Ásta: Það sama þarf að ganga yfir alla á tímum eins og í dag

Fram­kvæmda­stjóri Við­skipta­ráðs telur að íslenskt sam­fé­lag þurfi að róa saman að því mark­miði að það fjár­magn sem losnar fari á rétta staði.

Ásta Fjeldsted, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs.
Ásta Fjeld­sted, fram­kvæmda­stjóri Við­skipta­ráðs. Mynd: RÚV/Skjáskot

Ásta Fjeld­sted, fram­kvæmda­stjóri Við­skipta­ráðs, og Sonja Ýr Þor­bergs­dótt­ir, for­maður BSRB, ræddu umsagnir Við­skipta­ráðs við aðgerðum rík­is­stjórn­ar­innar og þær leiðir sem hægt er að fara í ástand­inu sem upp er komið vegna COVID-19 far­ald­urs­ins í Silfrinu í morgun.

Umsagnir Við­skipta­ráðs hafa vakið blendin við­brögð í sam­fé­lag­inu en Kjarninn fjall­aði um málið í vik­unni. Meðal þess sem Við­skipta­ráð sagði var að það væru mikil von­brigði að ekk­ert hefði heyrst frá stjórn­­völdum um stór­­fellda lækkun starfs­hlut­­falls og tíma­bundnar kjara­skerð­ingar opin­berra starfs­­manna vegna efna­hags­­legra afleið­inga veirunnar sem veldur COVID-19 sjúk­­dómn­­um.

Sonja Ýr brást við umsögn­inni með því að segja að krafan um að opin­berir starfs­menn sæti launa­skerð­ingum kæmi eins og köld gusa í and­lit fólks sem leggur nótt við nýtan dag að bjarga manns­lífum og gera líf sam­borg­ara sinna bæri­legra, tryggja heilsu almenn­ings og halda uppi nauð­syn­legri þjón­ust­u.

Vilja tryggja að fyrirtækin fari ekki í þrot

[links]Ásta sagði í Silfrinu að sú vinnsla þeirra í Við­skipta­ráði að skrifa umsagnir um þessi frum­vörp hefði unn­ist mjög hratt. „Það er ljós að allt er undir í þessu ástandi og við þurfum fyrst og fremst að huga að fólk­inu í land­inu og að heilsu þess – en einnig fjár­hag. Það sem mestu máli skiptir í því sam­hengi er að vernda störfin. Við viljum tryggja það að fyr­ir­tækin fari ekki í þrot í þessu ástandi sem uppi er.“

Hún segir að þau hjá Við­skipta­ráði fagni hluta­bóta­úr­ræði stjórn­valda og að þau sjái það að fyr­ir­tækin í land­inu séu vissu­lega að hag­ræða. „Við bendum á það að okkur finnst í ljósi þeirra aðstæðna sem uppi eru að það sé sann­gjarnt að ríkið hugi að ein­hvers konar hag­ræð­ingu þar sem því verður við­komið. Við viljum taka það skýrt fram að – og það kom skýrt fram í okkar umsögn – að sjálf­sögðu erum við ekki að tala um fólk sem stendur í fram­varð­ar­sveit sem er að berj­ast við COVID-sjúk­dóm­inn og við áttum okkur á því að þetta er stór hópur. Þetta er heil­brigð­is­fólkið okkar sem er auð­vitað að vinna algjört krafta­verk um þessar mundir. Þetta eru leik­skóla­kenn­ar­arnir okkar, þetta eru kenn­ar­arnir, lög­gæslan og aðrir sem við erum vissu­lega ekki að tala um að taki á sig skert laun eða hlut­fall.“

En hverjir eru það þá? Ásta segir að þeim finn­ist það hafa verið fyr­ir­mynd­ar­skref hjá helstu ráða­mönnum Íslands, alþing­is­mönnum og ráð­herrum, að þeir ætli að frysta sínar launa­greiðslur fram til næstu ára­móta. Þau leggi til að beita mætti og beina því fjár­magni sem kæmi út úr þessum hag­ræð­ingum til þeirra sem virki­lega þurfi á því að halda, sér­stak­lega þeim sem eru í fram­varð­ar­sveit­inni.

Að hvetja til kjaraskerðingar opinberra starfsmanna ósvífni

Sonja svarar Ástu og segir að nær allir séu í beinni eða óbeinni vinnu þegar kemur að veirunni. Nánast allar stéttir séu undir sem sinna grund­vall­ar­þjón­ustu og margar þeirra séu þess eðlis að fólk átti sig ekki endi­lega á því hvað það sé að sinna mik­il­vægum störfum. „En ég held að við stöndum núna frammi fyrir tíma­mótum þar sem við ættum öll að átta okkur á hversu mik­il­væg þessi almanna­þjón­usta er og hefur aldrei verið jafn mik­il­væg.“

Hún seg­ist ekki átta sig á því hvort almennur skiln­ingur sé á því að það hafi ótrú­lega rík áhrif á fólk þegar tekjur þeirra eru skertar. „Þetta er áfall. Það er verið að tala um lífs­við­ur­væri þeirra. Þannig að bein­línis að hvetja til þess með þessum hætti finnst okkur ein­fald­lega ósvífið. Maður gerir það ekki með þessum hætti,“ segir Sonja. Þetta sé ekki leiðin til þess að slægj­ast eftir auka tekjum.

Alls staðar hægt að spara

Ásta telur að hún og Sonja séu meira sam­mála en ósam­mála. „Það er okkur í mun að vernda störfin og þá erum við að tala um öll störfin í land­inu. Það er ein­fald­lega þannig að það er allur vinnu­mark­að­ur­inn undir. Bæði opin­beri og einka­geir­inn,“ segir hún.

Þá segir hún að það sem Við­skipta­ráð sé að huga að sé að alls staðar sé hægt að finna störf þar sem hægt sé að fara í skert starfs­hlut­fall og spara á þann hátt – alveg eins og fyr­ir­tækin séu að gera – og „við erum í raun bara að segja að það sama þurfi að ganga yfir alla á tímum eins og í dag. Þar sem við stöndum í þeirri óvissu að við vitum auð­vitað ekki hversu lengi þetta muni vara eða hvaða áhrif þetta muni hafa. Og við þurfum bara að leggja allar árar í bát saman til að róa að því mark­miði að það fjár­magn sem losnar fari á rétta staði.“

Hér er hægt að sjá Silfrið í heild sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár