Heimavellir fara fram á afskráningu úr Kauphöll í annað sinn á rúmu ári

Búið er að senda erindi til Kaup­hallar Íslands um að leigu­fé­lagið Heima­vellir verði afskráð úr henni. Einn hlut­hafi, norskt félag, á nú 99,45 pró­sent í Heima­völlum.

Heimavellir voru skráðir í Kauphöll Íslands vorið 2018. Nú virðast dagar þess sem skráðs félags vera taldir.
Heima­vellir voru skráðir í Kauphöll Íslands vorið 2018. Nú virð­ast dagar þess sem skráðs félags vera taldir. Mynd: Nasdaq Iceland

Heima­vellir hf. hafa farið fram á það við Kauphöll Íslands að skráð hluta­bréf í félag­inu verði tekin úr við­skiptum sam­kvæmt erindi sem sent var á Kaup­höll­ina fyrr í dag, þann 25. ágúst 2020.

Norska félagið Fredens­borg AS gerði yfir­tökutil­boð í Heima­velli í mars og þegar því lauk átti félagið 99,45 pró­sent í Heima­völlum þegar búið var að leið­rétta fyrir eigin hlutum.

Verðið var 1,5 krónur á hlut og því hljóð­aði yfir­tökutil­boðið í heild sinni upp á 17 millj­arða króna. Alls tóku 242 hlut­hafar til­boð­inu. Í kjöl­farið var inn­lausn­ar­rétti beitt þar sem verðið var hið sama og bauðst í yfir­tökutil­boð­inu, eða 1,5 krónur.

Heima­vellir er stærsta einka­rekna leigu­fé­lag lands­ins með um tvö þús­und íbúðir í rekstri á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, Akranesi, Borg­ar­nesi, Ísafirði, Akureyri, Egils­stöðum, Reyð­ar­firði, Selfossi, í Hvera­gerði, Þor­láks­höfn, Grinda­vík og Reykja­nesbæ.

Reyndu að afskrá félagið í fyrra

Lyk­il­hlut­hafar Heima­valla reyndu að afskrá félagið í fyrra eftir að illa gekk að fá stóra fag­fjár­­­­­­­festa á borð við líf­eyr­is­­­­sjóði til að fjár­­­­­­­festa í því og eftir að félag­inu mistókst að end­­­­ur­fjár­­­­­­­magna sig í takti við fyrri áætl­­­­­­­anir sem áttu að losa það undan arð­greiðslu­höml­u­m.

Kaup­höll Íslands hafn­aði þeim til­­­­raunum og þess í stað fóru helstu hlut­hafar Heima­valla í þá veg­­­­ferð að selja eignir með það mark­mið að skila arð­inum af þeim til hlut­hafa. Sam­hliða var haldið áfram, með umtals­verðum árangri, að leita að end­­­ur­fjár­­­­­mögnun fyrir lánin sem mein­uðu útgreiðslu á arði.

Marka­virði Heima­valla er í dag er 16,4 millj­­­­­arðar króna og hækk­aði umtals­vert framan af ári.

Eigið fé félags­­­­­ins, mun­­­­­ur­inn á skuldum og eignum þess, er hins vegar mun hærri tala eða rúm­lega 20 millj­­­­­arðar króna miðað við síð­­­­asta birta upp­­­­­­­gjör.

Í októ­ber í fyrra hófu Heima­vellir umfangs­­­mikla áætlun um end­­­ur­­­kaup á eigin bréf­um.

Heima­vellir töp­uðu 476 millj­ónum króna á fyrri hluta árs­ins 2020. Eigið fé félags­ins var 19,5 millj­arðar króna í lok júní­mán­aðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár