Vilja skert starfshlutföll og kjaraskerðingar hjá opinberum starfsmönnum

Við­skipta­ráð segir að það séu mikil von­brigði að ekk­ert hafi heyrst um stór­fellda lækkun starfs­hlut­falls og tíma­bundnar kjara­skerð­ingar opin­berra starfs­manna. Samtök atvinnu­lífs­ins vilja að sett verði hag­ræð­ing­ar­krafa á rík­is­stofn­anir.

Viðskiptaráð og Samtök atvinnulífsins eru bæði til húsa í Húsi atvinnulífsins í Borgartúni.
Við­skipta­ráð og Samtök atvinnu­lífs­ins eru bæði til húsa í Húsi atvinnu­lífs­ins í Borg­ar­túni. Mynd: Bára Huld Beck

Við­skipta­ráð Íslands segir að það séu mikil von­brigði að ekk­ert hafi heyrst frá stjórn­völdum um stór­fellda lækkun starfs­hlut­falls og tíma­bundnar kjara­skerð­ingar opin­berra starfs­manna vegna efna­hags­legra afleið­inga veirunnar sem veldur COVID-19 sjúk­dómnum. Þetta kemur fram í umsögn þess um fjár­auka­lög.

Þar segir að Ísland sé varla byrjað að sjá hverjar afleið­ing­arnar verða af COVID-19 en stóra myndin sé sú að lands­fram­leiðsla á mann muni falla veru­lega. Hvað atvinnu­lífið varði heyri til und­an­tekn­inga að atvinnu­greinar verði ekki fyrir fjár­hags­legu höggi sem aftur leiðir til upp­sagna og kjara­rýrn­unar.

Þótt höggið sé von­andi tíma­bundið telur Við­skipta­ráð að það væri eðli­legt að allir taki þátt í að verða fyrir því. „Þar geta opin­berir starfs­menn, fyrir utan þá sem eru í fremstu víg­línu bar­átt­unnar gegn COVID-19, ekki verið und­an­skildir. Því eru mikil von­brigði að ekk­ert hafi enn heyrst um skert starfs­hlut­föll, tíma­bundnar kjara­skerð­ingar eða annað slíkt á sama tíma og stór­felld lækkun starfs­hlut­falls og upp­sagnir eru að hefj­ast á almennum vinnu­mark­aði. Hið sama ætti að gilda á opin­berum vinnu­mark­aði. Það er sann­gjarnt en eykur líka svig­rúm rík­is­ins til að bregð­ast við aðstæð­unum í heil­brigð­is­kerf­inu og til þess að for­gangs­raða fjár­munum í aðgerðir til að sporna gegn nei­kvæðum efna­hags­legum áhrifum t.d. með því að verja atvinnu­lífið, þar sem verð­mæta­sköp­unin á sér stað.“

Undir umsögn­ina skrifar Konráð S. Guð­jóns­son, hag­fræð­ingur Við­skipta­ráðs.

Vilja hagræðingarkröfu á ríkisstofnanir

Samtök atvinnu­lífs­ins eru á svip­uðum slóðum í sinni umsögn, sem er und­ir­rituð af Halldóri Benjamín Þor­bergs­syni, fram­kvæmda­stjóra þeirra.

Þar er gerð athuga­semd við að engin hag­ræð­ing­ar­krafa sé sett á rík­is­stofn­anir í fjár­auka­laga­frum­varp­inu. „Við blasir að starf­semi margra stofn­ana mun drag­ast veru­lega saman eða jafn­vel liggja niðri í ein­hverjar vikur eða mán­uði vegna far­ald­urs­ins. Eðlilegt væri að samið yrði við starfs­menn um að fara í hluta­störf í sam­ræmi við lög um breyt­ingu á lögum um atvinnu­leys­is­trygg­ingar og lögum um Ábyrgð­ar­sjóð launa (minnkað starfs­hlut­fall) sem sam­þykkt voru á Alþingi sl. föstu­dag.“

[adspot]Í umsögn­inni segir enn fremur að íslenskt atvinnu­líf glími við efna­hags­skell sem sé án allra for­dæma og að það muni taka tíma að vinna upp fram­leiðslutapið. Rík­is­sjóður muni ekki geta brugð­ist við versn­andi efna­hags­horfum, tekju­falli og auknum útgjöldum með hækkun skatta og gjalda á íslenskt atvinnu­líf næstu árin. „Aukin hag­ræð­ing í rík­is­rekstri er því nauð­syn­leg og verður verk­efni næstu miss­era þegar far­ald­ur­inn hefur gengið yfir. Það breytir þó ekki því að stöðugt þarf að horfa til þeirra fjár­muna sem rík­is­sjóður hefur úr að spila hverju sinni. SA hvetja stjórn­völd til að horfa til þeirrar stöðu sem nú er uppi og finna allar mögu­legar leiðir til að draga úr útgjöldum og hag­ræða í rekstri.“

Vilja að ríkissjóður gefi peninga til fyrirtækja í stað þess að lána

Kjarninn greindi frá því í gær að Við­skipta­ráð vill einnig að íslenska ríkið horfi til aðgerða ann­arra ríkja til að bregð­ast við yfir­stand­andi efna­hags­sam­drætti og að það geri frekar meira en minna. Á meðal þeirra aðgerða sem Við­skipta­ráð bendir á í þessu sam­hengi eru bein fjár­fram­lög til fyr­ir­tækja úr rík­is­sjóði sem yrðu ekki end­ur­greið­an­leg.

[links]Í umsögn Við­skipta­ráðs um frum­varp rík­­is­­stjórn­­­ar­innar sem er ætlað að lög­­­festa aðgerð­­ar­­pakka hennar í efna­hags­­mál­um segir að sum ríki í kringum okkur séu að „átta sig á því að það sé ekki endi­lega skyn­sam­leg­asta leiðin til að styðja við fyr­ir­tæki að láta þau skuld­setja sig meira heldur þurfi beinni og mark­viss­ari stuðn­ing“.

Við­skipta­ráð ítrekar þessa skoðun sína í umsögn­inni um fjár­auka­laga­frum­varpið. Þar segir að stjórn­völd þurfi að hafa vak­andi auga fyrir útfærslu lána­úr­ræð­is­ins, sam­spil við önnur úrræði og mögu­legrar útvíkk­unar þess ef svart­ari sviðs­myndir ræt­ast. „Takmörk eru fyrir hversu miklar skuldir fyr­ir­tæki geti tekið á sig án þess að það bitni á getu þeirra til að spyrna við fótum. Því gæti líka verið nær­tækara að leggja áherslu á bein rík­is­út­gjöld eða nið­ur­fell­ingu skatta til að hjálpa fyr­ir­tækjum og sam­fé­lag­inu yfir erf­ið­asta hjall­ann, sem aftur kallar á meiri skuld­setn­ingu rík­is­ins til skemmri tíma.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár