Leigufélagið Bríet gefur 30 prósent afslátt af leigu í desember

Félag í opin­berri eigu sem á um 250 leigu­í­búðir um allt land og er ekki rekið með hagn­að­ar­sjón­ar­mið að leið­ar­ljósi ætlar að lækka leigu allra leigu­taka frá og með næstu ára­mótum.

Á meðal eigna Bríetar er þetta fjölbýlishús á Selfossi.
Á meðal eigna Bríetar er þetta fjöl­býl­is­hús á Selfossi. Mynd: Bríet

Leigu­fé­lagið Bríet, sem er í eigu Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar (HMS) og sveit­ar­fé­lag­anna Fjarða­byggðar, Fjalla­byggðar og Reyk­hóla­hrepps, ætlar að gefa leigj­endum sínum 30 pró­sent afslátt af leigu í des­em­ber­mán­uði. Félagið, sem er óhagn­að­ar­drifið og rekur 250 fast­eignir í 34 sveit­ar­fé­lögum allt í kringum landið, ætlar líka að lækka leigu­verð til allra leigu­taka var­an­lega um fjögur pró­sent frá kom­andi ára­mótum.

Í til­kynn­ingu segir að leigu­tökum hafi verið greint frá þessu bréfleiðis í morgun og að þeir ættu að sjá lægri upp­hæðir en vana­lega á greiðslu­seðlum í heima­bank­anum sínum. „Með þessu tekur Bríet á sig um helm­ing af hækkun vísi­tölu neyslu­verðs það sem af er árinu en leigu­samn­ingar eru almennt vísi­tölu­bundnir sem leiðir til auk­ins hús­næð­is­kostn­aðar leigj­enda við hraða hækkun verð­lags. Leigu­fé­lagið taldi brýnt að bregð­ast við því erf­iða efna­hags­lega ástandi og þeirri miklu verð­bólgu sem nú ríkir og koma til móts við leigu­taka sína sem verða fyrir áhrifum.“

Þar er haft eftir Ástu Björg Pálma­dóttur, stjórn­ar­for­manni Bríetar, að þar sem útgjöld félags­ins hafi ekki hækkað eins mikið og vísi­tölu­hækk­anir á árinu væri rými til að fara í lækk­anir á leigu. „Við vildum nýta það til að aðstoða sem mest fjöl­skyld­urnar sem leigja heim­ili sín af okkur. Um þessar mundir ríkir mikil óvissa í efna­hags­málum og við vitum að það er ekki gott að fara inn í jóla­mán­uð­inn, með öllum þeim útgjöldum sem honum fylgir, með fjár­hags­á­hyggjur. Við vonum að des­em­ber-afslátt­ur­inn geri okkar fólki auð­veld­ara að eiga gleði­lega hátíð og að var­an­lega lækk­unin, frá og með ára­mót­unum, muni einnig létta því byrð­arnar fram á við.“

Ákvörðun um að stofna Bríet var tekin í des­em­ber 2018. Félagið tók þá við flestum þeim fast­eignum sem eru á hendi Íbúða­lána­sjóðs á þeim tíma, en honum var skömmu síðar skipt upp þannig að félags­legur hluti sjóðs­ins fór til HMS og skuldir hans urðu eftir í því sem kall­ast nú ÍL-sjóður.

Þegar til­kynnt var um stofnun félags­ins var haft eftir Ásmundi Einari Daðasyni, sem þá fór með hús­næð­is­mál í rík­is­stjórn Íslands, stofnun þess vera við­bragð við erf­iðri stöðu á hús­næð­is­mark­aði sem birt­ist ekki síst í háu verði og skorti á leigu­hús­næði á lands­byggð­inni. Hann taldi að hægt yrði að bæta gæði, auka fram­boð og draga úr kostn­aði með því að sam­ein­ast um rekstur slíks hús­næðis í stærra félagi sem starf­aði í þeim til­gangi einum og hefði ekki hagnað að leið­ar­ljósi, umfram það sem þarf til að sinna við­haldi og end­ur­nýjun hús­næð­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár