Selja 120 rækjutroll til Ástralíu

Hamp­iðjan hefur verið að nema ný lönd í starf­semi sinni að und­an­förnu.

Útibú Hampiðjunnar í Ástralíu hefur náð samningum við stærsta útgerðarfyrirtæki Ástralíu.
Útibú Hamp­iðj­unnar í Ástralíu hefur náð samn­ingum við stærsta útgerð­ar­fyr­ir­tæki Ástralíu. Mynd: Rakel Tómasdóttir

Hamp­iðjan í Ástr­al­íu hef­ur náð samn­ingi um sölu á 120 rækju­troll­um til Austr­al Fis­heries, eins stærsta út­gerð­ar­fyr­ir­tæk­is í Ástr­al­íu, að því er fram kemur í Morg­un­blað­inu í dag.

Aðeins tæp tvö ár eru síðan úti­bú Hamp­iðj­unn­ar var opnað í Ástr­al­íu eða í októ­ber árið 2015 og er fyr­ir­tækið þegar „orðið leið­andi í sölu á veið­ar­fær­um í áströlsk­um sjáv­ar­út­vegi,“ segir í Morg­un­blað­inu.

„Við selj­um veið­ar­færi um alla Ástr­al­íu. All­ar stærstu út­gerð­irn­ar versla ein­göngu við okk­ur,“ seg­ir Þor­steinn Bene­dikts­son, fram­kvæmda­stjóri Hamp­i­djan Austr­alia, í við­tali við Morg­un­blaðið.

Hamp­iðjan er rót­gróið fyr­ir­tæki og hefur rekstur þess verið stöð­ugur á und­an­förnum árum. Í lok árs í fyrra átti fyr­ir­tækið eignir upp á 194 millj­ónir evra, eða sem nemur um 22,8 millj­örðum króna. Hagn­að­ur­inn í fyrra nam 14,5 millj­ónum evra, eða sem nemur um 1,7 millj­örðum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár