjaldi og segir að það sé „nán­ast eini skatt­ur­inn sem fyr­ir­tæki greiða“. Sam­bandið vill að rík­is­stjórnin gefi vil­yrði um hækkun atvinnu­leys­is­bóta sam­hliða því að nýjum aðgerð­ar­pakka verði hrint í fram­kvæmd.

Drífa Snædal er forseti ASÍ.
Drífa Snædal er for­seti ASÍ. Mynd: Bára Huld Beck

Alþýðu­sam­band Íslands (ASÍ) fer fram á að stjórn­völd gefi vil­yrði um að hækka grunnatvinnu­leys­is­bætur, sem nú eru 289.510 krónur, og þak tekju­tengdra atvinnu­leys­is­bóta sam­hliða þeim aðgerð­ar­pakka sem þau kynntu í morgun fyrir atvinnu­lífið.

[links]Sá pakki er met­inn á 25 millj­arða króna af rík­is­stjórn­inni, telur átta aðgerðir, og felur meðal ann­ars í sér lækkun á trygg­inga­gjaldi og beina styrki til fyr­ir­tækja úr rík­is­sjóði sem hafa orðið fyrir tekju­hruni vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. ASÍ telur sumar aðgerð­anna vera lítt úthugs­aðar og fer fram á að koma að útfærslu þeirra.

Sam­bandið mót­mælir til að mynda lækkun trygg­inga­gjalds þar sem það standi undir mik­il­vægum innviðum á borð við fæð­ing­ar­or­lof og atvinnu­leys­is­trygg­ingum, auk þess sem það hafi þegar lækkað um 0,5 pró­sent á síð­ustu tveimur árum og sé „nán­ast eini skatt­ur­inn sem fyr­ir­tæki greiða“. „Lækkun trygg­inga­gjalds þvert á atvinnu­greinar mætir ekki kröfu ASÍ um sér­tækar aðgerðir til að mæta sér­tækum vanda. Verði þessi leið farin þurfa stjórn­völd að brúa bilið. ASÍ áréttar að það kemur alls ekki til álita að fresta leng­ingu fæð­ing­ar­or­lofs eða skerða greiðslur í fæð­ing­ar­or­lofi.“

[adspot]Sam­bandið leggur líka þunga áherslu á að koma að útfærslu beinna styrkja til fyr­ir­tækja sem orðið hafi fyrir tekju­falli og gerir ráð fyrir að sú aðgerð eigi „öðru fremur að koma til móts við litla rekstr­ar­að­ila og ein­yrkja sem hafa orðið ein­stak­lega illa úti, ekki ein­göngu innan ferða­þjón­ustu heldur líka í tengdum greinum, í listum, menn­ingu, tækni­greinum o.fl.“

Í til­kynn­ingu frá ASÍ, þar sem við­brögðum sam­bands­ins við aðgerð­ar­pakka rík­is­stjórn­ar­innar er lýst, segir að í yfir­lýs­ingu stjórn­valda skorti „heild­ar­sýn um þær aðgerðir sem nauð­syn­legt er að grípa til vegna Covid-krepp­unnar. Alþjóð­legum stofn­unum á borð við Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­inn og OECD ber saman um að lyk­il­verk­efnið sé að tryggja afkomu­ör­yggi fólks. Með því verði komið í veg fyrir að kreppan verði djúp og lang­vinn.“ Þess vegna þurfi að hækka atvinnu­leys­is­bætur.

Auk þess setur ASÍ fram ský­lausa kröfu um að í frum­varpi til starfs­kjara­laga, sem leggja á fram á haust­þingi, verði kveðið á um févíti vegna launa­þjófn­aðar. „Það er með öllu ólíð­andi að atvinnu­rek­endur kom­ist upp með að stela launum fólks og með ólík­indum að stjórn­völd hiki við að leiða í lög tæki sem raun­veru­lega bíta gegn svo sið­lausu athæfi. “

Segja opinberu fé vera ausið til efnafólks

Efling sendi einnig frá sér til­kynn­ingu í hádeg­inu vegna aðgerð­ar­pakka stjórn­valda. Þar segir að þær aðgerðir sem hönd sé á festandi í yfir­lýs­ingu stjórn­valda styðji ein­göngu „atvinnu­rek­endur og efna­fólk, láta undan óeðli­legum þrýst­ingi þeirra og hlunn­fara vinn­andi fólk.“

Efling gagn­rýnir, líkt og ASÍ, að ekki sé að finna neinar efndir á lof­orði um að lög­binda févíti vegna launa­þjófn­aðar. Þá segir í til­kynn­ingu stétt­ar­fé­lags­ins að lof­orð um skatta­af­slátt til stór­efna­fólks sem standi í hluta­bréfa­kaupum veki algjöra furðu. „Sú aðgerð gengur þvert á mark­mið skatt­kerf­is­breyt­inga sem lofað var í tengslum við lífs­kjara­samn­ing­anna. Þeim breyt­ingum var ætlað að leið­rétta „stóru skatta­til­færslu“ síð­ustu ára­tuga frá hálauna- og stór­eigna­fólki yfir á herðar lág­launa­fólks. Efling harmar að sjá rík­is­stjórn­ina vinna þannig gegn rétt­lát­ara skatt­kerfi.“

Í til­kynn­ingu Eflingar er sömu­leiðis gagn­rýnt að ekk­ert sé fjallað um til­lögur verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar um hækkun grunnatvinnu­leys­is­bóta og sagt að rík­is­stjórnin hafi látið Samtök atvinnu­lífs­ins beita sig hót­unum um upp­sögn kjara­samn­inga sem aldrei hafi verið inni­stæða fyrir. „Fjöldi fyr­ir­tækja um allt land eru í ágætum rekstri og ekki á þeim buxum að hefja ófrið um allan vinnu­mark­að­inn. Í stað þess að halda sjálfs­virð­ingu sinni og verja hags­muni almenn­ings lætur rík­is­stjórnin neyða sig til að ausa enn meira fé úr sjóðum hins opin­bera til efna­fólks og stöndugra fyr­ir­tækja.“

Í nið­ur­lagi til­kynn­ing­ar­innar segir að .au vinnu­brögð atvinnu­rek­enda sem rík­is­stjórnin hafi nú veitt sam­þykki sitt boði ekki gott fyrir áform um sam­ráð aðila vinnu­mark­að­ar­ins um svo­kall­aða græn­bók um fram­tíð­ar­um­hverfi kjara­samn­inga og vinnu­mark­aðs­mála, sem rætt var um í aðgerða­pakk­anum. „Kostu­legt er að stjórn­völd ímyndi sér að grund­völlur sé fyrir slíku sam­ráði meðan launa­þjófn­aður, brot vinnu­mark­aðslög­gjöf­inni og hót­anir um samn­ings­rof við­gang­ast átölu­laust.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár