Eigendur sjávarútvegsfyrirtækjanna Vísis hf. og Þorbjarnar hf. í Grindavík eru í viðræðum um að sameina fyrirtækin. Ef af verður mun verða til nýr sjávarútvegsrisi á Íslandi, með höfuðstöðvar í Grindavík, sem verður með yfir 16 milljarða króna í veltu á ári, heldur á 44 þúsund tonnum af aflaheimildum og hefur yfir 600 manns í vinnu.
Gangi viðræður um stofnun nýs félags samkvæmt áætlun, má búast við að það taki til starfa um áramót, en þangað til verður rekstur fyrirtækjanna tveggja óbreyttur.
Í tilkynningu vegna þess kemur fram að markmið eigenda félaganna, sem allir yrðu áfram hluthafar, sé að búa til nýtt og kröftugt fyrirtæki.
Það eigi að geta fylgt eftir tækninýjungum og svarað aukinni kröfu markaðanna. Einnig muni hið nýja fyrirtæki tryggja bolfiskvinnslu og styrkja samfélagið í Grindavík enn frekar. „Áætlað er að að samruni af þessu tagi taki allt að 3 árum og er ekki reiknað með uppsögnum í tengslum við hann, þó má að sjálfsögðu gera ráð fyrir breytingum á útgerðarháttum og mögulega einhverjum tilfærslum á störfum á þeim tíma.“
Vísir og Þorbjörn eru rótgróin og öflug sjávarútvegsfyrirtæki, svipuð að stærð og hafa unnið talsvert saman. Eiga þau meðal annars félög saman á borð við Haustak, Codland og sölufyrirtæki á Grikklandi.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.












































Athugasemdir