Kaldalón ætlar að skrá sig á aðallista Kauphallar Íslands árið 2022

Kaldalón hefur selt fast­eigna­þró­un­ar­verk­efni í Voga­byggð og keypt tekju­ber­andi eignir í stað­inn. Arion banki ætlar að sölu­tryggja fimm millj­arða króna í nýtt hlutafé í tengslum við skrán­ingu Kalda­lóns á markað.

Jónas Þór Þorvaldsson er framkvæmdastjóri Kaldalóns.
Jónas Þór Þor­valds­son er fram­kvæmda­stjóri Kalda­lóns. Mynd: Aðsend

Fast­eigna­þró­un­ar­fé­lagið Kaldalón, sem skráð var á First North mark­að­inn haustið 2019, ætlar að skrá sig á aðal­l­ista Kaup­hallar Íslands á næsta ári, 2022. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu sem birt var í kaup­höll­inni í morgun.

Þar segir að Kaldalón hafi und­ir­ritað vilja­yf­ir­lýs­ingu við Arion banka um bank­inn, sölu­tryggi allt að fimm millj­arða króna í nýju hlutafé í tengslum við fyr­ir­hug­aða skrán­ingu, gangi ákveðnar for­sendur eftir. Auk þess hafi verið gerður ráð­gjafa­samn­ingur við Arion banka sem felur í sér aðstoð hans við fjár­mögnun félags­ins í tengslum við frek­ari kaup Kalda­lóns á tekju­ber­andi fast­eignum. „Hvort tveggja, fram­an­greind við­skipti og und­ir­ritun ráð­gjafa­samn­ings við Arion eru liður í þeirri stefnu Kalda­lóns að auka vægi tekju­ber­andi eigna í starf­semi félags­ins, en við­halda á sama tíma sterkum þró­un­ar­armi. Áhersla verður lögð á stærri eignir með trausta tekju­mögu­leika til langs tíma, auk eigna sem tæki­færi eru til að þróa og nýta þannig sér­þekk­ingu Kalda­lóns á þró­unar- og upp­bygg­ing­ar­verk­efnum. Telur stjórn félags­ins að nú sé lag að nýta sér mark­aðstæður til kaupa á tekju­ber­andi eignum.“

Kaupa af og selja til sömu aðila

Til að und­ir­strika þessa stefnu­breyt­ingu var greint frá því í til­kynn­ing­unni í morgun að Kaldalón hefði selt fast­eigna­verk­efni dótt­ur­fé­lags síns í Voga­byggð til Reir ehf. fyrir 2.760 millj­ónir króna þegar búið var að draga skuldir frá. Reir ehf. er eign­ar­halds -og fjár­fest­inga­fé­lag sem var stofnað af, og er í eigu Hilmars Þórs Krist­ins­sonar, eig­in­konu hans Rann­veigar Eir Ein­ars­dóttur og hol­lensks við­skipta­fé­laga þeirra, Bernhard Jakob Strickler.

Samhliða söl­unni á fram­an­greindum eignum í Voga­byggð kaupir dótt­ur­fé­lag Kalda­lóns félagið Lantan ehf. sem á fast­eign­irnar að Lauga­vegi 32-36 sem m.a. hýsa starf­semi Sand Hótels, og félagið VMT ehf. sem á fast­eignir að Vega­móta­stíg 7 sem hýsir starf­semi Room with a View Hotel, ásamt gild­andi leigu­samn­ingum.

Heild­ar­verð hinna keyptu félaga Lantan ehf. og VMT ehf. er kr. 5.320 millj­ónir. Yfir­teknar skuldir nema kr. 3.273 millj­ónum. Við­skiptin eru háð end­an­legri kaup­samn­ings­gerð, sam­þykki stjórna kaup­anda og selj­enda og sam­þykki lán­veit­enda. Stefnt er að því að kaupin komi til fram­kvæmda eigi síðar en 30. júní 2021.

Eigandi VMT er áður­nefnt Reir ehf. og eig­andi Lantan ehf. eru Reir ehf. og Aztiq Fjár­fest­ingar ehf., sem eiga það félag til helm­inga. Aztiq Fjár­fest­ingar er skráð í eigu Aztiq Invest­ment Advisory AB í Svíþjóð. Félagið teng­ist stjórn­endum Alvogen og Alvotech, meðal ann­ars Róberti Wessman og Árna Harð­ar­syni.

Reir og Aztiq eiga einnig saman fjár­fest­inga­fé­lagið Frosta­skjól ehf., sem er á meðal stærstu einka­fjár­festa í fjar­skipta- og fjöl­miðla­fyr­ir­tæk­inu Sýn.

Félag Ingibjargar og Jóns Ásgeirs stærsti eigandinn

Stærsti eig­andi Kalda­lóns er Strengur Holding, félag sem stofnað var í fyrra og er að öllu leyti í eigu 365 ehf., eign­ar­halds­fé­lagi í eigu Ingi­bjargar Pálma­dóttur þar sem eig­in­maður hennar Jón Ásgeir Jóhann­es­son er stjórn­ar­for­maður. Strengur Holding á 28,8 pró­sent hlut í Kalda­lóni. Jón Skafta­son, fram­kvæmda­stjóri Strengs Holding, er stjórn­ar­for­maður Kalda­lóns.

Annað Strengs félag þeirra og við­skipta­fé­laga þeirra eiga einnig meiri­hluta hluta­fjár í Skelj­ungi.

Kaldalón hagn­að­ist um 371 milljón króna í fyrra og hafði áætl­anir um að hagn­ast um allt að 940 millj­ónir króna í dag. Sú afkomu­spá hefur hins vegar verið aftengt vegna nýj­ustu vend­inga og ný verður gefin út gangi þær allar eftir.

Heild­ar­eignir Kalda­lóns í lok síð­asta árs voru rúmir sex millj­arðar króna og því ljóst að það er verið að stækka félagið veru­lega með þeim við­skiptum sem til­kynnt var um í morgun.

Bréf í Kalda­lóni hafa hækkað um 4,24 pró­sent í dag eftir að til­kynnt var um skrán­ing­ar­á­formin og ofan­greind við­skipti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár