Útgerðirnar vilja fá að fresta því að borga veiðigjaldið vegna COVID-19

Hags­muna­sam­tök sjáv­ar­út­vegs- og fisk­eld­is­fyr­ir­tækja vilja að veiði­gjaldi verði frestað, að sér­stök gjöld á fisk­eldi verði jafn­vel felld niður og að stimp­il­gjald vegna fiski­skipa verði afnumið. Ástæðan er staðan sem skap­ast hefur vegna útbreiðslu COVID-19.

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS) fara þess á leit við efna­hags- og við­skipta­nefnd Alþingis að gerðar verði breyt­ingar á frum­varpi um aðgerðir til að mæta efna­hags­legum áhrifum í kjöl­far heims­far­ald­urs kór­ónu­veiru þess efnis að greiðslu veiði­gjalds í ár verði frestað. Áætlaðar tekjur rík­is­sjóðs vegna veiði­gjalda í ár eru tæp­lega 4,9 millj­arðar króna.

Samtökin fara sömu­leiðis fram á að sér­stök gjöld sem lögð eru á fisk­eld­is­fyr­ir­tæki sem stunda sjó­kvía­eldi verði frestað eða felld niður út árið 2021 til að veita fisk­eld­is­fyr­ir­tækjum meira svig­rúm til að bregð­ast við fyr­ir­séðum tekju­sam­drætti við þær aðstæður sem nú eru uppi.

Þetta kemur fram í umsögn SFS um frum­varp rík­is­stjórn­ar­innar sem er ætlað að lög­festa aðgerð­ar­pakka hennar í efna­hags­málum, sem kynntur var í Hörpu á laug­ar­dag.

Markaður fyrir sjávarafurðir sums staðar hverfandi

Í umsögn­inni segir að íslenskur sjáv­ar­út­vegur fari ekki var­hluta af þeim for­dæma­lausu aðstæðum sem skap­ast hafa vegna útbreiðslu veirunnar sem veldur COVID-19 sjúk­dómnum. „Ljóst er að mark­aður með íslenskar sjáv­ar­af­urðir fer hratt minnk­andi og sums staðar er hann raunar hverf­andi. Veit­inga­staðir, hótel, mötu­neyti og fisk­borð mat­vöru­versl­ana loka stórum dráttum um víða ver­öld, auk þess sem staða birgja og dreifi­kerfa er víða í óvissu. Eft­ir­spurn eftir ferskum sjáv­ar­af­urðum í Evrópu og Banda­ríkj­unum er því sem næst engin, með til­heyr­andi áhrifum á útflutn­ing fisks frá Íslandi. Þá má vænta þess að hægja mun á eft­ir­spurn eftir frystum afurðum auk þess sem verð fari lækk­andi þegar fleiri fram­leið­endur frysti sínar afurðir. Jafn­framt getur hvenær sem er komið til þess að fisk­vinnslur og útgerð­ar­fyr­ir­tæki þurfi að loka vegna starfs­fólks í sótt­kví eða sam­komu­banns stjórn­valda. Það hefði í för með sér meiri­háttar hrun í fram­boði íslensks sjáv­ar­fangs.“

[adspot]SFS bendir á í umsögn­inni að íslenskum sjáv­ar­út­vegi sé gert að greiða sér­stakt gjald af lönd­uðum afla, svo­kallað veiði­gjald. Það sé 33 pró­sent af reikn­aðri afkomu hvers nytja­stofns og sé inn­heimt mán­að­ar­lega. „Rekstr­ar­for­sendur tveimur árum fyrir álagn­ingu ráða fjár­hæð veiði­gjalds­ins. Rekstr­ar­for­sendur eru hins vegar að veru­legu leyti brostnar með for­dæma­lausum hætti. Veiði­gjald er því inn­heimt í efna­hags­legum ham­förum, byggt á upp­lýs­ingum úr rekstri þegar til muna betur áraði.“

Vilja frestun eða niðurfellingu

Með þessum rökum vill SFS að sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækjum verði veitt ráð­rúm til að mæta tekju­hruni. Það þyrfti að gera með því að horfa til tíma­bund­innar nið­ur­fell­ingar eða frest­unar tekju­öfl­unar sem væri „íþyngj­andi fyrir fyr­ir­tæki í sjáv­ar­út­vegi, auk þeirra almennu aðgerða sem frum­varpið til­tekur. Því fara sam­tökin þess á leit við nefnd­ina að gerðar verði breyt­ingar á frum­varp­inu þess efnis að frestun á greiðslu veiði­gjalds verði sömu­leiðis að veru­leika við þessar aðstæður, líkt og raunin er um aðra skatta og gjöld sam­kvæmt þessu frum­varpi.“

Sömu sögu er að segja um sér­stök gjöld sem fisk­eld­is­fyr­ir­tæki sem stunda sjó­kvía­eldi greiða, en þau eru gjald vegna fisk­eldis í sjó, sem er reiknað af hverju kíló­grammi af slátr­uðum laxi, og umhverf­is­gjald. „Með frestun þess­ara sér­tæku gjalda eða nið­ur­fell­ingar út árið 2021 mætti veita fisk­eld­is­fyr­ir­tækjum meira svig­rúm til að bregð­ast við fyr­ir­séðum tekju­sam­drætti við þær aðstæður sem nú eru uppi. Því fara sam­tökin þess á leit við nefnd­ina að gerðar verði breyt­ingar á frum­varp­inu þess efnis. Sjáv­ar­út­vegur og fisk­eldi eru tvær af und­ir­stöðu­út­flutn­ings­greinum þjóð­ar­innar. Ekki er síður nauð­syn­legt að veita þeim atvinnu­greinum skjól, í þeim efna­hags­legu hörm­ungum sem nú ganga yfir,“ segir í umsögn­inni.

Vilja líka afnám stimpilgjalds á fiskiskip

Í lok umsagn­ar­innar er þrýst á að frum­varp um breyt­ingu á lögum um stimp­il­gjald af fiski­skipum verði afgreitt sem hluti af þeim band­ormi sem felst í frum­varpi rík­is­stjórn­ar­innar. Um er að ræða ára­langt bar­áttu­mál SFS, en á árunum 2008 til 2017 greiddu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki rúm­lega 1,2 millj­arða króna í stimp­il­gjald vegna fiski­skipa.

[adspot]Sjó­manna­sam­band Íslands og VM - félag vél­stjóra og málm­tækni­manna hafa sagt að þau geti ekki undir neinum kring­um­stæðum nema að einu leiti tekið undir nauð­syn þess að afnema stimp­il­gjöld af fiski­skip­um. Und­an­tekn­ingin sé sú þegar skip komi i fyrsta skipti á íslenska skipa­skrá. Í umsögn þeirra um fyr­ir­liggj­andi frum­varp þess efnis sagði meðal ann­ars: „Með því að aflétta stimp­il­gjaldi er útgerð­inni gert kleift að flagga skipum út og inni af íslenskri skipa­skrá að eigin geð­þótta og stefna afkomu sjó­mann­anna í stór­hætt­u.“

Góð afkoma í rúman áratug

Samkvæmt tölur úr Sjáv­ar­út­vegs­gagna­grunni Deloitte fyrir árið 2018 sem kynntur var í sept­em­ber í fyrra, og nær yfir rekstur 92 pró­sent allra fyr­ir­tækja í íslenska sjáv­ar­út­vegs­geir­anum, áttu íslensk sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki eigið fé upp á 276 millj­arða króna í lok þess árs.

[links]Frá hruni og fram til þess tíma hafði eig­in­fjár­staða sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækj­anna batnað um 355 millj­arða króna, en hún var nei­kvæð í lok árs 2008.

Alls greiddu fyr­ir­tækin sér arð upp á 12,3 millj­arða króna árið 2018. Frá árinu 2010 og til loka árs 2018 höfðu þau greitt 92,5 millj­arða króna til eig­enda sinna í arð­greiðslur.

Sam­an­lagt batn­aði hagur sjáv­ar­út­veg­ar­ins því um 447,5 millj­arða króna frá árinu 2008 og út árið 2018, eða á einum ára­tug.

Þá var búið að taka til­lit til þeirra 63,3 millj­arða króna sem útgerð­ar­fyr­ir­tækið greiddu í veiði­gjöld frá árinu 2011 og úr árið 2018.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár